
Innheimta félagsgjalda Í.R.A. stendur nú yfir og hófst með útsendingu gíróseðla til félagsmanna þann
13. júní s.l. Samkvæmt félagslögum er Innheimt eftir tvennskonar félagsaðild, þ.e. fyrir félagsmenn á
aldrinum 16-66 ára og fyrir félagsmenn á aldrinum 67 ára og eldri, maka félagsmanna og yngra fólk
en 16 ára. Fyrrnefndi hópurinn greiðir fullt gjald, 6000 krónur og síðarnefndi hópurinn greiðir hálft gjald,
3000 krónur. Fjárhæð árgjalds var ákveðin á aðalfundi félagsins þann 19. maí s.l.
Yfirstandandi félagsár sem nú er til innheimtu er fyrir tímbilið 2012/2013, þ.e. 12 mánaða tímabilið júní
2012 til maí 2013. Félagsgjaldið hafði verið óbreytt að krónutölu í þrjú ár (2009, 2010 og 2011) en hafði
fyrir þann tíma, verið lækkað úr 5000 krónum í 4000 krónur eftir efnahagshrunið 2008. Félagsmenn sem
ekki hafa fengið erindi um greiðslu félagsgjalds, vilja fá heimild til að skipta greiðslu eða eiga annað erindi
við gjaldkera vegna innheimtunnar, eru beðnir að snúa sér til undirritaðs.
73,
Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ,
gjaldkeri Í.R.A.
(kjartan(hjá)skyggnir.is)

Fyrsta sambandið sem vitað er um að haft hafi verið hérlendis á D-Star tegund stafrænnar útgeislunar
(e. Digital Smart Technologies for Amateur Radio) var haft á 144 MHz þann 30. júní. Það voru þeir Jón
Ingvar Óskarsson, TF1JI og Ólafur Helgi Ólafsson, TF3ML, sem höfðu sambandið á milli Eyjafjalla og
Garðabæjar; fjarlægð er tæpir 110 km.
Jón Ingvar notaði Icom IC-E92D handstöð sem keyrð var gegnum Vectronics RF-magnara sem gaf út um
20W og Ólafur notaði Icom IC-9100 100W sendi-/móttökustöð. Báðir notuðu stefnuvirk loftnet, Jón heima-
smíðaðan 9 staka Yagi og ólafur 4 staka Quad. Að sögn Jóns, voru gæði merkjanna framúrskarandi góð.
Fyrir þá sem vilja kynna sér D-Star, má benda á ágæta grein eftir TF3JA í 4. tbl. CQ TF 2009.
Þá má benda á bæklinginn Nifty E-Z Guide to D-STAR Operation sem fyrst kom út 2009. Sjá vefslóðina: http://www.niftyaccessories.com/E-Z%20D-STAR%20Guide.htm

