ÍRA Zone 40 Award



Veftré og leit

Í.R.A. Awards Manager

Brynjólfur Jónsson, TF5B (Email)
P.O. Box 121
IS-602 Akureyri
Iceland

ÍRA Zone 40 Award

Reglur fyrir ÍRA Zone 40 Award

Þetta heiðursskjal stendur til boða öllum radíóamatörum og hlusturum. Heiðursskjalið er prentað fyrir hvern umsækjanda á 106 g/m² 210 x 297 mm sérstakan bleksprautupappír í þremur litum: bláum, rauðum og svörtum. Heiðursskjal þetta var fyrst gefið út í apríl 1994 og var fyrsti umsækjandi LAØBX, Sigfús Jónsson frá Noregi.

  1. Heiðursskjalið stendur til boða öllum amatörleyfishöfum og hlusturum.
  2. Það eru engin tímatakmörk á samböndum.
  3. Það eru engin takmörk á tíðnum, en öll samböndin verða að vera með sömu mótun til að hljóta heiðusskjalið, þ.e.a.s. 2XCW, 2XSSB eða 2XRTTY og svo frv. Séu öll samböndin á sömu tíðni verður Skjalið uppfært sem slíkt sé um það beðið.
  4. Kröfur:
    • Staðfest sambönd við hvert eftir talinna DXCC landa sem eru í CQ-ZONE 40: Ísland (TF), Grænland (OX), Jan Mayen (JX), Svalbarða (JW) og Frans Josef Land (R1FJ).
    • DX-stöðvar: Eitt staðfest samband við hvert land (Samtals 5 sambönd).
    • EU-stöðvar: Sama og DX nema að sambönd við 3 mismunandi íslenskar stöðvar eru skilyrði (samtals 7 sambönd).
    • TF-stöðvar: Sama og DX nema að sambönd við 15 mismunandi íslenskar stöðvar eru skilyrði (samtals 19 sambönd).
    • ATHUGIÐ: Sambönd við stöðvar sem eru /TF, TF/, /OX, OX/ og svo frv. gilda ekki fyrir þetta Heiðursskjal.
  5. GCR listi, staðfestur af tveimur amatörleyfishöfum eða stjórnarmanni í amatörfélagi staðarinns (í okkar tilfelli Í.R.A.) verður að fylgja umsókn. Listinn verður að sýna unna stöð, dagsetningu, ár, tíma, tíðni, styrk og læsileika merkis og mótun. Heiðursskjalastjóri Í.R.A. áskilur sér þann rétt að QSL kort verði lögð fram telji hann þess þörf.
  6. Fyrsta skjalið sem gefið er út til hvers DXCC lands verður uppfært sem slíkt.
  7. Gjald fyrir heiðursskjalið "IRA ZONE-40 AWARD" er 8 IRCar eða jafngildi þeirra í Íslenskum krónum á hverjum tíma.
Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.