Recent News

  2013/05/18
Fréttir frá aðalfundi Í.R.A. 2013.
Last changed: 18 May 2013 23:39 by TF2JB


Kristinn Andersen TF3KX var fundarstjóri á aðalfundi Í.R.A. 2013 á Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík.

Aðalfundur Í.R.A. 2013 var haldinn þann 18. maí í Snæfelli, fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík.
Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf; kosin ný stjórn, samþykktar lagabreytingar ásamt umræðum
undir liðnum önnur mál. Embættismenn fundarins voru kjörnir þeir Kristinn Andersen, TF3KX fundarstjóri og
Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ, fundarritari. Alls sóttu 19 félagsmenn fundinn úr kallsvæðum TF1, TF2, TF3 og
TF8 samkvæmt skráningu í viðverubók. Fundurinn var settur kl. 13:10 og slitið kl. 16:20.

Eftirtaldir skipa nýja stjórn félagsins fyrir starfstímabilið 2013-2014: Guðmundur Sveinsson, TF3SG, formaður;
Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY og Benedikt Sveinsson, TF3CY (kjörnir til tveggja ára), Sigurbjörn Þór
Bjarnason, TF3SB (kjörinn stjórnarmaður til eins árs í stað Sæmundar E. Þorsteinssonar, TF3UA sem óskaði
lausnar sitt síðara ár af kjörtímabilinu) og Andrés Þórarinsson, TF3AM, sem nú situr sitt síðara ár.

Varamenn voru kjörnir þeir Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN og Georg Magnússon, TF2LL. Skoðunarmenn
reikninga voru endurkjörnir þeir Óskar Sverrisson, TF3DC og Haukur Konráðsson, TF3HK; og til vara, Vilhjálmur
Ívar Sigurjónsson, TF3VS. Félagsgjald var samþykkt 6500 krónur fyrir starfsárið 2013-2014. Stjórnin mun skipta
með sér verkum fljótlega.

Fráfarandi formaður, Jónas Bjarnason, TF3JB, lýsti kjöri heiðursfélaga sem samþykkt var á síðasta fundi fráfarandi
stjórnar, þann 12. maí s.l. Nýir heiðursfélagar eru þeir Kristján Benediktsson, TF3KB og Vilhjálmur Þór Kjartansson,
TF3DX. Fundarmenn klöppuðu þeim til heiðurs.

Skýrsla stjórnar og reikningur félagssjóðs munu fljótlega verða til birtingar hér á heimasíðunni ásamt fundargerð og
upplýsingum um lagabreytingar og aðrar samþykktir.

(Ljósmynd: TF3JB).

Posted at 18 May @ 4:58 PM by TF2JB | 0 Comments
Aðalfundur Í.R.A. 2013.
Last changed: 18 May 2013 09:06 by TF2JB

Aðalfundur Í.R.A. 2013 verður haldinn í dag, laugardaginn 18. maí. Fundurinn verður
haldinn í Snæfelli, fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og
hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt félagslögum.

Sjá nánari upplýsingar í 2. tbl. CQ TF 2013.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Posted at 18 May @ 9:01 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/16
Rausnarleg gjöf TF3S til Í.R.A.
Last changed: 16 May 2013 18:26 by TF2JB


Hluti af gjöfinni kominn í jeppakerruna. Baldvin Þórarinsson TF3-Ø33 og Stefán Þórhallsson TF3S.

Stefán Þórhallsson, TF3S, hafði nýlega samband við stjórn félagsins og sagði að sig langaði til að gefa félaginu nokkrar fjarskiptastöðvar, fjarskiptabúnað, mælitæki og fleira radíódót vegna flutninga. Það varð úr að Baldvin Þórarinsson, TF3-Ø33 og Jónas Bjarnason, TF3JB heimsóttu Stefán með jeppakerru Baldvins þann 15. maí.

Það sem sótt var fyrri daginn (15. maí) var m.a. Texscan AL-4C Spectrum Analyzer 0-300 MHz; Icom IC-701 SSB/CW/RTTY 100W 160-10m (e. WARC) sendi-/móttökustöð; Icom IC-740 SSB/CW/RTTY 100W 160-10m (með WARC) sendi-/móttökustöð; og Yaesu Musen FT-101E SSB/CW 100W 160-10m (með WARC) sendi-/móttökustöð. Ýmsir aukahlutir, s.s. Icom IC-701PS aflgjafi með innbyggðum hátalara; Icom IC-RM2 stjórntölva (2 stk.) fyrir Icom IC-701, Icom IC-211 og Icom IC-745; Icom IC-EX1 (Extension Terminal); Icom IC-SM5 borðhljóðnemi; Icom AT-500 sambyggð sjálfvirk loftnetsaðlögunarrás fyrir 160-10 metra (m. WARC) og loftnetaskiptara; Yaesu Musen FV-101B External VFO; Kenwood S-599 hátalarakassi o.m.fl. Tækin verða listuð upp síðar.

Það sem sótt var síðari daginn (16. maí) var m.a. Yaesu Musen FT-7 SSB/CW 10W 80-10m (e. WARC) sendi-/móttkustöð. Töluvert af mælitækjum, íhlutum til smíða, aflgjafar, loftnetsaðlögunarrásir, bækur frá ARRL o.m.fl. Tækin verða listuð upp síðar. Sjá meðfylgjandi ljósmyndir.

Stjórn Í.R.A. þakkar Stefáni Þórhallssyni, TF3S, fyrir þessa rausnarlegu gjöf.



Það sem sótt var 15. maí komið í bráðabirgðageymslu í Skeljanesi. Spectrum Analyzer'inn er lengst til hægri.


Það sem sótt var 16. maí komið í bráðabirgðageymslu í Skeljanesi.


Við þetta tækifæri er ánægjulegt að rifja upp góða gjöf Stefáns sem hann færði félaginu í tilefni opnunar nýrrar
smíðaaðstöðu í Skeljanesi þann 23. mars 2010. Mælitæki sem komu í góðar þarfir og eru notuð enn í dag.


(Ljósmyndir: TF3JB).

Posted at 16 May @ 12:36 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/15
Ný kallmerki frá Póst- og fjarskiptastofnun.
Last changed: 15 May 2013 22:41 by TF2JB

Póst- og fjarskiptastofnunin, PFS hefur nýlega úthlutað eftirtöldum nýjum kallmerkjum.

Kallmerki Leyfi Leyfishafi/not Staðsetning stöðvar Skýringar
TF1MMN N-leyfi Magnús H. Vigfússon 800 Selfoss Stóðst N-próf til amatörleyfis 4.5.2013.
TF2R G-leyfi Sameiginleg stöð 311 Borgarbyggð Fyrra kallmerki: TF2RR.
TF3CE G-leyfi Árni Þór Ómarsson 109 Reykjavík Stóðst G-próf til amatörleyfis 4.5.2013.
TF3EO G-leyfi Egill Ibsen Óskarsson 104 Reykjavík Stóðst G-próf til amatörleyfis 4.5.2013.
TF3MHN N-leyfi Mathías Hagvaag 113 Reykjavík Stóðst N-próf til amatörleyfis 4.5.2013.
TF3R G-leyfi Sameiginleg stöð 201 Kópavogur Fyrra kallmerki: TF3RR.
TF3TKN N-leyfi Sigurður Árnason 111 Reykjavík Stóðst N-próf til amatörleyfis 4.5.2013.

Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með ný kallmerki.

___________

Kallmerki radíóamatöra

Kallmerkið er einkenni hverrar amatörstöðvar. Engar tvær stöðvar radíóamatöra í heiminum hafa sama kallmerki og er því sérhvert kallmerki einstakt. Öll íslensk kallmerki radíóamatöra byrja á TF sem er alþjóðlegt forskeyti fyrir Ísland samkvæmt úthlutun Alþjóða fjarskiptastofnunarinnar, ITU. Sem dæmi um forskeyti kallmerkja radíóamatöra í öðrum löndum, má nefna í OZ í Danmörku, LA í Noregi og LU í Argentínu.

Íslensk kallmerki eru yfirleitt á bilinu 4-6 stafir að lengd. Þau eru samsett úr forskeyti og síðan 1-3 persónubundnum bókstöfum (ath. að stafurinn N bætist aftan við tveggja bókstafa viðskeyti þegar um N-leyfi er að ræða). Landið skiptist í 10 kallsvæði, frá 0-9. Algengasti tölustafur í forskeytum íslenskra kallmerkja er tölustafurinn 3 (höfuðborgarsvæðið) annarsvegar, og tölustafurinn 8 (Suðurnes) hinsvegar. Þannig hafa flest íslensk kallmerki radíóamatöra forskeytin TF3 og TF8.

Uppbygging kallmerkja. Dæmi: TF3IRA. Forskeytið í kallmerkinu TF stendur fyrir Ísland. Tölustafurinn 3 (sem er hluti forskeytisins) hefur landfræðilega tilvísan og merkir að stöðin hafilögheimili á höfuðborgarsvæðinu. Viðskeytið IRA stendur fyrir Íslenskir radíóamatörar. Í sumum þjóðlöndum hefur tölustafur/tölustafir í forskeyti kallmerkis ekki landfræðilega skírskotun; þau lönd eru þó í minnihluta í heiminum.

Posted at 15 May @ 1:43 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/13
Heimboð til félagsmanna Í.R.A. á miðvikudag.
Last changed: 13 May 2013 12:32 by TF2JB


Mynd frá Tungubökkum í Mosfellsbæ sem tekin var í ágúst í fyrrasumar.

Flugmódelmenn bjóða félagsmönnum Í.R.A. á Hamranesflugvöll næstkomandi miðvikudagskvöld, þann 15. maí.
Veðurspáin lítur nokkuð vel út, en við erum auðvitað háðir veðri í módelflugi. Miðvikudagar eru klúbbkvöld á
flugvelli Þyts og þar erum við mættir um kvöldmatarleytið.

