News from 17 Jun 2012

  2012/06/17
Miklar truflanir í segulsviðinu.
Last changed: 17 Jun 2012 12:30 by TF2JB


Mælingahús háloftadeildar Raunvísindastofnunar H.Í. í Leirvogi. Mælingar hafa verið gerðar frá 1957.

Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring. Linuritin neðar á síðunni sýna það sem
hefur verið að gerast síðastliðinn sólarhring, þ.e. frá hádegi 16. júní til hádegis 17. júní. Á hádegi í dag,
þann 17. júní, stóð K-gildið í rúmlega 6, en vísun yfir 5 er flokkuð sem segulstormur. Skilyrðaspár eru
þess efnis að truflanir haldi áfram í dag og að ójafnvægis muni gæta eitthvað áfram.

Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan
styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla
(nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346°
merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðal-
misvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.

Gögn eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Sjá nánar vefslóð: http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Sjá einnig upplýsingar á þessari vefslóð: http://www.solen.info/solar/

Posted at 17 Jun @ 12:44 PM by TF2JB | 0 Comments