Þór Þórisson, TF3GW

Þór Þórisson, TF3GW, hefur á ný gangsett EchoLink sinn á tíðninni 145.325 MHz; “node” númer 283634. Í samtali við Dadda í síma í dag, 5. maí, kom m.a. fram, að hann hefur að undanförnu unnið að uppfærslu búnaðarins, m.a. beinis (e. router), tölvu og hljóðkorts. Hann tekur fram, að enn geti komið fram hnökrar í notkun þar sem síðustu fínstillingarnar eru eftir, en biður menn þá um að láta sig vita.

Þór flutti erindi um EchoLink á vetrardagskrá félagsins þann 24. mars 2011. Hann útskýrði þá m.a. hvernig EchoLink vinnur. Um er að ræða tengingu tveggja amatörstöðva (eða fleiri) sem nota tveggja metra bandið. Merkin fara yfir netið þannig að annar leyfishafinn getur t.d. verið staddur hérlendis og hinn erlendis, í raun hvar sem er í heiminum. Forsendan er, að hvor leyfishafi um sig hafi aðgang að endurvarpa með nettengingu og búi yfir upplýsingum um svokallað “node” númer sem er 6 tölustafir.

EchoLink hugbúnaðurinn kom fyrst fram árið 2002 og er skráður samkvæmt einkaleyfi, en radíóamatörum er heimilt að nota hann frítt. Hönnuður hugbúnaðarins er radíóamatör, Jonathan Taylor, K1RFD. Talið er, að fjöldi radíóamatöra sem nota EchoLink í heiminum sé í dag um 200 þúsund, þar af eru um 5 þúsund QRV hverju sinni.

Í maíhefti CQ tímaritsins 2012 eru birtar niðurstöður úr CQ World-Wide RTTY DX keppninni sem fram fór dagana 25.-26. september 2011. Ágæt þáttaka var frá TF, en alls sendu fimm stöðvar inn keppnisdagbækur í fjórum keppnisflokkum.

Ársæll Óskarsson, TF3AO, var með bestan árangur af TF stöðvum, bæði í sínum keppnisflokki og í heild, eða 689,274 stig. Að baki þeim árangri voru alls 1,083 QSO, 164 DXCC einingar (e. entities); 55 svæði (e. zones) og 74 fylki/ríki í Bandaríkjunum og Kanada.

Jón Gunnar Harðarson, TF3PPN, var einnig með mjög góðan árangur eða 676,506 stig.Hann keppti einnig á öllum böndum, en með 100W í hámarks útgangsafl. Jón Gunnar var í raun með fleiri QSO heldur en Ársæll, en færri margfaldara.

Keppnisflokkur

Kallmerki

Árangur, stig

QSO

DXCC

Svæði

US/VE

Skýringar

Öll bönd TF3HP*

19,565

116

57

19

15

Hámarks útgangsafl
Öll bönd TF8TTY

2,772

41

31

10

3

Mest 100W útgangsafl
Öll bönd (A) TF3AO*

689,274

1083

164

55

74

Hámarks útgangsafl, aðstoð
Öll bönd (A) TF3IG

41,402

190

77

31

19

Hámarks útgangsafl, aðstoð
Öll bönd (A) TF3PPN*

676,506

1187

145

47

82

Mest 100W útgangsafl, aðstoð

*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals.


Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með árangurinn.

Loftnet TF8RPH er staðsett á turninum við vitavarðarhúsið. Ljósmynd: TF8SM.

Líkt og fram kom í fréttadálki hér á heimasíðunni þann 21. apríl, var endurvarpinn TF8RPH settur upp í tilraunaskyni, m.a. með prófun mismunandi tónlæsinga í huga. Endurvarpinn hefur nú, um 10 daga skeið, verið útbúinn með DCS 023 tónlæsingu.

Nú er komið að því að gera tilraun með hefðbundna tónlæsingu, CTCSS, og var endurvarpanum breytt samkvæmt því í dag, 1. maí, kl. 15:15. Tónninn sem notaður er nú, er á 88.5 riðum. Stöðin er enn stillt á “wideband” mótun. Hugmyndin er, að gera prufu með þessa læsingaraðferð í um viku tíma.

Það sama gildir um CTCSS tónlæsinguna og DCS 023 tónlæsinguna, að í báðum tilvikum er hægt er að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í móttöku.

Þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, eru færar þakkir fyrir að hafa veg og vanda af áframhaldandi vinnu við endurvapann. Það sama á við um aðra félagsmenn sem komið hafa að verkefninu.

Benedikt Sveinsson TF3CY flutti erindi um RF magnara í Skeljanesi 26. apríl.

Benedikt Sveinsson, TF3CY, flutti fimmtudagserindið þann 26. apríl og fjallaði um RF magnara radíóamatöra. Erindið var fræðandi og skemmtilega flutt. Hann fjallaði m.a. um helsta mun á lampa og transistormögnurum og skýrði frá eigin reynslu í magnarasmíðum og benti mönnum á nytsamar vefslóðir í þeim efnum. Erindi Benedikts var það síðasta í röð erinda á vetrardagskrá félagsins og það
16. á starfsárinu.