Hamranesflugvöllur er örskammt frá Hvaleyrarvatni fyrir ofan Hafnarfjörð. Tvær leiðir liggja þangað:

  • Aka í átt að Kaldársseli og beygja til hægri inn að Hvaleyrarvatni. Aka framhjá vatninu og síðan um 500 metra.
  • Aka Krísuvíkurveginn og beygja til vinstri skömmu eftir að komið er fram hjá gulu spennistöð Landsvirkjunar. Aka um 1000 metra í átt að Hvaleyrarvatni.

Umfjöllun hér: http://frettavefur.net/Forum/viewforum.php?id=2


Með góðri kveðju,

Ágúst H. Bjarnason, TF3OM.



Mynd frá Tungubökkum í Mosfellsbæ sem tekin var í ágúst í fyrrasumar.


(Ljósmyndir: TF3OM).

Posted at 13 May @ 12:17 PM by TF2JB | 0 Comments
Samráðsfundur með Póst- og fjarskiptastofnun.
Last changed: 13 May 2013 08:09 by TF2JB


Þátttakendur á samráðsfundi Í.R.A., IARU og IARU Svæðis 1 þann 7. maí. Frá vinstri: Hörður R. Harðarson,
sérfræðingur hjá PFS; Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar PFS; Kristján Benediktsson TF3KB;
Jónas Bjarnason TF3JB; Ole Garpestad LA2RR, varaforseti IARU; Hans Blondeel Timmerman PB2T, formaður
IARU Svæðis 1; Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA og Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur hjá PFS.

Sérstakur fundur fulltrúa Í.R.A. og fulltrúa IARU og IARU Svæðis 1, var haldinn í húsnæði stofnunarinnar að
Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík, þann 7. maí. Efnt var til fundarins að ósk fulltrúa IARU sem staddir voru hér
á landi sem gestir á fundi framkvæmdanefndar IARU Svæðis 1 helgina 4.-5. maí 2013.

Þeir Ole Garpestad, LA2RR, varaformaður IARU og Hans Blondeel Timmerman, PB2T, formaður IARU Svæðis 1
kynntu frumvarp IARU um nýtt amatörband á 60 metrum (5 MHz) sem verður lagt fyrir Alþjóðlega radíófjarskipta-
ráðstefnu ITU, WRC-15 (World Radiocommunication Conference) sem haldin verður í Genf í Sviss, 2.-27. nóvember
2015. Einnig var rætt almennt um tíðnimál radíóamatöra og EMC málefni. Fundurinn var mjög vinsamlegur.

Posted at 13 May @ 8:02 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/12
Vel heppnaður fimmtudagsfundur í Skeljanesi.
Last changed: 12 May 2013 22:57 by TF2JB


TF3JA ræddi hugmyndir starfshóps Í.R.A. að neyðarfjarskiptastefnu félagsins í Skeljanesi þann 2. maí.

Síðasti viðburðurinn á vetrardagskrá Í.R.A. að þessu sinni fór fram í félagsaðstöðunni í Skeljanesi þann 2. maí.
Það var kynning starfshóps Í.R.A. um mótun neyðarfjarskiptastefnu fyrir félagið. Jón Þóroddur Jónsson, neyðar-
fjarskiptastjóri Í.R.A. hafði orð fyrir hópnum og kynnti hugmyndir hans og svaraði spurningum.

Hugmyndir starfshópsins hafa nú verið formgerðar og eru þær kynntar hér á eftir, samkvæmt skýrslu hópsins til
stjórnar Í.R.A. sem afhent var þann 12. maí.

Stjórn Í.R.A. þakkar starfshópnum fyrir skýrsluna.

__________


STARFSHÓPUR Í.R.A. UM GERÐ TILLÖGU NEYÐARFJARSKIPTASTEFNU Í.R.A.

Skýrsla starfshópsins til stjórnar; 12. maí 2013.

Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA, neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A., formaður.
Sigurður Óskar Óskarsson, TF2WIN, fulltrúi stjórnar.
Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI.
Henry Arnar Hálfdánarson, TF3HRY.
Jón Svavarsson, TF3JON.
Jónas Friðgeirsson, TF3JF.

Neyðarfjarskiptahópurinn leggur til að eftirfarandi tillaga verði lögð fyrir næsta aðlalfund ÍRA og falli undir þá grein sem fjallar um starfsemi og verkefni félagsins.

Radíóamatörar í neyðarfjarskiptum.
Radíóamatörar taka í sívaxandi mæli þátt í neyðarfjarskiptaþjónustu um allan heim og er í dag sá þáttur í starfssemi radíóamatöra sem vex hvað mest. Amatörradíó.. byggir ekki á neinu kerfi eða tengingum um önnur kerfi,...er óháð öllum raforkukerfum og fjarskiptastrengjakerfum og er þess vegna ein besta leiðin til neyðarfjarskipta. GSM kerfin, TETRA öryggisfjarskiptakerfin og þráðlausu internetin eru radíókerfi sem henta vel til neyðarfjarskipta, en þau byggja á stöðvum, möstrum og millitengingum sem geta skemmst í náttúruhamförum eða af mannavöldum og ná þess vegna aldrei því að vera algerlega óháð eins og amatörradíó er. Þegar símakerfin verða óvirk og og rafmagnið fer af öllu er eftir sem áður hægt að koma á sambandi um amatörradó sem tengt er við rafgeymi, rafhlöðu eða vararafstöð. Þetta fjölhæfi amatörradíófjarskiptanna hefur gegnum tíðina bjargað mörgum mannslífum. Amatörradíóið nær í gegn þó allt annað bregðist.

