VEFSLÓÐ Á LEIKJAVEFINN 2023:

http://leikar.ira.is/paskar2023/

Páskaleikar 2023

Markmið Páskaleika:Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gama. Þetta verður góð skemmtun og örvar virkni í áhugamálinu innanlands og fáum nýjar stöðvar í loftið.

Markmið þáttakanda:Ná sem flestum samböndum, sem lengstar vegalengdir og sem víðast um landið. Hægt að ná auka stigum með að færa sig á milli staða.

Reglur

AlmenntLeikurinn byrjar kl. 18:00 föstudag 7. apríl.

Gamanið stendur yfir til kl. 18:00 sunnudag 9. apríl.

Nú í Páskaleikum 2023 eins og áður notum við endurvarpa auk hefðbundinna simplex sambanda. Hugmyndin er að örva notkun endurvarpa og gera leikinn skemmtilegri fyrir þáttakendur með handstöðvar. Einnig getum við lært betur hvar hægt er að ná endurvörpum og hvaða búnað þarf til. Endurvarpar eru skilgreindir í leiknum sem sérstakt band og skiptir ekki máli hvort þeir eru notaðir með 70cm eða 2m bylgjulengd.

6 klst regla:

Stig fást fyrir hvert samband við stöð ef samband milli sömu stöðva, á sama bandi, hefur ekki átt sér stað fyrr í leiknum, eða a.m.k. 6 klst eru liðnar frá síðasta sambandi þeirra á sama bandi. Sérstaklega skilgreindir kalltímar (sjá töflu neðar í þessu skjali) eru eingöngu gerðir til að þétta virkni en sambönd eru gild til stiga allan sólahringinn. 6 klst. Reglan gildir. Þó þáttakandi færi sig í nýjan 4ra stafa reit þá gildir 6 klst. reglan eins og venjulega um samband við sömu stöð á sama bandi.

Reitakerfi:

Við notum reitakerfið sem er þekkt meðal amatöra. „Maidenhead grid locators“. Þátttakendur kynna sér í hvaða 6 stafa reit þeir eru staddir hverju sinni og skrá hann við hvert qso í loggkerfinu. Til aðstoðar er ágætt að nota snjallsímaforrit til að komast að reitanúmeri sínu. T.d. “QTH Locator”.

Skiptst er á upplýsingum.

Í hverju qso skiptast þáttakendur á upplýsingum. Gefið er upp qso númer og 6 stafa reitarnúmer og tekið á móti sömu upplýsingum frá hinum aðilanum. Þetta er skráð í loggkerfið til að það geti fundið pörun „match“. Til að kerfið finni pörun þarf einnig að vera rétt skráð kallmerki (án /p, /m o.þ.h), band og tími +- 10 mínútur. Ef kerfið finnur pörun reiknar kerfið stig fyrir sambandið. Ef sambandið er um endurvarpa er bandið “endurv” valið og viðkomandi endurvarpi valin í reitinn undir “Band” reitinum.

Þegar tölva er ekki við höndina þegar sambönd eru tekin má skrá samböndin tímabundið á blað. Til þæginda má skrá handskrifuð sambönd með sléttum QSO númerum til að tryggja að QSO númer verði alltaf einkvæm. Hér má hlaða niður PDF QSO skráningarblaði

Tíðnir:

Samband telst gilt á hverju bandi óháð nákvæmri tíðni. Við notum amatör tíðnir en nákvæm tíðni er í raun val þáttakanda og leikurinn ber ekki ábyrgð á því hvernig tíðnisviðin okkar eru notuð. Þáttakendur eru hvattir til að velja tíðni m.t.t. mótunar og virða bandplön.

Samkvæmt spjalli í fyrri leikum miðum við við neðangreindar tíðinir

80m: 3.637 MHz

6m: 50,200 MHz

4m: 70,200 MHz

2m: 145,500 MHz og 145,400 MHz

70cm: 433,000 MHz

23cm: 1294,500 MHz og 1290,500

endurv: Endurvarpar, sjá ÍRA

Stig:

Fyrir sambönd eru stig háð fjölda 6 stafa reita sem eru á milli stöðva í QSO. Stöðvarnar gefa upp 6 stafa reitanúmer og skrá reitanúmerin sem þeim eru gefin frá hinni stöðinni. Kerfið reiknar eftir bestu getu fjölda 6 stafa reita á milli stöðvanna.

1 stig fæst fyrir hvern 6-stafa reit sem sambandið spannar.

Fyrir sambönd um endurvarpa eru reiknuð stig m.v. fjarlægð til endurvarpa eða fjarlægð á milli stöðva og notar þá fjarlægð sem styttri er. Aftur gildir að 1 stig fæst fyrir hvern 6 stafa reit sem fjarlægðin spannar.

Margfaldarar:

Margfaldarar telja fjölda 4ra stafa reita sem stöð hefur haft samband á milli á hverju bandi. Fyrir fyrsta samband sem þátttakandi nær við reit (á sama bandi) úr þeim reit sem hann er staddur í gefur einn margfaldara. Heildarstig eru reiknuð sem samtala stiga margfölduð við samtölu margfaldara (stig x margfaldarar). T.d. ef þáttakandi hefur 90 stig og 10 margfaldara þá eru stigin hans 900. Kerfið reiknar stig með margföldurum jafn óðum. Vakin er athygli á að báðir reitir skrá margfaldarann. Þannig getur þáttakandi fært sig í annan reit og fengið þannig nýja margfaldara fyrir þá reiti sem hann nær samböndum við úr þeim reit.

FjarstýringarFjarstýrðar stöðvar eru velkomnar og ættu að gera fleirum færi á þáttöku. Þeir sem staddir eru erlendis eða úr kallfæri við það svæði sem mest notkun er geta tekið þátt. Til að gæta sanngirnis er öllum þáttakendum heimilt að nota fjarstýrðar stöðvar óháð staðsetningu, þó með einu skilyrði. Þáttakandi sem notar fjarstýrða stöð notar þá stöð og gefur upp hennar reit fyrir öll sambönd í leikunum. Hnitin þar sem fjarstýrða stöðin og loftnet hennar gilda að sjálfsögðu og breytast ekki á þáttökutímabilinu.

TímasetningLeikurinn byrjar kl 18:00 föstudag 7. apríl (föstudaginn langa). Fjörið stendur til kl. 18:00 sunnudagskvöld, 9. apríl (páskadag). Auglýstir kalltímar hér að neðan eru einungis til að þétta virknina en sambönd utan þeirra skrást jafnt til stiga.

Þó má hafa samband hvenær sem er innan tímaramma leiksins og engin takmörk eru á lengd þátttökutíma miðað við höfð QSO. Áfram gildir að amk. 6 klst líði á milli sambanda sömu stöðva á sama bandi.

© ÍRA Félag íslenskra radíóamatöra