Farið var eftir þessum reglum síðast 2016  Hér eru núgildandi reglur

TF útileikarnir eru haldnir um verslunarmannahelgina ár hvert á vegum ÍRA Þeir voru fyrst haldnir árið 1979. Tilgangur útileikanna er að örva áhuga og hæfni íslenskra radíóamatöra, einkum hvað varðar notkun færanlegra stöðva og eflingu fjarskipta frá þeim innanlands. Jafnframt, er hugmyndin að leikarnir geti verið mönnum til nokkurrar ánægju við sameiningu útivistar og amatörradíós. Seinni ár, er æ algengara að íslenskir leyfishafar sem búsettir eru erlendis taki þátt í leikunum.

Reglur

1. Aðalþátttökutímabil (en hafa má QSO utan þeirra í leikunum)
  • laugardag kl 1700-1900
  • sunnudag kl 0900-1200
  • sunnudag kl 2100-2400
  • mánudag kl 0800-1000

Þó má hafa samband hvenær sem er um verslunarmannahelgina, enda fari heildar þátttökutími hverrar stöðvar ekki yfir 9 klst. miðað við höfð QSO.

Sé stöð opnuð og samband haft, telst tíminn minnst 30 mínútur, jafnvel þótt aðeins sé um eitt samband að ræða. Hver byrjaður hálftími til viðbótar reiknast 30 mín.

Samband við sömu stöð á sama bandi telst gilt svo fremi að a.m.k. 8 klst. séu liðnar frá fyrra sambandi. Þrjú sambönd er hámarks fjöldi sambanda við sömu stöð á sama bandi, samanber þó að 40/30/20/17/15/12/10 metrar reiknast sem eitt band.

Þeir sem eru með VFO ættu ekki að rabba um daginn og veginn á tíðnum hinna sem eru kristalstýrðir. Munið innanlandstíðnina 3637 kHz.

2. Skilaboð

Lágmarksupplýsingar sem skipst er á eru:

  • RS(T)
  • QSO

RS(T) táknar styrk, læsileika og tón merkisins (tónn er aðeins notaður í morse). Athugið að láta kallsvæðisnúmer koma fram í kallmerkinu, svo sem TF3XX/1 fyrir Reykjavíkurstöð stadda á Suðurlandi, eða TF1YY/M fyrir Suðurlandsstöð í bíl. Þetta er nægjanlegt til fullgildra sambanda.

Auk þess geta þátttakendur fengið viðbótarpunkta fyrir að skiptast á eftirtöldum upplýsingum:

  • QTH eða QTH-lokator
  • Loftnet
  • Útsent afl í wöttum
  • ER eða RA

ER (Ekki rafveita) þýðir að stöðin fái rafmagn sitt að engu leiti frá rafveitukerfi.
RA þýðir að stöðin fái rafmagn sitt að einhverju leyti frá rafveitukerfi.

Einnig eru gefnir punktar fyrir:

  • QTC (Skilaboð) bæði send og móttekin.

QTC eru upplýsingar um QSO (tíma, kallmerki og tíðni), sem þátttakandi hefur haft áður í útileikunum og sendir annarri stöð ásamt þeim upplýsingum, sem hann tók á móti.

Upplýsingar um hvert QSO má aðeins senda einu sinni í QTC og má sendingin fara fram á hvaða þátttökutímabili og bandi sem er (þó ekki HF QSO á VHF eða öfugt).

Senda má hámark þrjú QTC (þ.e. upplýsingar um 3 QSO) til hverrar stöðvar og QTC-ið má ekki greina frá QSO-i þeirra á milli. QTC má ekki segja frá utanlands-QSO’i nema við íslending erlendis. Aðeins má senda hvert QTC einu sinni.
Dæmi: QTC 1630 TF3ÞÞ 3637 569 012 Hengill LW 5W ER.

Sá sem sendi þetta hafði QSO við TF3ÞÞ kl. 1630 á 3637 kHz og tók á móti RST 569 og QSO númeri 012 frá honum og því að hann var staddur í Hengli, notaði LW og var með 5W ER stöð.

TF QTH locator-kort

TF kallsvæðakort

3. Fullgild QSO

Samband telst þá og því aðeins fullgilt að:

  • Báðar stöðvar hafi náð kallmerkjum rétt.
  • RST og QSO númer séu rétt móttekin hjá báðum.
  • Heyrst hafi R (“Roger” eða allt rétt móttekið) frá stöðinni sem skipt er við um að hún hafi náð öllu réttu.
4. Bönd

Nota má öll amatörbönd, sem heimil eru skv. reglugerð og leyfisbréfi þátttakanda. þó er þátttaka á tíðnum á VHF og UHF alveg óháð þátttöku á HF og MF (sjá 9. lið). Enn fremur reiknast 40/30/20/17/15/12/10 metra böndin sem eitt band í punktagjöf.