Neyðarfjarskiptahópur ÍRA.
Innan ÍRA er starfar neyðarfjarskiptahópur sem er tilbúinn að koma á fjarskiptum hvar sem er á landinu með stuttum fyrirvara ef önnur fjarskipti bregðast. Til þess hefur hópurinn aðgang að amatörum og búnaði þeirra víða um landið og mun á næstu árum vinna að því að til verði amatörar og búnaður sem víðast á landinu. Í hópnum eru þeir amatörar sem á hverjum tíma vilja og og áhuga á að starfa að neyðarfjarskiptamálum. Hópurinn starfar með neyðarfjarskiptastjóra félagsins og hefur aðgang að öllum tækjum og búnaði í eigu félagsins til að sinna sínu hlutverki. Hópurinn velur sér talsmann úr sínum röðum og heldur skrá yfir þá sem vilja tilheyra hópnum á hverjum tíma.

Skrá yfir amatöra og búnað.
Hópurinn stefnir að því að setja saman skrá yfir búnað og getu sem flestra radíóamatöra til að sinna neyðarfjarskiptum.

Stöð félagsins í Skeljanesi.
Hópurinn stefnir að því að aðstoða stöðvarstjóra félagsins við að byggja upp og reka fjarskiptastöð félagsins í Skeljanesi á öllum böndum og mótunarháttum sem amatörar hafa leyfi til að nota.

VHF endurvarpi í Reykjavík.
Hópurinn stefnir að samvinnu við félagið um einn VHF endurvarpa staðsettan þannig á Reykjavíkursvæðinu að til hans náist án millistöðva frá völdum stöðum á Suðurlandi, úr Borgarfirðinum og einnig frá Stykkishólmi ef unnt er.

Kynning og samskifti við neyðar- og björgunaraðila.
Hópurinn stefnir að kynningu á radíóamatörum og að ýta fleirum út í áhugamálið sér í lagi ungu fólki, taka upp samvinnu við Radíóskáta og 4x4 og að taka upp regluleg samskifti við neyðaraðila á Íslandi. Hópurinn mun leggja fyrir næsta aðalfund ÍRA frekari tillögu um framhaldið og reynsluna af fyrsta árinu.

Posted at 12 May @ 10:41 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/08
Sólríkur sunnudagsfundur í Skeljanesi.
Last changed: 08 May 2013 12:28 by TF2JB


Erlendu gestirnir ásamt félagsmönnum Í.R.A. fyrir utan félagsaðstöðuna í Skeljanesi sunnudaginn 5. maí.

Framkvæmdanefnd IARU Svæðis 1 hélt stjórnarfund sinn árið 2013 í Reykjavík, helgina 4.-5. maí. Í tilefni fundarins sýndu nefndarmenn áhuga á að hitta félagsmenn Í.R.A. eftir stjórnarfundinn, síðdegis á sunnudag. Í ljósi þessa var ákveðinn óformlegur fundur í félagsaðstöðunni í Skeljanesi á milli kl. 15 og 17 sunnudaginn 5. maí. Rúmlega 20 manna hópur þeirra (að meðtöldum mökum) mætti síðan í Skeljanes og fór vel á með félagsmönnum Í.R.A. og gestunum; en nær 30 félagsmenn Í.R.A. mættu á staðinn og þáðu veitingar. Auk framkvæmdanefndarmanna IARU Svæðís 1, mættu varaforseti IARU og formaður IARU Svæðis 2 í Skeljanes, þeir Ole Garpestad, LA2RR og Renaldo Leandro, YV5AM en Timothy S. Ellam, VE6SH, forseti IARU komst ekki þar sem hann þurfti að taka flug til Evrópu síðdegis sama dag.

Stjórn Í.R.A. þakkar ánægjulega samveru með gestum og félagsmönnum þennan sólríka sunnudag í Skeljanesi.



Jónas Bjarnason TF3JB formaður Í.R.A. og Hans Blondeel Timmerman PB2T formaður IARU Svæðis 1.
Hans færði formanni Í.R.A. þessa hollensku tréskó að gjöf en þeir eru þjóðartákn Hollendinga.


Andrés Þórarinsson varaformaður Í.R.A. ásamt Ole Garpestad LA2RR, varaforseti IARU, alheimssamtaka
landsfélaga radíóamatöra og eiginkonu hans, Karin Margot Garpestad, LA8UW.


(Ljósmyndir: Jón Svavarsson, TF3JON).

Posted at 08 May @ 11:52 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/06
Lokað í Skeljanesi fimmtudaginn 9. maí.
Last changed: 06 May 2013 00:13 by TF2JB

Ákveðið hefur verið að félagsaðstaða Í.R.A. við Skeljanes verði lokuð fimmtudaginn 9. maí n.k., sem er
uppstigningardagur.

Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 16. maí n.k.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Posted at 06 May @ 12:07 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/05
Próf til amatörleyfis fór fram laugardaginn 4. maí.
Last changed: 05 May 2013 23:53 by TF2JB


Hluti þátttakenda í prófi PFS til amatörleyfis sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 4. maí 2013.

Próf til amatörleyfis fór fram á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 4. maí.
Prófið var tvískipt, annarsvegar í undirstöðuatriðum í raffræði og radíótækni og hins vegar í reglugerð og viðskipt-
um. Alls þreyttu 11 þátttakendur fyrri hluta prófsins. Þar af náðu 5 fullnægjandi árangri til G-leyfis og 4 fullnægjandi
árangri til N-leyfis. Alls þreyttu 6 þátttakendur síðari hluta prófsins og náðu allir árangi til G-leyfis; (en aðrir höfðu
lokið þeim hluta með tilskyldum lágmarksárangri áður). Meðalaldur þátttakenda var 45 ár.

Prófnefnd Í.R.A. annaðist undirbúning prófs og framkvæmd að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.
Prófið var skriflegt og var að þessu sinni haldið í framhaldi af námskeiði félagsins til amatörprófs sem fram fór í
Háskólanum í Reykjavík á tímabilinu frá 12. febrúar til 3. maí s.l.

Fulltrúi Póst- og fjarskiptastofnunar: Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur.
Ábyrgðarmaður Í.R.A.: Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, formaður prófnefndar.
Aðrir prófdæmendur: Sigurður Smári Hreinsson, TF8SM, prófnefnd Í.R.A.; Vilhjálmur Í. Sigurjónsson TF3VS,
prófnefnd Í.R.A. og Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður Í.R.A.
Reglugerð og viðskipti: Þór Þórisson, TF3GW.



Úrlausnir yfirfarnar eftir prófið þann 4. maí. Frá vinstri: Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur hjá PFS; Sigurður Smári
Hreinsson TF8SM, prófnefnd Í.R.A.; Þór Þórisson TF3GW, Reglugerð og viðskipti; Vilhjálmur Þór Kjartansson
TF3DX, formaður prófnefndar Í.R.A. og Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson TF3VS, prófnefnd Í.R.A.


(Ljósmyndir: Jónas Bjarnason, TF3JB).

Posted at 05 May @ 8:54 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/03
Sunnudagsfundur verður í Skeljanesi.
Last changed: 08 May 2013 09:41 by TF2JB


Framkvæmdanefnd IARU Svæðis 1 á stjórnarfundi í Reykjavík í gær, 4. maí 2013. Frá vinstri: ZS4BS, G3PSM,
OE1MCU, DL9KCE, PB2T, HB9JOE, LA2RR, LZ1US, VE6SH, SM6CNN, 9A5W, DK4VW og YV5AM. Ljósmynd:
HB9ELF.

Framkvæmdanefnd IARU Svæðis 1 heldur árlegan stjórnarfund sinn í Reykjavík helgina 4.-5. maí. Í tilefni þessa
viburðar, verður opið hús í félagsaðstöðunni í Skeljanesi sunnudaginn 5. maí frá kl. 15:00. Um er að ræða
óformlegan viðburð þar sem erlendir gestir okkar munu kynna í stuttu máli það helsta sem er að gerast á
alþjóðavettvangi í málefnum radíóamatöra.

Stjórnarmenn IARU Svæðis 1: Hans Blondeel Timmerman, PB2T, formaður; Hani Raad, OD5TE, varaformaður;
Dennis Green, ZS4BS, ritari; Andreas Thiemann, HB9JOE, gjaldkeri; Panayot Danev, LZ1US, meðstjórnarndi;
Nikola Per?in, 9A5W, meðstjórnandi; Colin Thomas, G3PSM, meðstjórnandi; Thilo Kootz, DL9KCE, meðstjórn-
andi og Anders Larsson, SM6CNN, meðstjórnandi. Auk framkvæmdanefndarmanna IARU Svæðis 1, sitja fundinn
þeir Timothy S. Ellam, VE6SH, forseti IARU, alþjóðasamtaka landsfélaga radíóamatöra, Ole Garpestad, LA2RR,
varaforseti og Reinaldo Leandro, YV5AM, formaður IARU Svæðis 2.

Félagsmenn eru hvattir til að líta við í Skeljanesi. Kaffiveitingar.

Fyrir hönd stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Posted at 03 May @ 1:14 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/05/01
TF2CW í 3. sæti og TF4X í 15. sæti yfir Evrópu.
Last changed: 02 May 2013 08:15 by TF2JB


TF2CW keppti sem TF2CW frá QTH TF2LL í Norðtungu III í Þverárhlíð í Borgarfirði.

