Guðmundur Löve, TF3GL.

Guðmundur Löve, TF3GL, flytur næsta fimmtudagserindi á vetrardagskrá Í.R.A. þann 26. janúar n.k. kl. 20:30. Umræðuefnið er: VHF leikar 2012; möguleikar á VHF/UHF samböndum; og sögur og staðreyndir um útbreiðslu merkja í þessum tíðnisviðum.

Í grein sem Guðmundur ritar í janúarhefti CQ TF 2012 segir hann meðal annars: TF VHF-leikarnir eru hugarfóstur áhugamanna um langdræg VHF-fjarskipti, en draga dám af sambærilegum leikum sem mikilla vinsælda njóta í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. VHF-leikarnir eru leikar – en ekki keppni, þótt stigafjöldi geti vissulega verið mælikvarði á ástundun, búnað, útsjónarsemi og heppni!

Í greininni eru settar fram áhugaverðar tillögur að leikreglum og keppnistilhögun. Guðmundur segir ennfremur, að tilgangur leikanna sé að örva áhuga og hæfni íslenskra radíóamatöra hvað varðar notkun VHF- og UHF-tíðnisviðanna og eflingu slíkra fjarskipta innanlands. Jafnframt er hugmyndin
að leikarnir geti verið mönnum til nokkurrar ánægju við sameiningu útivistar, ferðalaga og amatör
radíós.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagsins.

Georg Magnússon TF2LL flutti erindi 5. janúar um loftnetaframkvæmdir við stöð sína í Borgarfirði. Ljósmynd: Jón Svavarsson, TF3LMN

Skyggnur frá fimmtudagserindi Georgs Magnússonar, TF2LL, frá 5. janúar s.l., hafa verið settar inn á heimasíðu félagsins. Erindið nefndist Loftnetsframkvæmdir hjá TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði sumarið 2010. Þar útskýrði Georg m.a. ítarlega forsendur fyrir vali á loftnetum, rótor, fyrir turnsmíðinni sjálfri og vali á öðrum nauðsyn legum aukabúnaði.

Power Point skyggnur sem fylgja erindu má nálgast á eftirfarandi vefslóð: http://www.ira.is/itarefni/

Andrés Þórarinsson TF3AM flutti áhugavert erindi í Skeljanesi um heimasmíði tvípóla þann 12. janúar.

Fimmtudagserindið þann 12. janúar var í höndum Andrésar Þórarinssonar, TF3AM, og nefndist það Heimasmíði
tvípóla fyrir HF í bílskúrnum (láréttra og lóðréttra). Erindi Andrésar var fróðlegt. Hann útskýrði m.a. þær forsendur sem hann
gefur sér við smíðar á tvípólum úr álrörum fyrir 10, 15 og 20 metra böndin – og ennfremur, hvað varðar uppsetningu miðað
við lágmarks hæð yfir jörð.

Hann útskýrði verkefnið á hinum ýmsu stigum smíðanna og fjallaði ennfremur um prófanir á að skipta á milli tvípóla þegar
þeir eru settir upp lárétt og lagðir í kross. Hann útskýrði vel fræðilegar forsendur fyrir smíðinni, svo og þá hugsun að nota
sem mest handbært efni (og kaupa sem minnst) til að verkefnið yrði sem ódýrast í reynd.

Andrés sýndi Power Point glærur frá tilraunum sínum, m.a. af uppsetningu lóðréttra tvípóla við heimili sitt í Mosfellsbæ sem
eru fæddir með samsíða fæðilínu og af uppsetningu á krosstvípólum við sumarhús í TF1-kallsvæði í Grímsnesi. Þar hefur
hann um eins og hálfs árs reynslu af þremur settum af láréttum „krosstvípólum” fyrir 10, 15 og 20 metra böndin, sem hann
hefur m.a. notað í alþjóðlegum keppnum við góðan árangur. Hann sagði loftnetin í reynd hafa komið vel út, þótt hann hafi
gjarnan viljað sjá meiri mun (ávinning) við að skipta á milli þeirra á tilteknu bandi.