Guðmundur Löve, TF3GL, umsjónarmaður TF VHF-leikanna hefur sett eftirfarandi skilaboð inn
á póstlista Í.R.A. og eru þau birt hér á heimasíðunni, hafi menn misst af þeim:
Sjá hér skjal þar sem þeir sem vilja, geta skráð inn fyrirætlanir sínar í VHF-leikum á föstudag,
laugardag og sunnudag, skipt eftir þátttökutímabilum kl 9-12 kvölds og morgna:
https://docs.google.com/spreadsheet/ccc?key=0Atyqn1jkuJAldFE4aW9oQ2JvLWE2UTdsUWZ\mVmoybmc
Ég minni á vefsíðu leikanna, þar sem m.a. má finna radíódagbók í Excel-formi sem kjörið er
að hafa í tölvunni eða prenta út, auk þátttökureglna.: http://ira.is/display/web/TF+VHF-leikarnir
Loks bið ég engan að örvænta þótt ekki verði tugir manna til að skrá fyrirætlanir sínar í þetta
lifandi "sked-skjal". Allir sem eru í loftinu geta gefið þátttakendum gilt samband og þetta á bara
að vera áreynslulaust og gaman ![]()
Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til þátttöku í fyrstu TF VHF-leikunum!
Fimmtudagskvöldið 5. júlí kom góður gestur í heimsókn í Skeljanes frá Finnlandi, OH6SO, og samhliða fóru
fram utanhúss, loftnetatilraunir á 40 og 80 metrum á vegum TF3ARI. Sjá frásögn og myndir hér á eftir.
Leila Hämäläinen OH6SO; Haraldur Þórðarson TF3HP og Ársæll Óskarsson TF3AO. Ljósmynd: TF2JB.
Leila Hämäläinen, OH6SO, heimsótti félagsaðstöðuna í Skeljanesi 5. júlí. Leila er býr í bænum Puuppola
í Finnlandi, sem er um 250 km fyrir utan Helsinki og millilenti á Íslandi á heimleið frá Kanada. Maður hennar
og dóttir eru einnig leyfishafar, Jari OH6PX og Heidi OH6SX. Leila er félagsmaður í SYLRA (Scandinavian YL
Radio Amateurs) en sagðist ekki vera virk í samtökunum nú um stundir. Hún var mjög hrifin af aðstöðu Í.R.A
í Skeljanesi og bað fyrir góðar kveðjur til íslenskra radíóamatöra.
__________
Fyrr um kvöldið kom Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI, með ferðaturn sinn og reisti ("blés upp") á gras-
flötinni fyrir utan bílastæðið í Skeljanesi. Turninn er af afar óvanalegri gerð, kemst fyrir í ferðatösku og er síðan
blásinn upp á ótrúlega fáum mínútum (með sérstökum blásara). Turninn, sem er keyptur frá Bandaríkjunum,
nær 12 metra hæð. Festingar eru fyrir kóaxkapal með "frönskum rennilásum" upp eftir turninum auk þess sem
setja má fíberrör efst. Það gerði Ari og festi efst í það svokallað "Double Bazooka" loftnet fyrir 40m og 80m böndin.
Sjá myndir hér fyrir neðan.
Turninum er einfaldlega "rúllað út" eftir jörðunni, blásarinn tengdur og "voila" upp fer turninn...
Turninn orðinn blásinn upp að hluta. Ari lagar hann til og gerir kláran fyrir aukinn þrýsting.
Óðinn Þór TF2MSN aðstoðar. Ari Þór TF3ARI og Mathías Hagvaag TF3-035 koma til aðstoðar.
Síðustu handtökin. TF2MSN og TF3ARI ganga frá festingum og stögum fyrir "Bazooka" loftnetið.
Turninn kominn upp, alls 12 metrar, "Bazooka" loftnetið tengt og TF3ARI er QRV fyrir heiminn úr bílnum.
TF3ARI/m kominn í loftið. Haraldur Þórðarson TF3HP fylgdist með af áhuga og þurfti margs að spyrja.
Stefán TF3S og Mathías TF3-035 voru mjög hrifnir, en viðurkenndu að hafa verið nokkuð "skeptískir" fyrst...
(Ljósmyndir: TF2JB).
TF VHF-leikarnir hófust í morgun með aðalþátttökutímabilinu 9-12. Um tugur kallmerkja var í loftinu og náðust mörg mjög skemmtileg sambönd, þ.á.m. mögulega fyrsta TF-TF-sambandið á 1,2 GHz milli TF1JI/3 í Reykjavík og TF3ML/P á Skarðsmýrarfjalli. Einnig samband á 2 og 6 metrunum á SSB frá Reykjavík austur í Hreppa, svo fátt eitt sé nefnt.
Næsta aðaltímabil er frá 9-12 í kvöld, föstudag, og svo aftur á laugardag og sunnudag - báða dagana kvölds og morgna kl 9-12. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu leikjanna http://ira.is/display/web/TF+VHF-leikarnir
Áður auglýst ferð TF3ML/P á Barðaströnd frestast þar til á morgun sakir þess að Breiðafjarðarferjan Baldur er fullbókuð.
Spennandi QSO gætu þó náðst á VHF-leikunum í dag við TF1JI og TF3ARI, sem verða niðri í fjöru út af Holtsós og munu reyna samband vesturúr á 6m, 4m, 2m, 70cm og 23cm.
TF3ML/P verður QRV frá Brjánslæk á Barðaströnd í dag, sunnudag. Ólafur er útbúinn með 6m, 4m, 2m, 70cm og 23cm, og mun reyna sambönd á öllum böndum. Sjá reiknaða útbreiðslu frá Brjánlæk hér: http://goo.gl/maps/dwwm
Í ofangreindu er reiknað með 145MHz og 50-100W á SSB á bílstöð eða stefnuvirku neti með 25-50W á FM (appelsínugult svæði), en rauðu svæðin ættu að nást á handstöð með rubberduck-neti. Á öðrum tíðnum er getur útbreiðsla verið betri eða verri eftir atvikum. Líklegt má teljast að fyrir hendi séu góð brot sem forritið finnur ekki, svo vel má vera að hægt sé að ná mun lengra!
Tekið þátt í alþjóðlegri keppni frá TF3W 2011. Stefán Arndal TF3SA er á lyklaborðinu. Ljósmynd: TF3JA.
IARU HF Championship keppnin 2012 fer fram um helgina og hefst laugardaginn 14. júlí kl. 12
á hádegi. Þetta er sólarhringskeppni og lýkur henni á hádegi á sunnudaginn 15. júlí. Þetta er áhuga-
verð keppni og að mörgu leyti aðgengileg, t.d. fyrir þá sem hafa áhuga á að stíga sín fyrstu skref á
þessu sviði. Keppnisreglurnar hafa verið þýddar á íslensku (sjá vefslóð neðar).
Stutt samantekt um keppnina og keppnisflokka:
- IARU HF Championship keppnin er opin öllum radíóamatörum.
- Markmiðið er að hafa sambönd við eins margar stöðvar radíóamatöra eins og frekast er unnt
um allan heim á 160, 80, 40, 20, 15 og 10 metra böndunum. - Keppnin er sólarhringskeppni. Þátttaka er heimil allt tímabil keppninnar og hvorki er áskilið að
einmenningsstöðvar né fjölskipaðar stöðvar geri hvíldarhlé á þátttöku. - Flokkar þátttöku: „Einmenningsstöðvar“, „Fjölskipaðar stöðvar með einn sendi“ og „Flokkur
stöðva landsfélaga í IARU - „HQ“ stöðvar“.
Í flokki einmenningsstöðva eru í boði 3 keppnisflokkar, þ.e. á tali (SSB), á morsi (CW) og á tali og morsi (SSB/CW). Í sérhverjum keppnisflokki má síðan velja um þátttöku í 3 flokkum: Háafli, lágafli eða QRP. (Háafl: Yfir 150W útgangsafl; lágafl allt að 150W útgangsafl; og QRP allt að 5W útgangsafl). Í flokki fjölskipaðra stöðva með einn sendi, er einn flokkur í boði, þ.e. á tali og morsi (SSB/CW).
Hlekkur á íslenska þýðingu á keppnisreglum: http://ira.is/pages/viewpageattachments.action?pageId=4557309&highlight=IARU+HF+Championship+keppnin+2012.pdf#Home-attachment-IARU+HF+Championship+keppnin+2012.pdf
Hlekkur heimasíðu keppninnar og keppnisreglur á ensku: http://www.arrl.org/iaru-hf-championship

