,

VEL HEPPNAÐ ERINDI HJÁ TF3T.

Opið var í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 24. apríl.

Benedikt Sveinsson, TF3T mætti með erindi kvöldsins sem fjallaði um „EME (Earth-Moon-Earth) tilraunir á 50 MHz og ofar í tíðnisviðinu“. Þetta var sjötta erindið á vordagskrá ÍRA fyrir tímabilið febrúar-maí 2025.

Benedikt fjallaði um fjarskipti með hjálp endurvarps frá tunglinu svo og loftsteinajónun, og öðrum fyrirbrigðum ýmsum. Þessi hlið fjarskipta er auðvitað sérstök en krefst fyrst og fremst áhuga og elju.  Stór loftnet og mikið sendiafl hjálpa en er ekki nauðsynlegt. 

Benedikt er fróður vel um þessi mál öll og sagði þægilega frá. Það hjálpaði að hann hefur reynt flest af þessu og hann og bróðir hans Guðmundur, TF3SG hafa smíðað allan búnað og sett upp stöð og fengið endurvarp af tunglinu, svo dæmi sé tekið. 

Erindi Benedikts var vel tekið. Á eftir var fjöldi fyrirspurna, og rætt um kW magana fyrir 2 metra bandið sem Benedikt smíðaði fyrir nokkrum árum og svo var sest í leðursófasettið og spjalli haldið áfram.  Þetta var vel lukkuð kvöldstund.

Sérstakar þakkir til Benedikts Sveinssonar, TF3T fyrir fróðlegt og áhugavert erindi. Þess má geta að erindið var tekið upp og hér er vefslóð á það: https://youtu.be/5Gxb2pgtd9M

Alls mættu 21 félagi og 1 gestur þetta ágæta fimmtudagskvöld í mildu vetrarveðri í vesturbænum í Reykjavík.

Stjórn ÍRA.

(Texti: Andrés Þórarinsson, TF1AM varaformaður ÍRA).

Benedikt hóf erindið stundvíslega kl. 20:30.
Úr fundarsal. Fremst frá vinstri: Valdimar Óskar Jónasson TF1LT og Benedikt Sveinsson TF3T. Aftar: Hrafnkell Eiríksson TF3HR, Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA og Garðar Valberg Sveinsson TF8YY. Aftar: Ríkharður Þórsson TF8RIX, Ólafur Örn Ólafsson TF1OL, gestur og Elín Sigurðardóttir TF2EQ. Aftast: Mathías Hagvaag TF3MA, Valtýr Einarsson TF3VG og Sveinn Goði Sveinsson TF3ID.
Benedikt kom með og sýndi heimasmíðaðan lkW RF magnara fyrir EME fjarskipti í 144 MHz tíðnisviðinu. Frá vinstri: Hrafnkell Eiríksson TF3HR, Ólafur Örn Ólafssn TF1OL, Benedikt Sveinsson og Valdimar Óskar Jónasson TF1LT
Umræður í leðursófasettinu yfir kaffi eftir erindið. Frá vinstri: Gestur, Ríkharður Þórsson TF8RIX, Elín Sigurðardóttir TF2EQ, Mathías Hagvaag TF3MH, Hrafnkell Eiríksson TF3HR, Garðar Valberg Sveinsson TF8YY, Einar Sandoz TF3ES, Þorvaldur Bjarnason TF3TB, Benedikt Sveinsson TF3T og Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.
Elín Sigurðardóttir TF2EQ og gestur sem var að kynna sér amatör radíó. Ljósmyndir: TF1AM.
0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

four × 3 =