Í lokin var m.a. rætt um fræðilegan mun á tvípólum, 1/4-bylgju stangarloftnetum og fleiri loftnetaútfærslum. Erindið var vel sótt
og komu yfir 30 félagsmenn í félagsaðstöðuna í Skeljanesi þetta ágæta fimmtudagskvöld. Andrés svaraði greiðlega fjölda
spurninga í lok erindisins.

Stjórn Í.R.A. þakkar Andrési Þórarinssyni, TF3AM, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni Svavarssyni, TF3LMN, fyrir
myndatökuna.

TF3AM

Andrés sýnir heimasmíðaða festingu (á hjörum) fyrir stöngina sem heldur uppi tvípólunum á myndinni til vinstri.

Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, starfrækti TF3W frá félagsstöð Í.R.A. 18.-19. september. Ljósmynd: TF3LMN.

Þann 5. janúar var skýrt frá glæsilegri niðurstöðu Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW í CQ WPX DX SSB keppninni 2011 samkvæmt upplýsingum sem þá voru kunngerðar af keppnisnefnd CQ tímaritsins. Nú hafa borist heildarniðurstöður úr keppninni og eru þær birtar hér á eftir.

Keppnin fór fram helgina 26.-27. mars 2011. Að þessu sinni sendu fjórar TF-stöðvar inn keppnisdagbækur í jafn mörgum keppnisflokkum, þ.e. einmenningsflokki, 14 MHz, háafli; einmenningsflokki, 14 MHz, lágafli; einmenningsflokki, 21 MHz, háafli, aðstoð og einmenningsflokki, 3,7 MHz, háafl. Líkt og áður hefur komið fram, náði Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, afreksárangri í keppninni og varð í 2. sæti yfir heiminn og 1. sæti í Evrópu í sínum keppnisflokki.

Niðurstöður í keppninni fyrir TF-stöðvar:

Keppnisflokkur

Kallmerki

Árangur, punktar

QSO

Forskeyti

Einmenningsflokkur, 14 MHz, hámarksafl TF3CW*
Unknown macro: {center}7,473,715

Unknown macro: {center}3105

Unknown macro: {center}1145

Einmenningsflokkur, 14 MHz, lágafl TF3JA
Unknown macro: {center}77

Unknown macro: {center}7

Unknown macro: {center}7

Einmenningsflokkur, 21 MHz, hámarksafl, aðstoð TF3AO
Unknown macro: {center}150,398

Unknown macro: {center}422

Unknown macro: {center}278

Einmenningsflokkur, 3,7 MHz, hámarksafl TF3SG
Unknown macro: {center}18,486

Unknown macro: {center}81

Unknown macro: {center}79

Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Sigurður fær verðlaunaplatta (líkan þessum) frá keppnisnefnd CQ fyrir 1. sætið í Evrópu.

Félagsblað ÍRA, CQ TF janúarhefti 2012, er komið út. Blaðið hefur verið sent í tölvupósti til allra félagsmanna sem hafa netfang, en að auki geta félagsmenn nálgazt blaðið hér á vef ÍRA.

Blaðið er samtals 32 síður, þar sem farið er yfir starf félagsins sl. haust og að auki er þar að finna áhugaverðar greinar og efni félagsmanna um amatörradíó.

Næsta hefti CQ TF kemur út í apríl og skilafrestur er undir lok marzmánaðar.

73 – Kiddi, TF3KX, ritstjóri CQ TF
Netfang: cqtf@ira.is, GSM: 825-8130

Andrés Þórarinsson, TF3AM.

Næsta erindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið í félagsaðstöðu Í.R.A. fimmtudaginn 12. janúar. Þá kemur Andrés Þórarinsson, TF3AM, í Skeljanesið og nefnist erindi hans: Heimasmíði tvípóla fyrir HF í bílskúrnum (láréttra og lóðréttra). Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30.

