News from June, 2012

  2012/06/01
TF3XUU í stuttri heimsókn á Íslandi.
Last changed: 01 Jun 2012 15:59 by TF2JB


Frá vinstri: Sigurbjörn Þór Bjarnason TF3SB, Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX, Kristján Benediktsson
TF3KB og Martin Berkofsky TF3XUU (KC3RE) á góðri stundu í Kaffivagninum í Reykjavík þann 27. maí
s.l. Ljósmynd: Sigurbjörn Þór Bjarnason, TF3SB.

Martin Berkofsky, TF3XUU (KC3RE) píanóleikari var hér á ferð nýlega og spilaði m.a. á tónleikum til
styrktar Krabbameinsfélagi Íslands í Hörpu þann 26. maí. Martin gaf sér tíma til að hitta nokkra
íslenska leyfishafa skömmu áður en hann hélt af landi brott þann 27. maí s.l., sbr. ljósmynd að ofan.

Martin lauk prófi til amatörleyfis hér á landi árið 1984 og starfaði m.a. um tíma sem radíóvitastjóri
Í.R.A. á Garðskaga þar sem hann gætti radíóvitans TF8VHF sem varð QRV 19. janúar 1986, QRG
144.939 MHz. Martin er mikill morsmaður og var virkur hér á landi um árabil, bæði sem TF3XUU og
TF8XUU.

________________

Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX, skrifaði ágæta grein um Martin í febrúarblaði CQ TF 2004. Sjá meðfylgjandi vefslóð:http://www.ira.is/download/attachments/4555479/2004_01tbl.pdf?version=1&modificationDate=1271782556000

Sjá einnig skemmtilega umfjöllun um Martin á blogsíðu Ágústar H. Bjarnasonar, TF3OM.
Vefslóð: http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/842019/

Posted at 01 Jun @ 4:06 PM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/02
Starfshópur um mótun neyðarfjarskiptastefnu.
Last changed: 02 Jun 2012 10:23 by TF2JB


Mynd frá fundi um neyðarfjarskipti sem haldinn var í félagsaðstöðu Í.R.A. í fyrra. Ljósmynd: TF3LMN.

Á stjórnarfundi í Í.R.A. þann 30. maí var samþykkt að auglýsa eftir áhugasömum félagsmönnum til að
taka sæti í starfshópi sem geri tillögur um neyðarfjarskiptastefnu Í.R.A. Áhugasamir eru beðnir um að
setja sig í samband við formann, aðra stjórnarmenn eða að senda tölvupóst á ira hjá ira.is fyrir 5. júlí
næstkomandi.

Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum sínum til stjórnar félagsins fyrir 13. maí 2013 með það
fyrir augum að málið verði formlega til kynningar á aðalfundi Í.R.A. 2013. Jón Þóroddur Jónsson, TF3JA,
neyðarfjarskiptastjóri Í.R.A. verður formaður starfshópsins og mun svara fyrirspurnum félagsmanna um
verkefnið. Til upplýsingar skal þess getið, að eitt af skilgreindum markmiðum Í.R.A. er að hvetja til við-
búnaðar sem mætti gagnast í neyðarfjarskiptum.

F.h. stjórnar Í.R.A.

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Posted at 02 Jun @ 10:30 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/04
Skipt um tónlæsingu á TF8RPH.
Last changed: 04 Jun 2012 13:09 by TF2JB


Loftnet TF8RPH. Myndin var tekin var í hvassviðrinu 13. maí og sýnir að netið svignar vel. Ljósm.: TF8SM.

Á stjórnarfundi í félaginu þann 30. maí s.l. var samþykkt að fara þess á leit við þá TF3ARI og TF8SM,
umsjónarmenn endurvarpans TF8RPH, að breyta tónlæsingu stöðvarinnar á ný yfir í stafræna kóðun,
DCS-023. Samkvæmt samtali við TF3ARI í síma í dag, verður breytingin gerð í kvöld, mánudaginn
4. júní 2012 kl. 20:00.

TF8RPH varð QRV þann 21. apríl s.l. og var frá byrjun notuð DCS-023 tónlæsing í tilraunaskyni. Vegna
samanburðarprófana var skipt yfir í CTCSS tónlæsingu, þann 1. maí s.l. og sem nú hefur verið notuð til
reynslu í rúman mánuð. Það er samdóma álit manna, að stafræna læsingin taki þeirri hefðbundnu fram
og er markmiðið að nota hana áfram, nema sérstakir annmarkar komi í ljós.