Í reynd þýðir þetta að stigum má ná með því að hafa samband á eftirfarandi böndum:

  • 135,7-137,8 KHz (fyrir þá sem kunna að vera útbúnir til þess!)
  • 160 metrum
  • 80 metrum
  • 60 metrum (fyrir þá sem hafa sótt um sérstakt leyfi til P&F)
  • 40 metrum og ofar

Sjá nánar síðu um tíðnisvið

5. Punktar

Punktar eru reiknaðir fyrir viðskipti við stöð ef fullgilt QSO næst við hana skv. skilgreiningunni að framan (liður 3). Punkta fjöldi á hverju bandi fer eftir þeim upplýsingum sem skipst er á þannig:

  • Fyrir rétt RS(T) og QSO númer 10p.
  • Fyrir rétt QTH, loftnet, afl ER/RA 10p.

Fyrir rétt QTC sent eða móttekið:

  • Innihald: tími, kallmerki, tíðni, RS(T) og QSO númer 10p.
  • Innihaldi QTC að auki: QTH, loftnet, afl, ER/RA 10p.

Punktar reiknast aðeins ef upplýsingaskiptin eru gagnkvæm, þ.e. ef upplýsingar nást aðeins aðra leiðina reiknast engir punktar fyrir það. Framantalið gildir fyrir QSO innanlands og við Íslendinga erlendis. Fyrir erlendar stöðvar, ekki starfræktar af Íslendingum:

  • Innihald: RS(T) (QSO númer sé skráð en ekki gefið) 1p.
  • Sé að auki skipst á nafni, afli og QTH 1p.
  • Engir punktar fyrir QTC.

Á VHF og UHF má hafa samband gegnum endurvarpa eða beint. Til viðbótar fást þar 10 punktar fyrir hvern km. sem haft er QSO án endurvarpa. Fjarlægðir reiknast á grundvelli QTH reits (QTH lokator) milli miðpunkta þeirra reita (“sub-square”), sem stöðvarnar eru í.

6. Margfaldarar

Þeir eru þrír:

  • M1 er fjöldi íslenskra kallmerkja, sem haft var QSO við.
  • M2 er fjöldi íslenskra kallsvæða sem haft var samband við eða úr. Hvert kallsvæði talið einu sinni.
  • M3 fer eftir aðstæðum M3=10 fyrir ER stöðvar, sem bornar voru með aflgjafa meira en eins kílómetra leið á áfangastað. M3= 8 fyrir aðrar ER stöðvar. M3=5 fyrir RA stöðvar.
7. RA heimastöðvar

Þær fá hvorki punkta né margfaldara fyrir aðrar RA stöðvar né stöðvar erlendis. Þetta gildir ekki um íslenska þátttakendur erlendis.

8. Lokaárangur

Lagðir eru saman punktar allra banda (samanber þó að 40/20/15/10 metrar reiknast sem eitt band). Sú útkoma er síðan margfölduð með heildarmarg-aldara:

  • Lokaárangur = Punktar*M1*M2*M3

Hafi menn ekki starfrækt stöðvar sínar allan tíman á sama M3 margfaldara, er tekið vegið meðaltal, þ.e.:

  • M3 = (10*P10+8*P8+5*P5) / (heildarpunktafjöldi)

Þar sem P10 er punktafjöldi með M3=10, P8 er punktafjöldi M3=8 og P5 er punktafjöldi með M3=5.

9. Flokkar

Þátttaka er í fjórum flokkum:

  • Hlustarar
  • Nýliðar
  • HF/MF flokkur
  • VHF/UHF flokkur

Hlusturum reiknast punktar skv. 5. lið á grundvelli fullgildra útileika-QSO-a og QTC-a sem þeir heyra og skrá rétt.

Þátttaka í HF/MF flokki og VHF/UHF flokki er alveg óháð og hvorki punktar né margfaldarar færast á milli þótt sami þátttakandi taki þátt í báðum flokkum. Gildir það einnig um hlustara.

10. Dagbók

Afriti af dagbók skal skila til ÍRA fyrir 1. september. Þar skal skráð kallmerki, tími, dagsetning, band, punktar, margfaldarar og skilaboð, bæði send og móttekin. Með þessu skal fylgja samantektarblað, sem sýnir fjölda punkta á hverju bandi, flokk, kallmerki, nafn, heimilisfang og lokaárangur. Ummæli eða álit á leikunum eru vel þegin.

Radíódagbók TF útileika

11. Vafaatriði

Rísi einhver vafaatriði um túlkun reglna hefur stjórn ÍRA eða þeir sem hún tilnefnir endanlegt úrskurðarvald.

Hér eru svo nokkrir linkar á gagnleg skjöl

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/03/tf_utileikar_samantekt.pdf

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/03/tf_utileikar_reglur.pdf

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/03/tf_utileikar_qth_locator.pdf

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/03/tf_utileikar_kallsvaedi.pdf

http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/03/tf_utileikar_dagbok.pdf

Góða skemmtun!

Eldir reglur: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2017/07/Gömlu-Útileika-reglurnar-Giltu-til-2016.pdf