IRA WANC Award



Veftré og leit

Í.R.A. Awards Manager

Brynjólfur Jónsson, TF5B (Email)
P.O. Box 121
IS-602 Akureyri
Iceland

IRA WANC Award

Reglur fyrir IRA WANC Award

Þetta heiðursskjal stendur til boða öllum radíóamatörum og hlusturum. Heiðursskjalið er prentað fyrir hvern umsækjanda á 106 g/m² 297X210 mm sérstakan bleksprautu pappír og er fjöllita. Heiðursskjal þetta var fyrst gefið út í júní 1994 og var fyrsti umsækjandi LAØBX, Sigfús Jónsson frá Noregi.

  1. Heiðursskjalið stendur til boða öllum amatörleyfishöfum og hlusturum.
  2. Það eru engin tímatakmörk á samböndum.
  3. Það eru engin takmörk á tíðnum, en öll samböndin verða að vera með sömu mótun til að hljóta heiðusskjalið, Þ.e.a.s. 2XCW, 2XSSB eða 2XRTTY og svo frv. Séu öll samböndin á sömu tíðni verður Skjalið uppfært sem slíkt sé um það beðið.
  4. Heiðursskjalið verður gefið út í þremur flokkum: FLOKK-A, FLOKK-B og FLOKK-C.
  5. Kröfur:
    • Staðfest sambönd við eftirtalin Norðurlanda DXCC lönd samkvæmt reglunum. JW-SVALBARÐI, JX-JAN MAYEN, LA-NOREGUR, OH-FINNLAND, OH0-ÁLANDSEYJAR, OJ0-MARKET RIF, OX-GRÆNLAND, OY-FÆREYJAR, OZ-DANMÖRK, SM-SVÍÞJÓÐ og TF-ÍSLAND.
    • Eitt staðfest samband við Ísland er krafa í öllum flokkum.
    • FLOKKUR-A: Eitt staðfest samband við hvert hinna ellefu landa.
    • FLOKKUR-B: Staðfest sambönd við átta af löndunum og þar af tvö í CQ-ZONE 40.
    • FLOKKUR-C: Staðfest sambönd við fimm af löndunum og þar af eitt í CQ-ZONE 40.
    • ATHUGIÐ: Sambönd við stöðvar sem eru /TF, TF/, /OX, OX/ og svo frv. gilda ekki fyrir þetta heiðursskjal nema fyrir OJ0.
  6. GCR listi, staðfestur af tveimur amatörleyfishöfum eða stjórnarmanni í amatörfélagi staðarinns (í okkar tilfelli Í.R.A.) verður að fylgja umsókn. Listinn verður að sýna unna stöð, dagsetningu, ár, tíma, tíðni, styrk og læsileika merkis og mótun. Heiðursskjalastjóri Í.R.A. áskilur sér þann rétt að QSL kort verði lögð fram telji hann þess þörf.
  7. Fyrsta skjalið sem gefið er út til hvers DXCC lands verður uppfært sem slíkt.
  8. Gjald fyrir heiðursskjalið "WORKED ALL NORDIC COUNTRIES AWARD" er 8 IRCar eða jafngildi þeirra í Íslenskum krónum á hverjum tíma.
Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.