News from 20 Jul 2012

  2012/07/20
Nýtt loftnet tengt við endurvarpann TF5RPD.
Last changed: 23 Jul 2012 18:18 by TF2JB


Útbreiðslumynd fyrir TF5RPD sem er staðsettur í Vaðlaheiði norðaustan Akureyrar.

Nýtt loftnet hefur verið sett upp og tengt við endurvarpann TF5RPD. Um er að ræða öflugt
skipanet úr trefjagleri sem er rúmlega 7 metrar á hæð og hefur tæplega 9 dB ávinning og
var notað við endurvarpann til ársins 2009 er það féll til jarðar. Í millitíðinni var notað heima-
smíðað "Slim-Jim" loftnet". Að sögn Þórs Þórissonar, TF3GW, var fæðilína endurnýjuð við
sama tækifæri. Frágangi var lokið í gær, þann 19. júlí.

Fyrstu prófanir lofa góðu. TF5B og TF3GL/m höfðu t.d. samband um TF5RPD þegar TF3GL/m
var staddur á erfiðum stað til fjarskipta við Mývatn. Það gekk ágætlega að sögn TF5B.

Endurvarpinn tekur á móti á 145.025 MHz og sendir út á 145.725 MHz. Hann er staðsettur í
Vaðlaheiði sem er 550 metra hátt fjall norðaustur af Akureyri. Endurvarpinn er búinn auðkenni
á morsi.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS og Þór Þórissyni, TF3GW, fyrir að
annast verkefnið.

Posted at 20 Jul @ 10:56 AM by TF2JB | 0 Comments