Í maíhefti CQ tímaritsins 2013 eru birtar niðurstöður úr morshluta CQ World-Wide DX keppninnar sem
fram fór dagana 24. - 25. nóvember 2012. Þátttaka var allgóð frá TF og sendu fimm stöðvar inn keppnis-
dagbækur. Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, náði afburðaárangi í sínum keppnisflokki (sem TF2CW) og
varð í 3. sæti yfir Evrópu og handhafi bronsverðlauna. TF4X náði jafnframt mjög góðum árangri í
sínum keppnisflokki og varð stöðin í 15. sæti yfir Evrópu. Þessi niðurstaða er afspyrnu góð hjá báðum
stöðvum, m.a. með tilliti til óhagstæðra fjarskiptaskilyrða, einkum fyrri hluta keppninnar.


Keppendur frá TF4X í Otradal í Vesturbyggð: G3SWH, TF3DC, WA6O, UA3AB, TF3Y, N3ZZ og TF4M.


Niðurstöður fyrir TF stöðvar í keppninni eru birtar í töflunni.

Kallmerki Keppnisflokkur Árangur, stig QSO Svæði DXCC
TF3DX/M Einmenningsflokkur, öll bönd, lágafl
119,316
303
62
121
TF2CW Einmenningsflokkur, 14 MHz, háafl, aðstoð
1,012,662
3010
38
124
TF3SG Einmenningsflokkur, 3,5 MHz, háafl, aðstoð
30,552
401
13
63
TF3VS Einmenningsflokkur, öll bönd, lágafl, aðstoð
23,912
149
27
71
TF4X Fleirmenningsflokkur, öll bönd, háafl
8,344,464
7552
132
529

Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði R. Jakobssyni, TF3CW, innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur,
og Þorvaldi Stefánssyni, TF4M og þeim sem tóku þátt frá TF4X, svo og öðrum íslenskum þátttakendum
í keppninni.


Ljósmyndir:
Efri mynd: Björg Óskarsdóttir (XYL TF3CW).
Neðri mynd: Þorvaldur Stefánsson, TF4M.

Posted at 01 May @ 7:34 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/04/30
Radíódót fæst gefins í kvöld...
Last changed: 02 May 2013 09:48 by TF2JB


Jeppakerran að fyllast. Ljósmyndin var tekin í morgun, fimmtudaginn 2. maí.

Sigurður Harðarson, TF3WS, félagi okkar, er að fylla stóra jeppakerru af margskonar notuðu radíódóti, sem
félagsmönnum Í.R.A. mun standa til boða koma, skoða, gramsa í og hirða - fyrir utan félagsaðstöðuna í
Skeljanesi í kvöld, þ.e. fimmtudaginn, 2. maí frá kl. 19:30.

Það sem m.a. verður í boði: Allskyns gamlar talstöðvar, spennugjafar, prentplötur með íhlutum og aukahlutir
fyrir fjarskiptatæki. Einnig nýrri talstöðvar (þ.á.m. handstöðvar) og margt fleira dót. Fyrstur kemur, fyrstur fær!

Miðað er við að menn getið "gramsað" allt til kl. 20:30 en þá mun Sigurður flytja kerruna frá Skeljanesi, til að trufla
ekki kynningarfund starfshóps Í.R.A. um neyðarfjarskipti sem byrjar dagskrá sína í félagsaðstöðunni kl. 20:30.

Fyrirvari er gerður um veður, þ.e. ef mikil úrkoma verður þarf að fresta viðburðinum.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.


(Ljósmynd: TF3WS).

Posted at 30 Apr @ 7:54 PM by TF2JB | 0 Comments
  2013/04/28
Próf til amatörleyfis verður haldið 4. maí.
Last changed: 29 Apr 2013 15:38 by TF2JB


Mynd úr nýlegu prófi Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis.

Próf Póst- og fjarskiptastofnunar til amatörleyfis verður haldið laugardaginn 4. maí 2013 í Háskólanum í
Reykjavík. Prófið hefst stundvíslega kl. 10 árdegis í kennslustofu M122. Hafa skal meðferðis blýanta, strok-
leður, reglustiku og reiknivél sem ekki getur geymt gögn. Önnur gögn eru ekki leyfð.

Prófið er í tveimur hlutum: Amatörpróf í undirstöðuatriðum raffræði og radíótækni. Það er í 30 liðum. Lágmarks-
einkunn 4,0 gefur rétt til N-leyfis og 6,0 til G-leyfis. Próf í reglugerð og viðskiptum: Það er í 20 liðum. Lágmarks-
einkunn 6,0 gefur rétt til G-leyfis og 4,0 til N-leyfis. Prófnefnd Í.R.A. semur prófin (þó ekki próf í reglugerð og
viðskiptum) en annast framkvæmd prófhalds, að viðstöddum fulltrúa Póst- og fjarskiptastofnunar.

Að jafnaði eru prófin dæmd og bráðabirgðaeinkunn gefin í framhaldi af prófhaldinu, gjarnan 2–3 klst síðar. Þá fer
fram prófsýning í skólanum ef aðstæður og þátttaka leyfir. Endanleg staðfesting niðurstöðu liggur hjá Póst- og
fjarskiptastofnun. Standast þarf báða hluta prófs til leyfis. Árangur í hvoru prófi stendur framvegis, óháð gengi í
hinu prófinu.

