IRAA Award



Veftré og leit

Í.R.A. Awards Manager

Brynjólfur Jónsson, TF5B (Email)
Engimýri 8
IS-600 Akureyri
Iceland

IRAA Award

Reglur fyrir IRAA Award

Þetta heiðursskjal er eingöngu ætlað radíóamatörum og hlusturum utan Íslands. Heiðursskjalið er prentað fyrri hvern umsækjanda á 106 g/m² 210X297 mm sérstakan bleksprautupappír í þremur litum: bláum, rauðum og svörtum. Heiðursskjal þetta var fyrst gefið út í mars 1984 og var fyrsti umsækjandi OY2H, Hans J. Egholm frá Færeyjum.

  1. Heiðursskjalið stendur til boða öllum amatörleyfishöfum og hlusturum utan Íslands.
    Athugið. Sambönd við stöðvar sem eru /TF eða TF/ gilda ekki fyrir þetta heiðusskjal.
  2. Það eru engin tímatakmörk á samböndum.
  3. Staðfest ljósrit af QSL kortum verða að fylgja umsókninni ásamt fullkominni útskrift, yfir samböndin, úr radíódagbók. Sendið ekki QSL kortin.
  4. Öll sambönd þurfa að hafa verið höfð frá sama kallsvæði eða þar sem enginn kallsvæðaskipting er frá sama landi.
  5. Gjald fyrir heiðursskjalið "THE ICELANDIC RADIO AMATEURS AWARD" er 8 IRCar, 5.00 bandarískir dollarar eða 5.00 Evrur.

Skipting punkta eftir tíðni og mótun:

Band
CW RTTY SSTV
SSB Gegnum
Gervitungl
1.8 10 8 8 6  
3.5 8 6 6 6  
7 6 5 5 3  
10 5 4 0 0  
14 3 2 2 1  
18 4 3 3 2 8
21 5 4 4 3  
24 6 5 5 4  
28 7 6 6 5  
50 8 7 7 6  
144     48    
  • Blönduð mótun td. CW til SSB og krosstíðnisambönd gilda ekki nema fyrir sambönd í gegnum amatör gervitungl.
  • Aðeins má hafa samband einu sinni við hverja stöð á hverri tíðni og mótun. eins og skilgreint er í töfluni hér að ofan.

Kröfur

  • ITU zones 5,9,18-20,27-29 ......................... = 98 punkta
  • ITU zones 1-4, 6-8, 21-26, 30, 31, 36, 37 ......... = 48 punkta
  • ITU zones 10-13, 32-35, 38-40, 46-48 .............. = 28 punkta
  • ITU zones 14-16, 41-45, 49-75 ..................... = 18 punkta
Unable to render embedded object: File (iraa.jpg) not found.
Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.