Andrés mun m.a. fjalla um smíði tvípóla fyrir 10m, 15m og 20m böndin úr álrörum sem keypt eru hjá efnissölum hér heima, uppsetningu 12 metra hárrar stangar með slíkum loftnetum og fjarstýringu þeirra. Fjöldi ljósmynda. Einnig
fjallar hann um smíði á lóðréttum tvípól með 600 Ohma fæðilínu og “tjúningu” inni í “sjak”.

Rætt verður um fræðin að baki stærðar og hæðar tvípóla, og reynsluna af þessum netum. Loks mun Andrés fjalla um smíði á 12 metra langri ferðastöng sem gerð er úr álrörum, og um hæla og frágang allan.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.

Á myndinni má m.a. sjá þrenn sett af heimasmíðuðum láréttum tvípólum hjá TF1AM.

Georg Magnússson, TF2LL

Fimmtudagserindið þann 5. janúar var í höndum Georgs Magnússonar, TF2LL og nefndist það Loftnetsframkvæmdir hjá TF2LL í Norðtungu í Borgarfirði sumarið 2010. Erindi Georgs var afar fróðlegt og hann útskýrði ítarlega forsendur fyrir vali á loftnetum, rótor, turnsmíðinni sjálfri og nauðsynlegum aukahlutum. Í öllum tilvikum var leitast við að vanda vel til verks enda um að ræða framkvæmd til frambúðar. Meðal annars var leitað til verkfræðistofu með hönnun undirstöðu turnsins, auk þess sem mannvirkið var teiknað upp og sett í umhverfismat. Tilskilin leyfi voru fyrir hendi haustið 2010 og reisti Georg turninn fullbúinn með loftnetum þann 21. október 2010.

Um er að ræða rúmlega 28 metra háan þrístrendan loftentsturn sem er að stærstum hluta heimasmíðaður. Hann er reistur á sérhannaðri undirstöðu og fóru 13 rúmmetrar af steypu í mótin. Á turninum eru tvö loftnet, annars vegar OptiBeam 18-6 fyrir 40-10 metra böndin og OptiBeam 1-80 sem er fyrir 80 metrana. Uppsetning veitir möguleika til að nota turninn fyrir fleiri loftnet, þar sem út frá honum má strengja víranet, t.d. fyrir 160 metrana. Rótorinn er af gerðinni Prosistel PST-71D og er hann staðsettur í botni turnsins og snýr loftnetum með sérsmíðuðu drifskafti. Snjöll lausn er, að kaplarnir upp í loftnetin eru þræddir í gegnum drifskaftið.

Aðalloftnet Georgs er OptiBeam OB-18-6, sem er 18 stika Yagi loftnet fyrir sex bönd, þ.e. 40/20/17/15/12 og 10 metrana. Bómulengd er 12 metrar. Lengsta stikan er 14,6 metrar og eiginþyngd loftnetsins er 115 kg. Loftnetið er 3 stika á 40m, 4 stika á 20-17-15 og 12 metrunum og 7 stika á 10 metrunum. Uppgefinn ávinningur á bandi, yfir tvípól: 4,8 / 7,3 / 7,5 / 7,8 / 7,0 / 7,7 dB. Efra loftnetið á turninum er Optibeam OB-1-80, sem er styttur tvípóll á 80 metrunum. Hann er 17,6 metrar á lengd og vegur 25 kg. Í fæðipunkti eru rafliðar og spólur sem skipta á milli neðri og efri hluta bandsins. Þriðja loftnet Georgs frá OptiBeam er af gerðinni OB-5-6, sem er fyrir 6 metra bandið og gefur 8,8 dB ávinning yfir tvípól. Það loftnet er uppsett á minni turni, nokkurn spöl frá þeim háa.

