Turnefni til ráðstöfunar fyrir TF3IRA.


Umræddar turneiningar eru geymdar á milli húss og bárujárnsveggjar í Skeljanesi. Ljósmynd: TF2JB.

Um nokkurn tíma hefur félaginu staðið til boða að fá til ráðstöfunar turneiningar og annað loftnetaefni
sem upphaflega var í notkun á Rjúpnahæð. Guðmundur Sveinsson, TF3SG, auglýsti eftir aðstoð á
póstlista félagsins þann 5. júní s.l., með það í huga að sækja þetta efni þegar ljóst var að vel búin
vörubifreið (með krana) á vegum G. Svans Hjálmarssonar, TF3FIN, stæði félaginu til boða þann 7. júní.

Það varð síðan úr, kl. 19 fimmtudaginn 7. júní að turneiningarnar voru sóttar og fluttar í Skeljanes. Sá
þriðji sem slóst í hópunn, auk þeirra TF3SG og TF3FIN, var Benedikt Sveinsson, TF3CY. Verkefnið
gekk rösklega og upp úr kl. 21:30 voru einingarnar 12 komnar á geymslustað í Skeljanesi.

Hugmyndin er í framhaldi, að reisa annan loftnetsturn fyrir TF3IRA, nokkru fjær þeim fyrri, á lóðinni
við húsið í Skeljanesi og hafa menn þá einkum í huga uppsetningu loftneta fyrir lægri böndin.

Stjórn Í.R.A. færir þeim Guðmundi Sveinssyni, TF3SG, G. Svani Hjálmarssyni, TF3FIN og Benedikt
Sveinssyni, TF3CY, bestu þakkir fyrir framtakið.

Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.