,

FÉLAGSAÐSTAÐA ÍRA 18. NÓVEMBER

Félagsaðstaða ÍRA í Skeljanesi verður opin fimmtudaginn 18. nóvember kl. 20-22 fyrir félagsmenn.

Stjórn ÍRA hefur ákveðið að á ný verði tekin upp grímuskylda í húsnæðinu. Fjarskiptaherbergi verður opið (mest 3 samtímis) og QSL herbergi (mest 2 samtímis). Kaffiveitingar verða ekki í boði.

Ákvörðunin er tekin í ljósi núverandi reglugerðar heilbrigðisráðherra um hertar opinberar sóttvarnaráðstafanir vegna Covod-19 – en sér í lagi vegna ríkjandi óvissu í ljósi þess að nú virðist hafin ný bylgja Covid-19.

Vegna kórónaveirunnar er þess farið á leit, að félagar sem hafa hug á að mæta í Skeljanes fresti því ef þeir kenna lasleika af einhverju tagi, af virðingu við aðra.

Verið velkomin í Skeljanes!

Stjórn ÍRA.

https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Undirritu%c3%b0%20regluger%c3%b0%201211%202021.pdf

0 replies

Leave a Reply

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

1 × 3 =