Á næstu dögum verður auðkenni endurvarpans á morsi stytt og bætt inn stöfunum "de" fyrir framan
kallmerkið TF8RPH. Ástæða þessa er, að stundum virðist sem endurvarpinn "klippi" stafinn "T" framan
af kallmerkinu. Í annan stað, er hugmyndin að stytta "skottið" í sendingu stöðvarinnar úr 1 sek. í 0,5 sek.
Stutta tónmerkið sem sett var inn í lok sendingar endurvarpans verður notað áfram, en það er mikilvægt
þegar stafræn tónlæsing er notuð, til að sá sem hlustar átti sig á hvenær sending endar.

Endurvarpinn tekur á móti á tíðninni 145.125 MHz og sendir út á tíðninni 145.725 MHz. Líkt og áður hefur
komið fram, er hægt að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að
afkóða sendingar í móttöku.

Þess má geta að lokum, að heimild Póst- og fjarskiptastofnunar til áframhaldandi notkunar endurvarpa
á þessum stað á þessari tíðni var fengin þann 31. maí s.l., en til þess tíma hafði stöðin verið rekin á
sérstakri bráðabirgðaheimild frá stofnuninni.

Þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, eru færar þakkir fyrir að
hafa veg og vanda af áframhaldandi vinnu við endurvapann. Það sama á við um aðra félagsmenn sem komið
hafa að verkefninu.

Posted at 04 Jun @ 12:53 PM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/06
Ný heimild frá Póst- og fjarskiptastofnun.
Last changed: 06 Jun 2012 10:16 by TF2JB

Í.R.A. hefur borist erindi frá Póst- og fjarskiptastofnun dags. 6. júní 2012 þess efnis, að íslenskum
leyfishöfum er, frá og með deginum í dag, veitt heimild til að nota PSK-31 tegund útgeislunar
(6OH0J2B) á 60 metrum. Heimildir fyrir öðrum mótunaraðferðum í tíðnisviðinu eru áfram óbreyttar,
þ.e. J3E (USB) og A1A (CW) miðað við 3 kHz hámarksbandbreidd. Heimild PFS er í samræmi við
beiðni félagsins þessa efnis, sem send var stofnuninni þann 22. mars s.l.

Þess skal getið, að þeir leyfishafar sem sótt hafa um og fengið sérstaka heimild stofnunarinnar til
nota á 60 metrum fyrir ofangreinda dagsetningu þurfa ekki að sækja sérstaklega um heimild til að
nota PSK-31.

Stjórn Í.R.A. fagnar framkominni heimild stofnunarinnar.

________

Sjá nánar upplýsingar um sérheimild til handa íslenskum leyfishöfum á 60 metrum á þessari vefslóð:
http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=4555620

Posted at 06 Jun @ 9:45 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/07
TF3RPC verður QRT í vikutíma...
Last changed: 07 Jun 2012 11:57 by TF2JB


Mynd af loftneti endurvarpans TF3RPC í Reykjavík. Ljósmynd: TF3WS.

Endurvarpinn TF3RPC verður QRT í rúma viku vegna viðhaldsframkvæmda í
húsnæðinu sem hann hefur til nota við Hagatorg. Áætlað er að unnt verði að
tengja hann á ný eigi síðar en föstudaginn 15. júní n.k.

Posted at 07 Jun @ 2:02 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/08
Turnefni til ráðstöfunar fyrir TF3IRA.
Last changed: 08 Jun 2012 20:05 by TF2JB


Umræddar turneiningar eru geymdar á milli húss og bárujárnsveggjar í Skeljanesi. Ljósmynd: TF2JB.

Um nokkurn tíma hefur félaginu staðið til boða að fá til ráðstöfunar turneiningar og annað loftnetaefni
sem upphaflega var í notkun á Rjúpnahæð. Guðmundur Sveinsson, TF3SG, auglýsti eftir aðstoð á
póstlista félagsins þann 5. júní s.l., með það í huga að sækja þetta efni þegar ljóst var að vel búin
vörubifreið (með krana) á vegum G. Svans Hjálmarssonar, TF3FIN, stæði félaginu til boða þann 7. júní.