Stjórn Í.R.A. þakkar Benedikt Sveinssyni, TF3CY, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni Svavarsyni, TF3LMN, fyrir myndatökuna.

Power Point glærur með erindi Benedikts verða fljótlega til reiðu á heimasíðu Í.R.A.

Hluti félagmanna sem sótti erindi Bendikts í Skeljanesi 26. apríl. Ljósm.: TF3LMN.

Hluti þátttakenda í prófi til amatörleyfis í Skeljanesi 28. apríl.

Próf á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis var haldið í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes 28. apríl. Prófið var tvískipt, annarsvegar í undirstöðuatriðum í raffræði og radíótækni og hinsvegar í reglugerð og viðskiptum.

Alls þreyttu átta manns fyrri hluta prófsins og fimm manns þann síðari. Tveir náðu fullnægjandi árangri til G-leyfis í tæknihlutanum og allir fimm náðu fullnægjandi árangri til réttinda í reglugerðahlutanum, þar af þrír til G-leyfis og tveir til N-leyfis.

Prófnefnd Í.R.A. annaðist undirbúning og framkvæmd að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar. Prófið var skriflegt og fór bæði fram á íslensku og ensku. Prófið var að þessu sinni haldið án undanfarandi námskeiðs.

Fulltrúar prófnefndar Í.R.A. á prófstað: Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður, Kristján Benediktsson TF3KB, Kristinn Andersen TF3KX og Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS, auk Þórs Þórissonar TF3GW. Fulltrúi Póst- og fjarskiptastofnunnar: Bjarni Sigurðsson séfræðingur. Fulltrúar stjórnar Í.R.A. á prófstað: Jónas Bjarnason TF2JB og Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.

Prófnefnd Í.R.A. að störfum eftir prófið 28. apríl ásamt fulltrúa Póst- og fjarskipta-
stofnunar. Frá vinstri: Kristján Benediktsson TF3KB, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson
TF3VS, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX formaður prófnefndar, Bjarni Sigurðsson
sérfræðingur hjá PFS og Kristinn Andersen TF3KX. Ljósmynd: TF2JB.

Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 19. maí 2012. Fundurinn verður haldinn í Snæfelli (áður “Yale”) fundarsal Radisson Blu hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt félagslögum.

Samkvæmt ákvæði í 26. gr. laganna þurftu tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir 15. apríl s.l. Með tillögum að breytingum skyldu fylgja skriflegar greinargerðir þar sem gerð var grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra. Kynning á ákvæði 26. gr. var birt á heimasíðu félagsins og póstlista þann 2. apríl s.l.

Frumvörp til lagabreytinga á aðalfundi 2012 sem bárust stjórn fyrir tilskilinn frest er dreift með þessu aðalfundarboði.

Ofangreindu til staðfestingar,

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Myndin sýnir hluta nemenda er sátu próf til amatörleyfis fyrir tveimur árum í Fjölbrautaskólanum í Hafnarfirði.

Próf til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 28. apríl 2012 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes í Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis. Hafa skal meðferðis blýanta, strokleður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.

Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarkseinkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarkseinkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin (þó ekki próf í reglugerð og viðskiptum) en annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.

Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2-3 klst síðar. Þá fer fram prófsýning í Skeljanesi ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í hinu prófinu.

Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Benedikt Sveinsson, TF3T

Síðasta erindið á yfirstandandi vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Benedikt Sveinsson, TF3CY, mun fjalla um RF magnara
fyrir tíðnir radíóamatöra. Í erindinu mun hann m.a. fjalla um magnara sem búnir eru lampaútgangi og bera saman við magnara sem búnir eru transistorútgangi, auk þess að koma inn á heimasmíðar.

Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30 og hvetur stjórn Í.R.A. félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.

Ari Þ. Jóhannesson TF3ARI við uppsetningu loftnets fyrir TF8RPH á Garðskaga 21. apríl. Ljósm.: TF8SM.

Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI og Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM, gerðu ferð suður á Garðskaga 21. apríl settu upp loftnet og tengdu Kenwood endurvarpsstöð félagsins.

Kallmerkið er TF8RPH. Endurvarpinn tekur á móti á 145.125 MHz og sendir út á 145.725 MHz. Þessi endurvarpi er frábrugðinn öðrum endurvörpum félagsins að því leyti, að með sendingunni inn á hann þarf að fylgja sérstakur tónkóði, DCS 023, svo hann opnist. Þetta fyrirkomulag verður notað til prufu til að byrja með. Fljótlega verður skipt yfir á CTCSS læsingu, en þess má geta að nánast allar verksmiðjuframleiddar metrabylgjustöðvar fyrir radíóamatöra undanfarna þrjá áratugi eru búnar tónkóðun af því tagi. (Ath. að hægt er að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í móttöku).