Fyrirspurnum má beina til Vilhjálms Þórs Kjartanssonar, TF3DX, formanns prófnefndar. Veffang: villik(hjá)hi.is

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Vefslóð á vefsíðu prófnefndar Í.R.A. á heimasíðu félagsins:
http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=688405

Posted at 28 Apr @ 11:45 AM by TF2JB | 0 Comments
  2013/04/27
Aðalfundur Í.R.A. 2013 verður haldinn 18. maí.
Last changed: 27 Apr 2013 17:45 by TF2JB

Með tilvísan til 16. gr. félagslaga er hér með boðað til aðalfundar Í.R.A. laugardaginn 18. maí 2013.
Fundurinn verður haldinn í Snæfelli, fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og
hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er samkvæmt félagslögum.

Samkvæmt ákvæði í 27. gr. laganna þurftu tillögur að lagabreytingum að berast stjórn félagsins fyrir
15. apríl s.l. Með tillögum að breytingum skyldu fylgja skriflegar greinargerðir þar sem gerð var grein
fyrir ástæðum tillagnanna og væntanlegum áhrifum þeirra. Kynning á ákvæði 27. gr. var birt á heima-
síðu félagsins og póstlista þann 26. mars s.l.

Frumvörp til lagabreytinga á aðalfundi 2013 sem bárust stjórn fyrir tilskilinn frest er dreift með þessu
aðalfundarboði. Um er að ræða tvenn frumvörp til lagabreytinga og eru þau birt neðar á þessari síðu
til kynningar.

Ofangreindu til staðfestingar,

F.h. stjórnar,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.


Tvenn frumvörp til lagabreytinga bárust til stjórnar félagsins fyrir tilskilinn lokadag, þann 15. apríl s.l.

Annarsvegar er tillaga Sæmundar E. Þorsteinssonar, TF3UA og Kjartans H. Bjarnasonar, TF3BJ, um breytingu á: 14. grein. Hinsvegar tillaga Jóns Þórodds Jónssonar, TF3JA, um breytingar á 1. grein, 2. grein, 3. grein og 27. grein

Í 16. grein, segir m.a.: „Fundarboð skal birta eða póstleggja eigi síðar en þrem vikum fyrir fundardag“. Í 27. gr. félagslaga segir m.a.: „Félagslögum verður aðeins breytt á aðalfundi, enda hafi frumvarp að nýjum eða breyttum greinum borist stjórn félagsins fyrir 15. apríl og verið dreift með aðalfundarboði“. Ennfremur segir í greininni: „Með tillögum að breytingum skal fylgja skrifleg greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntum áhrifum þeirra“.

Ofangreind tvö frumvörp til breytingar á lögum félagsins fylgja hér á eftir eins og þau bárust til félagsins.


TILLAGA TF3UA OG TF3BJ TIL LAGABREYTINGAR

14. gr.
Stjórn boðar til almennra félagsfunda. Henni er skylt að gera það ef 12 leyfishafar hið minnsta æskja þess. Félagsfundi skal ætíð halda seinnipart laugardags sé þess nokkur kostur. Boða skal til félagsfunda með a.m.k. viku fyrirvara nema í algerum neyðartilfellum. Rita skal fundargerð félagsfundar og birta með sama hætti og fundargerð aðalfundar.

14. grein eftir breytingu:
Stjórn boðar til almennra félagsfunda. Henni er skylt að gera það ef 12 leyfishafar hið minnsta æskja þess. Stjórn skal leitast við að gefa félagsmönnum búsettum á landsbyggðinni kost á því að taka þátt í félagsfundum á Internetinu. Boða skal til félagsfunda með a.m.k. viku fyrirvara nema í algerum neyðartilfellum. Félagsmenn á landsbyggðinni skulu tilkynna stjórn um áhuga sinn á því að fylgjast með félagsfundi á Internetinu innan tveggja daga frá boðun fundarins. Rita skal fundargerð félagsfundar og birta með sama hætti og fundargerð aðalfundar.

Greinargerð:
Breytingar þjóðfélagshátta undanfarin ár hafa valdið því að menn eru orðnir mjög tregir til fundahalda á laugardögum. Það er því afar óhentugt fyrir ÍRA að hafa félagslög sem mæla fyrir um að félagsfundi megi aðeins halda seinni hluta laugardags. Ástæða þessarar klásúlu er sú að gefa félagsmönnum úti á landi kost á því að sækja félagsfundi. Með þeirri tækni til fjarfundahalda sem nú býðst er auðvelt að senda út félagsfundi á internetinu, jafnvel með gagnvirkum hætti. Má t.d. benda á Skype sem lausn en fjölmargar aðrar eru fyrir hendi. Þannig gætu íbúar landsbyggðarinnar fylgst með og tekið þátt í félagsfundum án þess að þurfa að fara að heiman. Hlýtur slíkt að teljast þeim til hagsbóta. Eftir breytinguna verður hægt að halda félagsfundi t.d. á fimmtudagskvöldum sem verður að teljast mun betri tímsetning en seinni hlutar laugardaga.

Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA.
Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ.


