News from 02 Jun 2012

  2012/06/02
Starfshópur um mótun neyðarfjarskiptastefnu.
Last changed: 02 Jun 2012 10:23 by TF2JB


Mynd frá fundi um neyðarfjarskipti sem haldinn var í félagsaðstöðu Í.R.A. í fyrra. Ljósmynd: TF3LMN.

Á stjórnarfundi í Í.R.A. þann 30. maí var samþykkt að auglýsa eftir áhugasömum félagsmönnum til að
taka sæti í starfshópi sem geri tillögur um neyðarfjarskiptastefnu Í.R.A. Áhugasamir eru beðnir um að
setja sig í samband við formann, aðra stjórnarmenn eða að senda tölvupóst á ira hjá ira.is fyrir 5. júlí
næstkomandi.

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum sínum til stjórnar félagsins fyrir 13. maí 2013 með það
fyrir augum að málið verði formlega til kynningar á aðalfundi Í.R.A. 2013. Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA,
neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A. verður formaður starfshópsins og mun svara fyrirspurnum félagsmanna um
verkefnið. Til upplýsingar skal þess getið, að eitt af skilgreindum markmiðum Í.R.A. er að hvetja til við-
búnaðar sem mætti gagnast í neyðarfjarskiptum.

F.h. stjórnar Í.R.A.

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Posted at 02 Jun @ 10:30 AM by TF2JB | 0 Comments