CQ TF



Veftré og leit

\

\

Fróðleikspunktar um útgáfu CQ TF

CQ TF er félagsrit Í.R.A. og hófst útgáfa þess árið 1964. Heitið "CQ TF" er fengið úr fjarskiptamáli radíóamatöra og er þýðing þess “almennt kall til íslenskra amatörstöðva”. Ritið er umræðuvettvangur og upplýsingamiðill Í.R.A. ásamt Wiki-vefsíðum félagsins og Yahoo póstlista.

Líkt og sjá má í meðfylgjandi töflu, féll útgáfa blaðsins niður í nokkur ár á tímabilinu, þ.e. 1972, 1974, 1980 og 1984-1994. Það er einkum til skýringar, að mörg þessara ára kusu stjórnir félagsins fremur að gefa út sérstakt fréttabréf en formlegt félagsrit, þ.e. Fréttabréf Í.R.A. Fréttabréfið kom sum árin meira að segja út "til hliðar" (sömu ár) og CQ TF og var hugmyndin þá, að fréttabréfið gæti t.d. verið hentugt útgáfuform fyrir styttri og nýjustu fréttir, allt frá 4 síðum (A4 einblöðungur brotinn í tvennt); samanborið við CQ TF sem flytti tæknilegar greinar og viðameira efni. Þá ber að nefna, að annað afbrigði fréttabréfsins kom út (a.m.k. 1993) undir nafninu CQ TF Fréttabréf. Hafa ber í huga, að framangreint fyrirkomulag var lengst af við lýði fyrir tilkomu netsins; en CQ TF var fyrst gefið út á netinu í febrúar 2000.

Á tímabilinu 1964-1973 var CQ TF oftast í kringum 10 blaðsíður að stærð hvert tölublað. Upp úr 1975 fer blaðsíðum að fjölga og fyrsta "stóra" blaðið kom út í mars 1976 sem var 42 blaðsíður. Sá blaðsíðufjöldi var ekki "sleginn" fyrr en með blaðinu í janúar 2009 sem var 52 bls. að stærð. Jafn stórt blað kom reyndar einnig út í október sama ár, eða 52 bls. og svo á ný í janúar 2010. "Minnsta" tölublað CQ TF kom út í febrúar 1970; það var 3 blaðsíður. Mikill stöðugleiki ríkti í útgáfunni frá 1997 til 2006, en þá var blaðið (að mestu) gefið út í stærðinni A5 og blaðsíðufjöldi (að stærstum hluta) staðlaður við 16 blaðsíður; á þessum árum komu oftast út 5 tölublöð á ári. Frá upphafi hefur CQ TF oftast komið út í febrúar og desember (13 sinnum hvorn mánuð) en sjaldnast í apríl, ágúst og nóvembermánuðum (3 sinnum hvern þessara mánaða).

Á tímabilinu 1964-2011 hafa 11 leyfishafar verið ritstjórar. Þeir eru: Brynjólfur Jónsson (TF5BW/TF5B) í 10 ár; Jónas Bjarnason (TF3JB/TF2JB) í 6 ár; Kristinn Andersen (TF3KX) og Páll Gröndal (TF3PI), hvor um sig í 4 ár; Jón Þóroddur Jónsson (TF3JA) og Kristján Benediktsson (TF3KB), hvor um sig í 3 ár; Ágúst H. Bjarnason (TF3OM) og Haraldur Þórðarson (TF3HP), hvor um sig í 2 ár; og Birgir Baldursson (TF3BB sk), Guðmundur Löve (TF3GL) og Sigurbjörn Bjarnason (TF3SB) hver um sig í 1 ár. Langsamlega flest tölublöð komu út í tíð Brynjólfs Jónssonar (TF5BW/TF5B) eða 50 talsins. Næstur kemur TF3KX með 8 tölublöð.

Allra síðustu ár hefur CQ TF komið út í stæðinni A4 og er í dag miðað við þá stærð og útgáfu 4 tölublaða á ári. Miðað er við að blaðsíðufjöldi nái hverju sinni a.m.k. 16 síðum. Blaðið kemur bæði út á rafrænu formi á heimasíðu félagsins og á prentuðu formi. Félagsmenn þurfa sérstaklega að óska eftir að fá prentaða útgáfu senda í pósti. Það má gera með því að senda tölvupóst á ritstjóra blaðsins á póstfangið cqtf hjá ira.is eða á póstfangið ira hjá ira.is.

Ritstjórar CQ TF frá 1964

Útgáfuár Ritstjóri og ábyrgðarm.
Kallmerki
Fj. tbl.
1964-1965 Páll Gröndal
TF3PI
2
1966-1967 Ágúst H. Bjarnason
TF3OM
2
1968-1969 Páll Gröndal
TF3PI
2
1970 Birgir Baldursson (sk)
TF3BB
3
1971 Sigurbjörn Bjarnason
TF3SB
2
1973 Kristján Benediktsson
TF3KB
1
1975 Jón Þóroddur Jónsson
TF3JA
1
1975-1979 Jónas Bjarnason
TF3JB
6
1981-1982 Kristján Benediktsson
TF3KB
3
1983 Jónas Bjarnason
TF3JB
1
1995 Kristinn Andersen
TF3KX
1
1996-1997 Haraldur Þórðarson
TF3HP
3
1997-2007 Brynjólfur Jónsson
TF5BW
50
2007-2008 Jón Þóroddur Jónsson
TF3JA
5
2009 Guðmundur Löve
TF3GL
2
2009- Kristinn Andersen (1)
TF3KX
11

(1) Upplýsingar miðast við útgáfu til og með 1. tbl. 2012.

ATH
Aðgangur að CQ TF árin 2010 - 2012 er einvörðungu fyrir félagsmenn Í.R.A.
innskráningar er þörf til að skoða






Enter labels to add to this page:
Please wait 
Looking for a label? Just start typing.