Í lok erindis svaraði fyrirlesari fjölmörgum fyrirspurnum og stóðu umræður yfir til kl. 23. Rúmlega 30 félagsmenn mættu í Skeljanesið.

Stjórn Í.R.A. þakkar Georg Magnússyni, TF2LL, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi.

Power Point skyggnur sem fylgja erindinu verða settar inn á eftirfarandi slóð á heimasíðu félagsins: http://www.ira.is/pages/viewpage.action?pageId=4555138
Vefslóð OptiBeam: http://www.optibeam.de/
Vefslóð Prosistel: http://www.prosistel.net/

Yfir 30 félagsmenn hlýddu á erindi Georgs í félagsaðstöðunni þann 5. janúar 2012. Ljósmynd: TF3LMN.

Loftnetsturninn með OptiBeam OB-18-6 og OB-1-80 loftnetunum séð úr fjarlægð. Ljósmynd: TF2LL.

Glæsileg sjón! OP-18-6 loftnetið er neðar og OP-1 ofar. Ljósmynd: TF2JB.

Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, starfrækti TF3W frá félagsstöð Í.R.A. 18.-19. september. Ljósmynd: TF3LMN.

Úrslitin í CQ WW WPX SSB keppninni 2011 hafa verið kunngerð. Samkvæmt upplýsingum frá keppnisnefnd CQ tímaritsins varð Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, í 2. sæti yfir heiminn og í 1. sæti í Evrópu.

Heildarstig voru 7.473.415. Hann keppti í einmenningsflokki á 20 metrum, hámarksafli. Sigurður varð vel fyrir ofan árangur þeirra stöðva sem næstar komu, t.d. OH4A sem var með 6.886.168 heildarstig og S55T sem var með 6.763.484 heildarstig.

Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði til hamingju með glæsilegan árangur.

Vilhjálmur Sigurjónsson, TF3VS

Samkvæmt upplýsingum frá Vilhjálmi Sigurjónssyni í dag, er komin út reynsluþýðing á íslensku á dagbókarforritinu Logger32. Þýðingin var gerð af Vilhjálmi og er forritið algerlega ókeypis.

Forritið er fáanlegt á vefslóðinni logger32.net. Þeir sem hafa sett það upp nýlega geta látið nægja að sækja uppfærslu. Hafi menn eldri útgáfur verður að sækja það frá grunni. Þýðingar eru svo í deildinni „support files” og nægir að sækja TF skjalið, afþjappa því í sömu möppu og forritið er og þá kemur þýðingin inn af sjálfu sér.

Stjórn Í.R.A. vill koma á framfæri þakklæti til Vilhjálms fyrir hönd félagsmanna fyrir þessa miklu vinnu. Líklega er um að ræða fyrsta dagbókarforritið af þessu tagi sem þýtt er á íslensku.

Logger32

Sjá nánar á http://www.logger32.net/

Georg Magnússon TF2LL við nýuppsteypta undirstöðuna fyrir 28 metra háan loftnetaturn hans. Myndin var tekin 12. júlí 2010 áður en steypumótin voru fjarlægð. Ljósmynd: Jónas Bjarnason TF2JB.

Þá er komið að fyrsta fimmtudagserindinu á síðari hluta vetrardagskrár félagsins á yfirstandandi starfsári.
Erindið verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn 5. janúar n.k. og hefst stundvíslega
klukkan 20:30.

Fyrirlesari kvöldsins er Georg Magnússon, TF2LL og nefnist erindið Loftnetsframkvæmdir hjá TF2LL í Norðtungu
í Borgarfirði sumarið 2010. Georg mun fara yfir loftnetaval og turnframkvæmdina sjálfa í máli og myndum.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar eru í boði félagsins.

SteppIR 3E 3 staka Yagi loftnet TF3IRA er staðsett við félagsaðstöðuna í Skeljanesi.

