,

ERINDI TF2LL Í SKELJANESI 5. FEBRÚAR.

Ný fræðsludagskrá ÍRA vorið 2026 hefst fimmtudaginn 5. febrúar í félagsaðstöðunni í Skeljanesi.

Í boði verður erindi Georgs Magnússonar, TF2LL ”Fjarskipti á sjó; ýmis furðufyrirbæri”.  Húsið opnar kl. 20:00 og Georg byrjar stundvíslega kl. 20:30.

QSL stjóri verður búinn að fara í pósthólfið og flokka kortasendingar og Sveinn Goði Sveinsson, TF3ID lagar kaffi og tekur fram meðlæti.

Nýir leyfishafar eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Verið velkomin í Skeljanes!

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

14 − 2 =