TILLAGA TF3JA TIL LAGABREYTINGA

1., 2., 3. og 27. grein verði:

1. gr.
Heiti félagsins er "Íslenskir radíóamatörar", ÍRA.
Félagið er íslensk deild í alþjóðasamtökum radíóamatöra, IARU Region 1, og norrænum samtökum radíóamatöra, NRAU.

2. gr.
Heimili félagsins er í Reykjavík. Póstfang ÍRA er „Pósthólf 1058, 121 Reykjavík“.

3. gr.
Markmið félagsins er að:
1. Gæta hagsmuna radíóamatöra.
2. Efla kynningu og samstarf meðal radíóamatöra innanlands og utan.
3. Stuðla að færni félagsmanna og góðum venjum í radíóviðskiptum.
4. Hvetja til viðbúnaðar og þáttöku í neyðarfjarskiptum bæði innan lands og utan.
5. Efla amatörradíó sem leið til tæknilegrar og samfélagslegrar sjálfsþjálfunar.
6. Hvetja til tæknilegra og vísindalegra rannsókna og uppgötvana á sviði radíófjarskipta.
7. Örva radíóíþróttir meðal radíóamatöra.
8. Þróa amatörradíó sem verðmæta þjóðarauðlind.
9. Stuðla að öflugri æskulýðsstarfsemi og kynningu á amatörradíói á meðal ungs fólks.
10. Eiga og reka fullkomna amatörradíófjarskiptastöð með kallmerkinu TF3IRA á sem flestum tíðnum og samskiptaháttum sem radíóamatörar hafa leyfi til að nota.

27. gr.
Félagslögum verður aðeins breytt á aðalfundi. Tillaga að breytingu á lögum berist stjórn félagsins ekki síðar en viku fyrir boðaðan aðalfund. Aðalfundur getur samþykkt tillögur um breytingar á félagslögum, sem lagðar eru fram á fundinum með samþykki tveggja þriðju hluta greiddra atkvæða.

Greinarnar voru:

1. gr.
Heiti félagsins er "Íslenskir radíóamatörar", skammstafað Í.R.A. Félagið er hin íslenska deild í alþjóðasamtökum radíóamatöra, I.A.R.U. Region 1, og norrænu samtökunum N.R.A.U.

2. gr.
Heimili félagsins er í Reykjavík með póstfang: Pósthólf 1058, 121 Reykjavík.

3. gr.
Markmið félagsins eru að:
1. Gæta hagsmuna radíóamatöra í hvívetna.
2. Efla kynningu og samstarf meðal radíóamatöra innanlands og utan.
3. Stuðla að færni félagsmanna og góðum venjum í radíóviðskiptum.
4. Hvetja til viðbúnaðar sem mætti gagnast í neyðarfjarskiptum.
5. Efla amatörradíó sem leið til sjálfsþjálfunar á tæknisviðinu.
6. Hvetja til tæknilegra og vísindalegra rannsókna og uppgötvana á sviði radíófjarskipta.
7. Örva radíóíþróttir meðal radíóamatöra.
8. Þróa amatörradíóþjónustuna sem verðmæta þjóðarauðlind.
9. Stuðla að öflugri æskulýðsstarfsemi og kynningu á amatörradíói á meðal ungs fólks.

27. gr.
Félagslögum verður aðeins breytt á aðalfundi, enda hafi frumvarp að nýjum eða breyttum greinum borist stjórn félagsins fyrir 15. apríl og verið dreift með aðalfundarboði. Þó getur aðalfundur samþykkt breytingar á félagslögum, sem fram koma á fundinum, séu 88% fundarmanna samþykkir. Breytingartillögur sem fram koma á aðalfundi skulu einungis varða þær tillögur er þar liggja fyrir og nauðsynlegar afleiðingar þeirra. Með tillögum að breytingum skal fylgja skrifleg greinargerð þar sem gerð er grein fyrir ástæðum tillagnanna og væntum áhrifum þeirra. Sé ætlunin að lagabreyting hafi víðtækari áhrif en eingöngu á félagslögin sjálf, svo sem ógildi sérstakar aðalfundarályktanir eða sérstakar samþykktir fyrri aðalfunda skal sérstaklega vísað til þeirra í viðkomandi breytingartillögu og greinargerð.


Hvers vegna er ég að leggja til þessar breyttu greinar og hver er helsta breytingin?

Ég legg til að púnktarnir í skammstöfunum verð felldir niður eins og oftlega hefur komið fram enda er það líka í samræmi við „Ritreglur Íslenskrar málnefndar“. Ég legg til að markmið félagsins verði umorðuð lítillega og bætt við að félagið eigi og reki fullkomna fjarskiptastöð til fjarskipta á amatörtíðnum. Félagið á og rekur nú þegar fullkomna stöð en hennar er hvergi getið í lögum félagsins. Það er mitt mat að lög félagsins eigi að vera kvik og þess vegna óþarfi að gera félagsmönnum næstum ókleyft að leggja fram tillögur að breytingum. Félagsmenn sem vilja tryggja stöðugleika en um leið nýjungar og þróun í starfsemi félagsins mæta á aðalfundinn og taka þátt.

Posted at 27 Apr @ 5:22 PM by TF2JB | 0 Comments