Vetrardagskrá Í.R.A. fyrir tímabilið janúar-apríl 2012 liggur nú fyrir og er til kynningar í meðfylgjandi töflum. Samkvæmt dagskránni verða alls 10 erindi í boði (jafn marga fimmtudaga), auk sýningar heimildarmyndar frá T32C DX-leiðangrinum sem farinn var s.l. sumar. Sunnudagsopnanir félagsaðstöðunnar hefjast á ný í marsmánuði og verða kynntar þegar nær dregur. Dagskráin verður nánar til kynningar í 1. tbl. CQ TF sem kemur út síðar í þessum mánuði (janúar). Vinna við verkefnið var í höndum Kjartans H. Bjarnasonar, TF3BJ, varaformanns félagsins og er honum þökkuð góð störf.

J A N Ú A R

Viðburður

Upplýsingar

Fyrirlesari/umsjón

Tímasetning

Skýringar/annað

5. jan., fimmtudagur Erindi Loftnetsframkvæmdir hjá TF2LL sumarið 2010 Georg Magnússon, TF2LL 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
12. jan., fimmtudagur Erindi Heimasmíði tvípóla loftneta á HF í bílskúrnum Andrés Þórarinsson, TF3AM 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
19. jan., fimmtudagur Opið hús Kaffi á könnunni Almennar umræður 20:00-22:00 Alm. opnunarkvöld
26. jan., fimmtudagur Erindi VHF leikar 2012; möguleikar á VHF/UHF; sögur Guðmundur Löve, TF3GL 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15

F E B R Ú A R

Viðburður

Upplýsingar

Fyrirlesari/umsjón

Tímasetning

Skýringar/annað

2. febr., fimmtudagur Opið hús Kaffi á könnunni Almennar umræður 20:00-22:00 Alm. opnunarkvöld
9. febr., fimmtudagur Erindi Alþjóðlegar keppnir, þátttaka og undirbúningur Sigurður TF3CW & Yngvi TF3Y 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
16. febr., fimmtudagur Opið hús Kaffi á könnunni Almennar umræður 20:00-22:00 Alm. opnunarkvöld
23. febr., fimmtudagur Erindi Ráðstefnan í IARU Svæði 1 2011; niðurstöður Kristján Benediktsson, TF3KB 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21.15

M A R S

Viðburður

Upplýsingar

Fyrirlesari/umsjón

Tímasetning

Skýringar/annað

1. mar., fimmtudagur Opið hús Kaffi á könnunni Almennar umræður 20:00-22:00 Alm. opnunarkvöld
8. mar., fimmtudagur Erindi QRP kvöld; heimasmíði og notkun QRP senda Kristinn Andersen, TF3KX 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
15. mar., fimmtudagur Erindi Hvernig reiknar IARU forritið út sviðsstyrk? Vilhjálmur Kjartansson, TF3DX 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
22. mar., fimmtudagur DVD mynd Heimildarmynd frá T32C DX-leiðangrinum Guðmundur Sveinsson, TF3SG 20:45-21:30 Kaffiveitingar
29. mar., fimmtudagur Erindi Nýir möguleikar APRS kerfisins Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15

A P R Í L

Viðburður

Upplýsingar

Fyrirlesari/umsjón

Tímasetning

Skýringar/annað

12. apr., fimmtudagur Erindi QRO kvöld; heimasmíði RF magnara og notkun Benedikt Sveinsson, TF3CY 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15
26. apr., fimmtudagur Erindi Alþjóðleg viðurkenningarskjöl radíóamatöra Jónas TF2JB, Guðlaugur TF8GX 20:30-22:00 Kaffihlé kl. 21:15

(Ath. félagsaðstaðan verður lokuð fimmtudagana 5. og 19. apríl þar sem það eru almennir frídagar.)

Stjórn Í.R.A. óskar félagsmönnum og fjölskyldum þeirra farsældar á nýju ári.