|
Upplýsingar: TF7X IOTA keppnin 2010
QTH IOTA hópsins á Heimaey. Alþjóðlega IOTA keppnin er sólarhringskeppni og var að þessu sinni haldin 24.-25. júlí 2010. Starfsemin frá TF7X í Vestmannaeyjum var í boði Radíóklúbbs Reykjaness. Guðlaugur Kristinn Jónsson, TF8GX, var ábyrgðarmaður stöðvarinnar, auk þess að skipuleggja og taka þátt í keppninni á 1. borði á morsi frá TF7X. |