Benedikt Sveinsson TF3CY. Myndin er tekin í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmynd: TF2JB.
Síðasta erindið á yfirstandandi vetrardagskrá Í.R.A. verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi
fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Benedikt Sveinsson, TF3CY, mun fjalla um RF magnara
fyrir tíðnir radíóamatöra. Í erindinu mun hann m.a. fjalla um magnara sem búnir eru lampaútgangi
og bera saman við magnara sem búnir eru transistorútgangi, auk þess að koma inn á heimasmíðar.
Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30 og hvetur stjórn Í.R.A. félagsmenn til að mæta tímanlega.
Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.