TF3IRA að fullu QRV á ný á 14-52 MHz.


Sumarmynd af SteppIR 3E 3 staka Yagi loftnet TF3IRA þann 1. ágúst 2012. Ljósmynd: TF3JB.

Í dag var unnið við að forrita "stoppið" á AlfaSpid rótor félagsins, sem snýr SteppIR 3E Yagi loftneti
félagsstöðvarinnar, TF3IRA. Yngvi Harðarson, TF3Y, annaðist verkefnið, sem tókst vel. Að auki var
farið yfir aðrar stillingar rótors og loftnets. Stöðin er nú að fullu QRV á sex böndum á ný, þ.e. 14, 17,
21, 24, 28 og 50 MHz.

Líkt og fram kom í frásögn af lokaviðgerð rótorsins sem TF3CY annaðist og lauk s.l. fimmtudag, þá
þarf að fella turninn á næstunni til að vatnsverja rótorhúsið, enda Atlandshafið aðeins örfáa metra frá
loftnetsturninum. Í vettvangsskoðun í dag kom ennfremur í ljós, að hluti bómunnar, þ.e. frá "drifna"
stakinu að "reflectornum" virðist vera snúin. Þetta má sjá glögglega á meðfylgjandi ljósmynd af loft-
netinu (sjá stakið sem er fjærst).

Í gær barst síðan staðfesting frá SteppIR, vegna pöntunar á sérstökum "High-wind" festingum fyrir
loftnetið, sem samþykkt var að kaupa á stjórnarfundi í félaginu s.l. fimmtudag. Að sögn Erlings
Guðnasonar, TF3EE, sem annaðist pöntunina, er þess að vænta að festingarnar berist til landsins
innan mánaðar.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Yngva Harðarsyni, TF3Y og Erling Guðnasyni, TF3EE, fyrir þeirra ágætu
aðkomu að þessu verkefni.

Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.