Það varð síðan úr, kl. 19 fimmtudaginn 7. júní að turneiningarnar voru sóttar og fluttar í Skeljanes. Sá
þriðji sem slóst í hópunn, auk þeirra TF3SG og TF3FIN, var Benedikt Sveinsson, TF3CY. Verkefnið
gekk rösklega og upp úr kl. 21:30 voru einingarnar 12 komnar á geymslustað í Skeljanesi.

Hugmyndin er í framhaldi, að reisa annan loftnetsturn fyrir TF3IRA, nokkru fjær þeim fyrri, á lóðinni
við húsið í Skeljanesi og hafa menn þá einkum í huga uppsetningu loftneta fyrir lægri böndin.

Stjórn Í.R.A. færir þeim Guðmundi Sveinssyni, TF3SG, G. Svani Hjálmarssyni, TF3FIN og Benedikt
Sveinssyni, TF3CY, bestu þakkir fyrir framtakið.

Posted at 08 Jun @ 8:19 PM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/14
TF1RPB í Bláfjöllum QRV á ný...
Last changed: 14 Jun 2012 09:56 by TF2JB


TF1RPB notar endurvarpa af gerðinni RT-4000 frá Zodiac.

Endurvarpi félagsins í Bláfjöllum, TF1RPB, er QRV á ný. Sigurður Harðarson, TF3WS, lagði á fjallið
snemma í morgun (14. júní) og tengdi "Pál"; stöðin var fullbúin kl. 09:15. Fyrstu prófanir lofa góðu en þrír
leyfishafar prófuðu stöðina skömmu eftir uppsetningu, þ.e. Ari Þórólfur Jóhannesson, TF3ARI (bæði frá
eign QTH og /m í Reykjavík), Ólafur Björn Ólafsson, TF3ML/7 (frá Vestmannaeyjum) og Guðmundur Ingi
Hjálmtýsson, TF3IG/1 (frá Grímsnesi í Árnessýslu). Í öllum tilvikum reyndist merkin góð.

Vinnutíðnir TF1RPB eru 145.150 MHz RX / 145.750 MHz TX. Félagsmönnum er bent á, að endurvarpinn
er forritaður með útsendingartakmörkun (e. time-out) sem þýðir að eftir u.þ.b. 4 mínútur dettur sending út.
Auðveldlega má koma í veg fyrir þetta, ef menn bíða í 1-2 sek. á milli þess sem sent er þannig að endur-
varpinn nái að detta út á milli sendinga.

Fljótlega verður lagt á fjallið á ný. Við það tækifæri verður útsendingartakmörkun fjarlægð ásamt því að
auðkenni á morsi verður tengt og loftnetamálum komið í endanlegt horf.

Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði Harðarsyni, TF3WS, fyrir frábæra aðstoð við endurgangsetningu TF1RPB.
Einnig þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI; Ólafi Birni Ólafssyni, TF3ML/7 og Guðmundi Inga Hjálmtýs-
syni, TF3IG/1 fyrir aðstoð við prófanir.

Posted at 14 Jun @ 9:28 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/15
TF3RPC í Reykjavík QRV á ný...
Last changed: 15 Jun 2012 11:04 by TF2JB


TF3RPC notar loftnet af gerðinni G6-144B frá New-Tronics.

Endurvarpi félagsins við Hagatorg í Reykjavík, TF3RPC, er QRV á ný. Sigurður Harðarson,
TF3WS, tengdi stöðina í morgun (15. júní) og var "Einar" fullbúinn um kl. 10:30. Prófanir lofa
góðu og í öllum tilvikum virðast merkin góð.

Vegna breytinga í húsnæðinu þar sem endurvarpinn hefur aðstöðu, þurfti að færa stöðina til.
Jákvæð áhrif breytingarinnar eru m.a. styttri fæðilína sem nú er aðeins um 6 metrar að lengd.
Vinnutíðnir TF3RPC: 145.175 MHz RX / 145.775MHz TX.

Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði Harðarsyni, TF3WS, fyrir aðstoð við tengingu endurvarpans.
Einnig Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI, fyrir aðstoð við prófanir.

