News from 15 Jun 2012

  2012/06/15
TF3RPC í Reykjavík QRV á ný...
Last changed: 15 Jun 2012 11:04 by TF2JB


TF3RPC notar loftnet af gerðinni G6-144B frá New-Tronics.

Endurvarpi félagsins við Hagatorg í Reykjavík, TF3RPC, er QRV á ný. Sigurður Harðarson,
TF3WS, tengdi stöðina í morgun (15. júní) og var "Einar" fullbúinn um kl. 10:30. Prófanir lofa
góðu og í öllum tilvikum virðast merkin góð.

Vegna breytinga í húsnæðinu þar sem endurvarpinn hefur aðstöðu, þurfti að færa stöðina til.
Jákvæð áhrif breytingarinnar eru m.a. styttri fæðilína sem nú er aðeins um 6 metrar að lengd.
Vinnutíðnir TF3RPC: 145.175 MHz RX / 145.775MHz TX.

Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði Harðarsyni, TF3WS, fyrir aðstoð við tengingu endurvarpans.
Einnig Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI, fyrir aðstoð við prófanir.

Posted at 15 Jun @ 11:04 AM by TF2JB | 0 Comments
Haraldur Sigurðsson, TF3A, er látinn.
Last changed: 15 Jun 2012 11:48 by TF2JB

Haraldur Sigurðsson, TF3A, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað, RST 000.

Sonur hans, Haukur Þór Haraldsson, TF3NAN, hefur sent erindi til félagsins þess efnis að faðir hans hafi látist á líknardeild Landspítalans í gær, 14. júní. Haraldur var á 81. aldursári, leyfishafi nr. 26 og heiðursfélagi í Í.R.A.

Um leið og við minnumst Haraldar með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.

Fyrir hönd stjórnar,

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Posted at 15 Jun @ 11:56 AM by TF2JB | 0 Comments