ÁRSSKÝRSLA STJÓRNAR ÍRA 2025/26.
Aðalfundur ÍRA árið 2026 var haldinn 15. febrúar í safnaðarheimili Neskirkju við Hagatorg í Reykjavík. Meðal gagna sem lögð voru fram á fundinum var skýrsla formanns um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
Skýrslan var lögð fram á prentuðu formi. Hún skiptist í 14 kafla og tvo viðauka, auk formála og efnisyfirlits. Hún er alls 192 blaðsíður að stærð.
Vefslóð á skýrsluna:
Fundargerð, ljósmyndir og önnur aðalfundargögn verða til birtingar í 2. tbl. CQ TF 2026 sem kemur út 26. apríl n.k.

Gögn sem voru lögð fram í aðalfundarmöppu 15. febrúar:
(1) Skýrsla um starfsemi ÍRA 2025/26.
(2) Dagskrá fundarins skv. 19. gr. félagslaga; sérprentun.
(3) Lög ÍRA; sérprentun.
(4) Fundargerð síðasta aðalfundar (2025); sérprentun.
(5) Áritaður ársreikningur félagssjóðs fyrir starfsárið 2025.
(6) Límmiðar með félagsmerki TF3IRA til límingar utaná og innaná.