Úr félagsstarfinu. Frá erindi Andrésar Þórarinssonar TF3AM þann 12. janúar 2012. Ljósmynd: TF2JB.
Á stjórnarfundi í Í.R.A. þann 5. þ.m. var samþykkt að framlengja áður auglýstan frest til félagsmanna
sem áhuga hafa á að taka sæti í starfshópi er geri tillögur um neyðarfjarskiptastefnu félagsins.
Áhugasamir eru beðnir um að setja sig í samband við stjórn eða að senda tölvupóst á ira (hjá) ira.is
fyrir 14. september n.k.
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn verði formlega skipaður á stjórnarfundi þann 14. september. Miðað
er við að hópurinn skili síðan tillögum sínum til stjórnar fyrir 13. maí 2013, með það fyrir augum að
málið verði formlega til kynningar á aðalfundi félagsins 2013.
Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA, neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A., verður formaður starfshópsins og mun svara
fyrirspurnum um verkefnið.
Ofangreindu til staðfestingar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Nýir embættismenn: Benedikt Guðnason TF3TNT og Mathías Hagvaag TF3-Ø35.
Á stjórnarfundi þann 5. þ.m. voru þeir Benedikt Guðnason, TF3TNT og Mathías Hagvaag, TF3-Ø35,
skipaðir í embætti stöðvarstjóra TF3IRA annarsvegar, og embætti QSL stjóra útsendra korta hinsvegar.
Báðir hafa starfað á vettangi félagsins um árabil.
Benedikt Guðnason, TF3TNT, fékk úthlutað kallmerki árið 1996 og er handhafi leyfisbréfs nr. 236. Hann
hefur töluvert starfað á vettvangi félagsins. Hann sat í stjórn Í.R.A. á tímabilinu 2001-2005, fyrst sem vara-
maður 2001-2003 og síðan sem ritari og meðstjórnandi 2003-2005. Hann sat ráðstefnu NRAU sem haldin
var í Borgarnesi 2002 og var annar tveggja fulltrúa Í.R.A. í VHF nefnd fundarins. Í framhaldi sótti hann VHF
ráðstefnu NRAU í Noregi. Benedikt hefur að auki skrifað greinar í CQ TF og flutt erindi á vettvangi félags-
starfsins. Fráfarandi stöðvarstjóri er Bendikt Sveinsson, TF3CY.
Mathías Hagvaag, TF3-Ø35, hefur verið félagsmaður í nær 40 ár og töluvert starfað á vettvangi félagsins.
Hann var Bóka- og húsvörðar félagsins 1979-1987 og sat í stjórn Í.R.A. sem varamaður 1986-1987. Þá
var hann QSL stjóri kortastofu Í.R.A. um fimm ára skeið 1983-1988. Mathías var QSL Manager fyrir TF4F
og TF6M leiðangrana og fyrir TF3SV (sk). Síðustu misserin hefur hann m.a. unnið að samantekt QSL
korta vegna umsókna um viðurkenningaskjöl fyrir TF3IRA. Fráfarandi QSL stjóri útsendra korta er
Guðmundur Sveinsson, TF3SG.
Um leið og nýir embættismenn eru boðnir velkomnir til starfa er fráfarandi embættismönnum þakkað fyrir
vel unnin störf í þágu félagsins. Þeir Benedikt og Mathías munu formlega taka við embættum þann 26. júlí n.k.
F.h. stjórnar Í.R.A.,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Myndin sýnir loftnet fyrir endurvarpa í Bláfjöllum. Ljósmynd: TF3WS.
Sigurður Harðarson, TF3WS, gerði ferð í Bláfjöll þann 12. júlí og gerði tvennskonar breytingar á TF1RPB.
Annars vegar var útsendingartakmörkun fjarlægð (e. time-out) ásamt því að svokallað "skott" í sendingu
"Páls" var stytt niður í lágmark. Að sögn Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF3ARI, kemur endurvarpinn vel út
eftir þessa breytingu.
TF1RPH varð QRV á ný fyrir mánuði síðan eða þann 14. júní. Frá þeim tíma hafa menn náð að opna hann
mjög víða, m.a. inni á hálendinu. Vinnutíðnir TF1RPB eru 145.150 MHz RX / 145.750 MHz TX.
Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði Harðarsyni, TF3WO, fyrir veitta aðstoð við TF1RPB.

Mælingahús háloftadeildar Raunvísindastofnunar H.Í. í Leirvogi. Mælingar hafa verið gerðar frá 1957.
Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring. Linuritin neðar á síðunni sýna það sem
hefur verið að gerast síðastliðinn sólarhring, þ.e. frá kl. 18 þann 14. júlí til sama tíma í dag, 15. júlí.
Á hádegi í dag (15. júlí) stóð K-gildið í rúmlega 6, en vísun yfir 5 er flokkuð sem segulstormur.
Skilyrðaspár eru þess efnis að truflanir haldi áfram í dag og að ójafnvægis muni gæta a.m.k. til 18. júlí.
Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan
styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla
(nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346°
merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðal-
misvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.
Gögn eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Sjá nánar vefslóð: http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Sjá einnig upplýsingar á þessari vefslóð: http://www.solen.info/solar/


Islands On The Air eða IOTA keppnin 2012 verður haldin um þarnæstu helgi, þ.e. 28.-29. júlí n.k. Keppnin hefst
kl. 12 á hádegi á laugardeginum og lýkur á sama tíma á sunnudag. Markmiðið er að ná samböndum við eins margar
aðrar stöðvar radíóamatöra um heiminn eins og frekast er unnt. Sambönd við leyfishafa á eyjum sem hafa IOTA-númer
gefa margfaldara.
Þátttakendur hér á landi gefa upp QSO númer sem hefst á 001 + IOTA númer; t.d. EU-71 ef leyfishafi er staddur í Vestmanna-
eyjum, EU-168 ef leyfishafi er staddur á einhverri annarri eyju við Ísland og EU-021 ef menn eru staddir á fastalandinu
(þ.m.t. í Reykjavík).
Keppnin fer fram 80, 40, 20, 15 og 10 metrum. Í einmenningsriðli, er val um að keppa á morsi, tali eða blöndu hvoru tveggja
(e. mixed mode). Þá geta menn valið um keppnisriðil eftir aflflokkum, þ.e. 5W, 100W eða 1000W. Loks má velja um að keppa
með eða án aðstoðar (t.d. án auka viðtækis o.s.frv.). Skila þarf keppnisdagbókum fyir 19. ágúst n.k. til RSGB.
Sjá keppnisreglur á þessari vefslóð: http://www.rsgbcc.org/hf/rules/2012/riota.shtml
Sjá upplýsingar um stöðvar sem tilkynnt hafa um þátttöku (ekki skylda) : http://www.ng3k.com/misc/iota2012.html

