
Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX.
Næsta fimmtudagserindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið í Skeljanesi fimmtudaginn
15. mars kl. 20:30. Fyrirlesari kvöldsins er Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX og nefnist erindið:
Hvernig reiknar IARU forritið sviðsstyrk og öryggismörk amatörsendinga?
Vilhjálmur mun kynna uppfærða útgáfu ICNIPRcalc forrits IARU Svæðis 1 sem nefnist ICNIRPcalc
V1.01 sem nú er boðið á ensku, frönsku og þýsku. Auðvelt er að setja ýmsar breytur inn í forritið,
m.a. tíðni, tegund loftnets, mismunandi afl og láta forritið reikna örugga fjarlægð frá loftneti í sendingu
og mun Vilhjálmur taka fyrir dæmi og skýra raunverulegar aðstæður.
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar eru í boði félagsins.
Sækja má nýju V1.01 útgáfuna á eftirfarandi vefslóð: