,

ENDURNÝJUN 50 MHZ HEIMILDAR 2026.

ÍRA hefur borist jákvætt svar frá Fjarskiptastofu, dags. 13.2.2026 við ósk félagsins um endurnýjun aukinna heimilda á 6 metra bandi sumarið 2026.

Stofnunin heimilar íslenskum leyfishöfum auknar aflheimildir í 50-50,5 MHz tíðnisviðinu frá og með 1. apríl 2026. Gildistími er 6 mánuðir eða til 31. september. G-leyfishafar fá heimild til að nota allt að 1kW og N-leyfishafar allt að 100W. Hámarks bandbreidd sendinga er 18 kHz. Heimildin er með þeim fyrirvara að komi til truflana á annarri fjarskiptastarfsemi af völdum sendinganna þá skal þeim hætt. Æskilegt er að sendingar fari fram utan byggðar.

Bent er á, að leyfishafar sem hug hafa á að nýta heimildina þurfa að tilkynna það til fst@fst.is

 eða bjarni@fjarskiptastofa.is Tilgreina skal að sótt sé um aukið afl á 50 MHz.

Ánægjulegt er, að gildistíminn er jafn langur og á síðasta ári, en sérstaklega var sótt um þessa rýmkun í ljósi hagstæðra fjarskiptaskilyrða sem tengjast sólblettahámarki lotu (sólarsveiflu) 25.

Stjórn ÍRA.

Meðfylgjandi ljósmynd var tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

5 × one =