Útbreiðslumynd fyrir TF5RPD sem er staðsettur í Vaðlaheiði norðaustan Akureyrar.
Nýtt loftnet hefur verið sett upp og tengt við endurvarpann TF5RPD. Um er að ræða öflugt
skipanet úr trefjagleri sem er rúmlega 7 metrar á hæð og hefur tæplega 9 dB ávinning og
var notað við endurvarpann til ársins 2009 er það féll til jarðar. Í millitíðinni var notað heima-
smíðað "Slim-Jim" loftnet". Að sögn Þórs Þórissonar, TF3GW, var fæðilína endurnýjuð við
sama tækifæri. Frágangi var lokið í gær, þann 19. júlí.
Fyrstu prófanir lofa góðu. TF5B og TF3GL/m höfðu t.d. samband um TF5RPD þegar TF3GL/m
var staddur á erfiðum stað til fjarskipta við Mývatn. Það gekk ágætlega að sögn TF5B.
Endurvarpinn tekur á móti á 145.025 MHz og sendir út á 145.725 MHz. Hann er staðsettur í
Vaðlaheiði sem er 550 metra hátt fjall norðaustur af Akureyri. Endurvarpinn er búinn auðkenni
á morsi.
Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Guðmundi Sigurðssyni, TF3GS og Þór Þórissyni, TF3GW, fyrir að
annast verkefnið.
SteppIR 3E þriggja staka Yagi loftnet TF3IRA er 6 banda loftnet í tíðnisviðum frá 14-52 MHz.
Erling Guðnason, TF3EE, átti ferð framhjá félagsaðstöðunni í Skeljanesi skömmu eftir hádegi
í dag, 21. júlí, ásamt Jakob Helgasyni, TF3EJ. Þá þegar var vindur orðinn nokkur í vestur-
bænum og SteppIR 3E Yagi loftnet TF3IRA farið að sveiflast laust. Í framhaldi var ákveðið að
vinda bráðan bug að því að stífa loftnetið af, enda verðurspá slæm fyrir kvöldið og nóttina.
Nokkru síðar mættu þeir Ari Þór Jóhannesson, TF3ARI og Baldvin Þórarinsson, TF3-Ø33, á
staðinn og var hafist handa, turninn klifinn og gengið trygglega frá festingu bómunnar við turn-
rörið, auk þess sem bóman var stífuð af til öryggis. Verkinu var lokið um kl. 17 í eftirmiðdaginn.
Það var samdóma álit þeirra þriggja, að panta þurfi a.m.k. svokallað "High Wind Kit" frá SteppIR,
(sjá mynd neðar á síðunni) auk þess sem líklega þurfi að endurskoða rótormál.
Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Erling Guðnasyni, TF3EE, Ara Þór Jóhannessyni TF3ARI, og Baldvin
Þórarinssyni, TF3-Ø33, fyrir vinnuframlag þeirra félaga í dag til að tryggja sem best að loftnet
félagsins verði ekki fyrir skemmdum. Sérstakar þakkir til TF3ARI fyrir meðfylgjandi ljósmyndir.

Baldvin Þórarinsson TF3-Ø33 vinnur að undirbúning aðgerða. Ljósmynd: TF3ARI.

Erling Guðnason TF3EE vinnur í turninum. Ljósmynd: TF3ARI.

Bóma loftnetsins stífuð af. Ljósmynd: TF3ARI.

Á myndinni má sjá hvernig bóma loftnetsins er stífuð af. Ljósmynd: TF3ARI.

Mynd af áðurnefndum aukahlut frá SteppIR fyrir "vindasöm QTH" ásamt útskýringartextum.