Endurvarpinn er af gerðinni Kenwood TKR-750, sendir út 25W FM á “wideband” mótun. Til umræðu er, að skipta yfir á “narrowband” mótun. Loftnetið er OPEC UVS-300 húsloftnet sem er u.þ.b. 12 metra yfir jörðu.
Stöðin sendir út auðkenni á morsi á 30 mínútna fresti.

Um er að ræða sérstakt tilraunaverkefni á vegum félagsins og er miðað við að endurvarpinn verði a.m.k. QRV það sem eftir lifir af þessum mánuði og út næsta mánuð (maí). Þá verður tekin ákvörðun um hvort verður af framtíðarstaðsetningu á þessum stað. Sjá nánar umfjöllun í 2. tbl. CQ TF sem er væntanlegt í næstu viku.

Um leið og stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að prófa nýja endurvarpann, eru þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, færar þakkir fyrir að hafa veg og vanda af uppsetningu stöðvarinnar. Bestu þakkir einnig til Páls B. Jónssonar, TF8PB, fyrir að lána loftnet fyrir TF8RPH.

Ari Þórólfur gengur frá tengingu TKR-750 við “Cavity” síurnar sex frá Decibel Products. Ljósmynd: TF8SM.

Loftnet TF8RPH er staðsett á turninum við vitavarðarhúsið. Myndin var tekin á Vita- og vitaskipahelginni 2010.

Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson TF3VS fjallaði um undirstöðuatriði í samskiptasiðum radíóamatöra.

Í.R.A. efndi til sérstaks fræðslukvölds í Skeljanesi miðvikudaginn 18. apríl. Dagskráin var miðuð við þarfir þeirra sem stefna að því að gangast undir próf til amatörleyfis þann 28. apríl n.k. Undirbúningur og framkvæmd var í höndum þeirra Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX og Vilhjálms Ívars Sigurjónssonar, TF3VS, prófnefndarmanna.

Vilhjálmur Ívar flutti erindi er nefndist Réttindi, ábyrgð og siði radíóamatöra. Það var flutt með tilvísan til rits þeirra J. Devoldere, ON4UN og M. Demeuleneere, ON4WW, Siðfræði og samskiptasiðir radíóamatöra, sem Vilhjálmur þýddi á íslensku og kom út á vegum félagsins árið 2009.

Vilhjálmur Þór flutti erindi er nefndist Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla. Það var flutt, með tilvísan til samantektar Vilhjálms um Merki og mótun sem kynnt var vorið 2011 (og vistuð er á vefsvæði prófnefndar á heimasíðu) svo og framlagðrar greinar eftir hann um Afl og truflanir sem birtist í septemberhefti CQ TF 2005. Að loknum erindisflutningi, fór Vilhjálmur yfir verklega þátt í stillingu mótunar á SSB. Á meðfylgjandi myndum má m.a. sjá Yaesu FT-840 og Icom IC-718 100W sendi-/móttökustöðvar ásamt aukabúnaði sem notaður var við sýnikennsluna.

Sjórn Í.R.A. þakkar þeim Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX, formanni prófnefndar og Vilhjálmi Ívari Sigurjónssyni, TF3VS, prófnefndarmanni, fyrir vel heppnuð og áhugaverð erindi og óskar væntanlegum próftökum góðs gengis þann 28. apríl n.k.

Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX fjallaði fræðilega og verklega um umfjöllunarefnið “Merki og mótun”.

Sýnikennsla Vilhjálms var bæði áhugaverð og lífleg og tóku viðstaddir virkan þátt í prófunum (sbr. mynd).

Ákveðið hefur verið að félagsaðstaða Í.R.A. við Skeljanes verði lokuð fimmtudaginn 19. apríl n.k. sem er sumardagurinn fyrsti. Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 26. apríl, en þá lýkur vetrardagskrá félagsins á yfirstandandi starfsári með erindi Benedikts Sveinssonar, TF3CY, um QRO málefni (sem verður nánar kynnt síðar).

Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.

Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX

Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS

 

 

 

 

 

 

Næstkomandi miðvikudagskvöld, 18. apríl kl. 20:00 verður haldið fræðslukvöld fyrir verðandi próftaka í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes. Allir eru hvattir til að mæta, sérstaklega þeir sem ekki hafa áður fengið umfjöllun um þetta efni. Dagskrá er eftirfarandi:

1. Réttindi, ábyrgð og siðir radíóamatöra, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS.
2. Mótun og stilling hennar, ágrip af fræðum og sýnikennsla, Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX.

Fræðileg umfjöllun verður knappari en vera myndi á námskeiði, svo gott væri ef þátttakendur væru
búnir að kynna sér og prenta út skjalið Merki og mótun, sem er að finna á heimasíðu Í.R.A.
Vefslóð: http://www.ira.is/namsefni/

Einnig verður kannaður áhugi þátttakenda á að fá 1-2 dæmakvöld í vikunni fyrir próf.

F.h. stjórnar,

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.