TF0-svæðið á miðhálendi Íslands
Skilgreining á TF0-svæði
Á aðalfundi Í.R.A. 23. maí 2009 var samþykkt svohljóðandi skilgreining á TF0-svæðinu:
TF0 er lokað svæði sem umlykur óbyggðir og miðhálendi landsins að undanskildum mannvirkjabeltum. Lokaða svæðið og mannvirkjabeltin er skv. skilgreiningu samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendisins. Í mannvirkjabeltum miðhálendisins gildir venjuleg kallsvæðaskipting eftir staðsetningu miðað við stjórnsýslumörk.
Neðangreindar myndir koma frá Samvinnunefnd um svæðisskipulag miðhálendis Íslands, sem hefur verið starfandi mörg ár, og skilað margvíslegum skilgreiningum og kortum. Nefndin hefur skilgreint hinn lokaða feril í samráði við heimamenn.

Ferill um miðhálendið með skilgreindum mannvirkjasvæðum (stærra kort)

Ferill um miðhálendið án skilgreindra mannvirkjasvæða (stærra kort)
Þessa ferla má einnig skoða í Google Earth (opna þarf viðhengi með Google Earth uppsett á tölvunni)
- Skilgreining samvinnunefndar á miðhálendi og mannvirkjabeltum.
- Hér er þetta sett fram með núverandi kallsvæðum skv. stjórnsýslumörkum upp á miðhálendið.
Gagnavinnsla: TF3KB - Kristján Benediktsson
Eldra TF0-svæði
Í eldri skilgreiningu, sem í gildi var fyrir 23. maí 2009, var TF0 skilgreint svo:
TF er lokað svæði sem umlykur óbyggðir og miðhálendi landsins. Jaðar svæðisins er þeir punktar sem eru í 12 km fjarlægð frá neyslustöðum rafveitna, eða jökulrönd, sé hún í minna en 12 km fjarlægð.

Gamla TF0-svæðið