News from 16 May 2012

  2012/05/16
Ákvörðun PFS nr. 112, 2012.
Last changed: 16 May 2012 15:19 by TF2JB

Póst- og fjarskiptastofnun birti eftirfarandi frétt um ákvörðun nr. 112/12 í dag, 16. maí, á
heimasíðu sinni undir fyrirsögninni: Fjarskiptabúnaður radíóáhugamanns ekki talinn
valda skaðlegri geislun. Fréttin er birt í heild sinni hér á eftir.

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur birt ákvörðun sína nr. 12/2012 vegna kvörtunar um
heilsufarslega skaðleg áhrif rafsegulgeislunar frá fjarskiptasendibúnaði. Kvartað var til
stofnunarinnar vegna fjarskiptabúnaðs radíóáhugamanns í nágrenni kvartanda sem taldi
að rafsegulgeislun frá búnaðinum hefði spillandi áhrif á bæði andlegt og líkamlegt heilsufar
hans. Gerði kvartandi þá kröfu að slökkt yrði á búnaðinum og frekari notkun hans bönnuð
af hálfu PFS.

PFS hefur hlutverki að gegna ef upp koma tilvik um rafsegulmengun. Er stofnuninni þá heimilt
að takmarka útgeislað afl sendis. Þessari heimild verður þó ekki beitt nema að uppfylltu því
skilyrði að sýnt þyki að heilsu manna geti stafað hætta af geisluninni. Það er ekki á færi
Póst- og fjarskiptastofnunar að ákveða slík heilsuverndarmörk og meta hvort umhverfi og
aðstæður séu með þeim hætti að mönnum sé hætta búin hvað þetta varðar.

Við slíka ákvörðun verður að byggja á sérfræðilegu mati Geislavarna ríkisins sem í þessu
tilviki sýndi að rafsegulgeislun inni á heimili kvartanda og í nánasta umhverfi við það væri
fyrir innan viðmiðunarmörk Alþjóðaráðsins um varnir gegn ójónandi geislun, ICNIRP, sem
ákveðin eru með tilliti þeirra skaðlegu áhrifa sem of mikil geislun kann að hafa á heilsu
manna. Reyndust mælingar í flestum tilvikum vera langt fyrir innan umrædd mörk. Er það
mat ICNIRP að engar vísindalegar sannanir liggi fyrir um að rafsegulgeislun innan þessara
viðmiðunarmarka geti haft skaðleg áhrif á heilsu manna. Sjálfstæðar mælingar sem PFS
framkvæmdi voru í samræmi við niðurstöðu Geislavarna ríkisins.

PFS telur því ekki vera forsendur til þess að fallast á kröfu kvartanda um að notkun fjarskipta-
sendibúnaðar radíóáhugamannsins verði bönnuð. Þá eru heldur ekki forsendur til þess að
stofnunin dragi úr leyfilegum sendistyrk sendibúnaðarins eða mæli fyrir um breytta stefnuvirkni
loftnetsins.

Þessa frétt og samantekt að baki ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar í heild má sjá
á vefslóð PFS: http://pfs.is/displayer.asp?cat_id=112&module_id=220&element_id=3551

Posted at 16 May @ 11:31 AM by TF2JB | 0 Comments
40 QSO frá TF við 7O6T DX-leiðangurinn.
Last changed: 16 May 2012 22:28 by TF2JB

DX-leiðangurinn til Socotra eyju í Jemen stóð yfir frá 30. apríl til 15. maí. Alls náðust 162.029 sambönd.
Sambönd frá TF-stöðvum urðu alls 40 og áttu 17 TF-stöðvar þessi sambönd.

Flest sambönd hafði Yngvi Harðarson, TF3Y, eða átta; Guðlaugur Kristinn Jónsson, TF8GX, hafði sex;
og Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, hafði fjögur. Aðrir höfðu færri sambönd.

Þorvaldur Stefánsson, TF4M, hafði eina sambandið frá Íslandi á 160 metrum og Guðmundur Sveinsson,
TF3SG, hafði eina sambandið á 80 metrum. Þá náði Brynjólfur Jónsson, TF5B, eina sambandinu sem
haft var á RTTY teg. útgeislunar. Loks voru þeir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX og Narumi Kawai,
JA9APS/TF báðir með sambönd frá bílstöðvum. Hamingjuóskir til hlutaðeigandi fyrir frábæran árangur.
Sjá nánar sundurgreindar upplýsingar um samböndin í töflunni hér fyrir neðan.


TF STÖÐ 10m 12m 15m 17m 20m 30m 40m 80m 160m QSO's Total QSO's
TF3Y     PH PH PH        
3
 
TF3Y     CW CW CW CW CW    
5
8
TF8GX     PH PH PH        
3
 
TF8GX     CW CW CW        
3
6
TF3ZA     PH PH PH        
3
 
TF3ZA     CW CW          
2
5
TF4M   PH              
1
 
TF4M     CW   CW       CW
3
4
TF2JB         PH        
1
 
TF2JB       CW CW        
2
3
TF3DX/m     CW   CW        
2
2
TF3G         PH        
1
 
TF3G         CW        
1
2
TF1MW     CW CW          
2
2
TF2CL         PH        
1
1
TF2LL     PH            
1
1
TF3DC         PH        
1
1
TF3GB         CW        
1
1
TF3IRA         PH        
1
1
TF3SG               CW  
1
1
TF4PS     PH            
1
1
TF5B     RTTY            
1
1
JA9APS/TF/m         CW        
1
1
    1PH 5PH 3PH 8PH          
17 PHONE
      6CW 5CW 7CW 1CW 1CW 1CW 1CW  
22 CW
      1RTTY              
1 RTTY
Posted at 16 May @ 8:45 PM by TF2JB | 0 Comments