Júlíhefti CQ TF er komið út og er aðgengilegt félagsmönnum á vef ÍRA. Jafnframt er blaðið sent í tölvupósti á netföng allra félagsmanna.
Ákveðið hefur verið að fjölfalda blaðið ekki á pappír og senda þannig til félagsmanna, eins og verið hefur. Er þetta gert í sparnaðarskyni og vonandi taka félagar ÍRA því vel. Þá ber að geta þess að Vilhjálmur Í. Sigurjónsson, TF3VS, hefur lagt útgáfunni lið með því að taka að sér uppsetningu og umbrot efnis og á hann skildar kærar þakkir félagsins fyrir gott verk.
Njótið lestrarins og vonandi fáum við skemmtilegt og fróðlegt efni - texta og myndir - frá radíóafrekum félagsmanna í lok sumars. Skilafrestur efnis í næsta blað er sunnudagurinn 23. september.
73 - Kiddi, TF3KX, ritstjóri CQ TF
WAS viðurkenningarskjöl félagsstöðvarinnar TF3IRA eru komin til landsins. Ljósmynd: TF2JB.
Worked All States Award (WAS) viðurkenningarskjölin frá ARRL fyrir TF3IRA komu í hús s.l.
fimmtudag. Um er að ræða þrjú viðurkenningarskjöl, þ.e. svokallað "basic" skjal fyrir allar tegundir
útgeislunar (mixed), fyrir mors (CW) og fyrir tal (Phone). ARRL hefur staðfest að þetta eru fyrstu WAS
viðurkenningaskjölin sem gefin hafa verið út til félagsstöðvarinnar, TF3IRA. Skjölin verða nú send til
innrömmunar og að því loknu valinn staður í fjarskiptaherbergi félagsins í samráði við stöðvarstjóra.
Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Mathíasi Hagvaag, TF3-Ø35 og Guðlaugi Kristni Jónssyni, TF8GX,
fyrir aðkomu þeirra að verkefninu, en Matthías tók saman kortin og vann umsóknir og Guðlaugur,
sem er trúnaðarmaður ARRL hér á landi, annaðist yfirferð korta og sendingu gagna vestur um haf.
Þess má geta, að ARRL felldi niður öll gjöld vegna umsóknanna.

Benedikt Sveinsson TF3CY lagfærir AlfaSpid rótorinn við SteppIR 3E Yagi loftnet TF3IRA s.l.
fimmtudagskvöld. Ljósmynd: Jón Svavarsson TF3LMN.
Líkt og fram kom á póstlista félagsins í gær, þann 27. júlí, kleif Benedikt Sveinsson, TF3CY,
loftnetsturn félagsins á fimmtudagskvöldið og náði að gera við AlfaSpid rótorinn. Stífan, sem
sett var upp s.l. laugardag var því fjarlægð og er nú hægt að snúa loftnetinu. Næsta skref er
að endurstilla stýriboxið svo það sýni rétta stefnu og forrita endastopp, þar sem við sama tæki-
færi tókst að gera við rás sem telur snúninga mótorsins. Að sögn Benedikts, er rótorinn nú
tryggilega fastur.
Í viðtali við Benedikt í dag kom m.a. fram, að hann telur að fyrir haustið þurfi að fella turninn og
vatnsverja vel rótorhúsið og gera loftnetið að öðru leyti klárt fyrir vetrarveðrin. Þess má geta, að
samþykkt var á stjórnarfundi s.l. fimmtudag að félagssjóður festi kaup á sérstökum "High Wind"
festingum fyrir SteppIR loftnetið. Áætlað innkaupsverð er um 22 þúsund krónur.
Stjórn Í.R.A. þakkar Benedikt fyrir frábært framtak og vel unnið verk.

TF útileikarnir fara fram að venju um verslunarmannahelgina, næstu helgi, og standa yfir í 3 sólarhringa, frá kl. 00z á laugardegi til kl. 24z á mánudegi. Munið aðalþátttökutímabilin:
kl. 1700-1900 laugardag
kl. 0900-1200 sunnudag
kl. 2100-2400 sunnudag
kl. 0800-1000 mánudag
en auðvitað má hafa sambönd hvenær sem er yfir helgina. Ágætt er að nota kalltíðnina 3637 kHz til að hefja sambönd, en mæla sér svo mót á öðrum tíðnum ef þörf er á.
Íslenskir radíóamatörar, hérlendis og erlendis, eru hvattir til að taka þátt, og gjarnan senda logga og jafnvel myndir eða frásagnir úr útileikunum, til Bjarna, TF3GB. Nánari upplýsingar um útileikana má finna í júlíhefti CQ TF og á vef ÍRA.