Posted at 15 Jun @ 11:04 AM by TF2JB | 0 Comments
Haraldur Sigurðsson, TF3A, er látinn.
Last changed: 15 Jun 2012 11:48 by TF2JB

Haraldur Sigurðsson, TF3A, hefur haft sitt síðasta QSO; merki hans er hljóðnað, RST 000.

Sonur hans, Haukur Þór Haraldsson, TF3NAN, hefur sent erindi til félagsins þess efnis að faðir hans hafi látist á líknardeild Landspítalans í gær, 14. júní. Haraldur var á 81. aldursári, leyfishafi nr. 26 og heiðursfélagi í Í.R.A.

Um leið og við minnumst Haraldar með þökkum og virðingu færum við fjölskyldu hans innilegustu samúðarkveðjur.

Fyrir hönd stjórnar,

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Posted at 15 Jun @ 11:56 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/16
Tónlæsing TF8RPH færð til baka...
Last changed: 16 Jun 2012 10:31 by TF2JB


TF8RPH notar loftnet af gerðinni Workman UVS-300 frá Opec. Ljósmynd: TF8SM.

Eftir töluverða skoðun, hefur verið ákveðið að skipta tónlæsingu endurvarpans TF8RPH á Garðskaga
á ný yfir á hefðbundna tónlæsingu, CTCSS, og verður endurvarpanum breytt samkvæmt því í dag,
laugardaginn 16. maí, kl. 16:00. Sami tónn verður notaður og áður, þ.e. á 88,5 riðum. Stöðin verður
áfram stillt á "wideband" mótun. Þessi breyting er hugsuð til framtíðar.

Þegar skipt var yfir á DCS tónlæsingu þann 4. júní s.l., samþykkti stjórn félagsins að það yrði gert með
þeim fyrirvara, að ekki kæmu sérstakir annmarkar í ljós. Líkt og fram kom á póstlista félagsins strax degi
síðar (5. júní) og víðar, hefur komið á daginn, að jafnvel verksmiðjuframleiddar stöðvar á markaði fram undir
árið 2006 voru ekki búnar stafrænni tónlæsingu (DCS). Um er að ræða þekktar gerðir stöðva frá stórum
framleiðendum eins og Icom og Kenwood.

Í ljósi þessa, verður skipt yfir á fyrri tónlæsingu síðar í dag eins og fram kemur að ofan. Um leið verður
auðkenni endurvarpans á morsi stytt og "skottið" í sendingu úr 1 sek. í 0,5 sek. TF8RPH tekur á móti
á tíðninni 145.125 MHz og sendir út á tíðninni 145.725 MHz. Líkt og áður hefur komið fram, er hægt að
hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í móttöku.

Ari Þórólfur Jóhannesson TF3ARI og Sigurðar Smári Hreinsson TF8SM hafa góðfúslega tekið að sér að
annast ofangreindar breytingar.

F.h. stjórnar Í.R.A.

Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.

Posted at 16 Jun @ 12:53 AM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/17
Miklar truflanir í segulsviðinu.
Last changed: 17 Jun 2012 12:30 by TF2JB


Mælingahús háloftadeildar Raunvísindastofnunar H.Í. í Leirvogi. Mælingar hafa verið gerðar frá 1957.

Töluverðar truflanir hafa verið í segulsviðinu s.l. sólarhring. Linuritin neðar á síðunni sýna það sem
hefur verið að gerast síðastliðinn sólarhring, þ.e. frá hádegi 16. júní til hádegis 17. júní. Á hádegi í dag,
þann 17. júní, stóð K-gildið í rúmlega 6, en vísun yfir 5 er flokkuð sem segulstormur. Skilyrðaspár eru
þess efnis að truflanir haldi áfram í dag og að ójafnvægis muni gæta eitthvað áfram.

Efsta línuritið (Z) sýnir styrkleika segulsviðs jarðar í stefnu lóðrétt niður, næsta línurit (H) sýnir láréttan
styrkleika sviðsins og neðsta línuritið (D) sýnir áttavitastefnuna. Z og H eru sýnd í einingunum nanotesla
(nT), en D er sýnt í gráðum sem reiknast sólarsinnis frá norðri um austur upp í 360°. Ef D er t.d. 346°
merkir það að misvísun áttavitans í Leirvogi er 346° til austurs eða 14° til vesturs (360-346 = 14). Meðal-
misvísun á Reykjavíkursvæðinu er um 2° meiri til vesturs og væri þá um 16° V í þessu dæmi.

