Vitahelgi


Veftré og leit

Vita- og vitaskipahelgin

Hin árvissa Vita- og vitaskipahelgi er haldin um miðjan ágúst. Þessa helgi ár hvert flykkjast radíóamatörar víðsvegar um heiminn að vitum og jafnvel um borð í vitaskip, setja upp stöðvar sínar og loftnet og reyna að ná samböndum við aðra amatöra og aðrar vitastöðvar.

Þetta er bæði gert til skemmtunar svo og vegna þeirrar áskorunar sem í því felst að koma upp stöð við vita ásamt góðum loftnetum. Frekari almennar upplýsingar um vitahelgina má finna á vef viðburðarins.

Í nokkur ár ferðuðust félagar í Í.R.A. að Knarrarósvita austan Stokkseyrar um þessa helgi, en síðasta haust (2010) var farið að Garðskagavita á Reykjanesi. Fyrir utan að vera hin besta skemmtun, er vitahelgin kjörið tækifæri til loftnetatilrauna. Frá þessum vitum er vítt til allra átta og sjaldan sem tækifæri gefst (fyrir felsta) til að nota 26-28 metra háa turna!

Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.