Gögn eru endurnýjuð á tíu mínútna fresti. Sjá nánar vefslóð: http://www.raunvis.hi.is/~halo/leirvogur.html
Sjá einnig upplýsingar á þessari vefslóð: http://www.solen.info/solar/

Posted at 17 Jun @ 12:44 PM by TF2JB | 0 Comments
  2012/06/24
Efni í CQ TF
Last changed: 24 Jun 2012 11:53 by TF3KX - Kristinn Andersen

Næsta hefti CQ TF fer í vinnslu í vikunni og gefinn hafði verið skilafrestur efnis til loka þessara helgar, 24. júní. Ef félagar ÍRA hafa efni til að senda í blaðið má senda ritstjóra það, eða láta vita að efni sé væntanlegt á næstu dögum.

Eins og venjulega aðstoðar ritstjóri við að skrifa texta ef þess er óskað, nóg er að senda nokkrar línur eða slá á þráðinn með hugmyndir og ábendingar sem hægt er svo að vinna með.

Blaðið verður í vinnslu núna í vikunni og félagsmenn eru hvattir til að leggja því lið með frásögnum, myndum, eða ábendingum um áhugavert efni.

73 - Kiddi, TF3KX, ritstjóri CQ TF
Netfang: cqtf@ira.is
GSM: 825-8130

Posted at 24 Jun @ 12:19 PM by TF3KX - Kristinn Andersen | 0 Comments
  2012/06/28
TF VHF-leikarnir nálgast...
Last changed: 28 Jun 2012 04:57 by TF2JB


7 staka Yagi loftnetið frá M2 af gerðinni 2M7 fyrir 144 MHz hefur 10,3 dB ávinning
(yfir tvípól) vegur aðeins 1,8 kg og er dæmi um meðfærilegt loftnet fyrir VHF-leikana.

Um aðra helgi, föstudag til sunnudags 6.-8. júlí, verða TF VHF-leikarnir haldnir fyrsta sinni.

Líkt og TF-útileikarnir eru VHF-leikarnir fyrst og fremst leikar en ekki keppni, og reyna á útsjónar-
semi manna við að ná samböndum á VHF. Heimilt er að nota hvers kyns hjálp við að "koma á"
samböndunum – á 3637 kHz eða jafnvel GSM! – en samböndin sjálf verða að vera án notkunar
virkra endurvarpa og ekki "crossband"...og þar með eru tæknilegar takmarkanir nánast upptaldar!

"Keppniselementið" fæst með því að ná sem lengst, enda stig gefin samkvæmt reikniformúlunni
kílómetrar í öðru veldi. Einnig geta þeir sem eru útbúnir á fleiri böndum talið stig á hverju heimiluðu
bandi, og þeir sem klífa fjöll, finna góð brot eða eru með öflug loftnet geta vænst lengri sambanda
og þar með fleiri stiga. Svo hjálpar auðvitað að nota CW og SSB, umfram FM einvörðungu.

Aðalþátttökutímabilin eru kl 9-12 bæði kvölds og morgna fös-lau-sun og gefin eru stig fyrir
allt að 6 sambönd við sömu stöð á sama bandi (þ.e. 6 stigahæstu samböndin telja), en 6 tímar
verða að líða á milli. Það ber að undirstrika að þetta eru ekki takmarkanir á samböndunum sjálfum,
heldur á stigagjöfinni. Það er um að gera að koma eins mörgum samböndum í logginn og hver vill.
Hver veit nema það verði gefin þátttökuverðlaun?!

Þar sem við rennum frekar blint í sjóinn með þátttöku, auk þess sem vera kann að reglurnar þurfi
að fínslípa eftir fyrstu leikana, verður sett upp skjal á vefnum þar sem þátttakendur geta gefið hver
öðrum innsýn í sín plön eftir því sem hver vill. Meira um það síðar.

Í millitíðinni bendi ég á vefsíðu leikanna, http://ira.is/display/web/TF+VHF-leikarnir

73, Gummi TF3GL.

Posted at 28 Jun @ 4:56 AM by TF2JB | 0 Comments