
Loftnet TF8RPH er staðsett á turninum við vitavarðarhúsið. Ljósmynd: TF8SM.
Líkt og fram kom í fréttadálki hér á heimasíðunni þann 21. apríl, var endurvarpinn TF8RPH settur upp
í tilraunaskyni, m.a. með prófun mismunandi tónlæsinga í huga. Endurvarpinn hefur nú, um 10 daga
skeið, verið útbúinn með DCS 023 tónlæsingu.
Nú er komið að því að gera tilraun með hefðbundna tónlæsingu, CTCSS, og var endurvarpanum breytt
samkvæmt því í dag, 1. maí, kl. 15:15. Tónninn sem notaður er nú, er á 88.5 riðum. Stöðin er enn
stillt á "wideband" mótun. Hugmyndin er, að gera prufu með þessa læsingaraðferð í um viku tíma.
Það sama gildir um CTCSS tónlæsinguna og DCS 023 tónlæsinguna, að í báðum tilvikum er hægt er
að hlusta á sendingar frá TF8RPH í venjulegu viðtæki eða stöð, þ.e. ekki þarf að afkóða sendingar í
móttöku.
Þeim Ara Þórólfi Jóhannessyni, TF3ARI og Sigurði Smára Hreinssyni, TF8SM, eru færar þakkir fyrir að
hafa veg og vanda af áframhaldandi vinnu við endurvapann. Það sama á við um aðra félagsmenn sem komið
hafa að verkefninu.

Í maíhefti CQ tímaritsins 2012 eru birtar niðurstöður úr CQ World-Wide RTTY DX keppninni sem fram fór
dagana 25.-26. september 2011. Ágæt þáttaka var frá TF, en alls sendu fimm stöðvar inn keppnisdagbækur
í fjórum keppnisflokkum.
Ársæll Óskarsson, TF3AO, var með bestan árangur af TF stöðvum, bæði í sínum keppnisflokki og
í heild, eða 689,274 stig. Að baki þeim árangri voru alls 1,083 QSO, 164 DXCC einingar (e. entities); 55
svæði (e. zones) og 74 fylki/ríki í Bandaríkjunum og Kanada.
Jón Gunnar Harðarson, TF3PPN, var einnig með mjög góðan árangur eða 676,506 stig. Hann keppti einnig
á öllum böndum, en með 100W í hámarks útgangsafl. Jón Gunnar var í raun með fleiri QSO heldur en Ársæll,
en færri margfaldara.
| Keppnisflokkur | Kallmerki | Árangur, stig | QSO | DXCC | Svæði | US/VE | Skýringar |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Öll bönd | TF3HP* | 19,565
|
116
|
57
|
19
|
15
|
Hámarks útgangsafl |
| Öll bönd | TF8TTY | 2,772
|
41
|
31
|
10
|
3
|
Mest 100W útgangsafl |
| Öll bönd (A) | TF3AO* | 689,274
|
1083
|
164
|
55
|
74
|
Hámarks útgangsafl, aðstoð |
| Öll bönd (A) | TF3IG | 41,402
|
190
|
77
|
31
|
19
|
Hámarks útgangsafl, aðstoð |
| Öll bönd (A) | TF3PPN* | 676,506
|
1187
|
145
|
47
|
82
|
Mest 100W útgangsafl, aðstoð |
*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals.
Stjórn Í.R.A. óskar hlutaðeigandi til hamingju með árangurinn.

Þór Þórisson TF3GW rekur "Echo-link" á 145.325 MHz.
Þór Þórisson, TF3GW, hefur á ný gangsett EchoLink sinn á tíðninni 145.325 MHz; "node" númer 283634.
Í samtali við Dadda í síma í dag, 5. maí, kom m.a. fram, að hann hefur að undanförnu unnið að uppfærslu
búnaðarins, m.a. beinis (e. router), tölvu og hljóðkorts. Hann tekur fram, að enn geti komið fram hnökrar í
notkun þar sem síðustu fínstillingarnar eru eftir, en biður menn þá um að láta sig vita.
Þór flutti erindi um EchoLink á vetrardagskrá félagsins þann 24. mars 2011. Hann útskýrði þá m.a. hvernig
EchoLink vinnur. Um er að ræða tengingu tveggja amatörstöðva (eða fleiri) sem nota tveggja metra bandið.
Merkin fara yfir netið þannig að annar leyfishafinn getur t.d. verið staddur hérlendis og hinn erlendis, í raun
hvar sem er í heiminum. Forsendan er, að hvor leyfishafi um sig hafi aðgang að endurvarpa með nettengingu
og búi yfir upplýsingum um svokallað "node" númer sem er 6 tölustafir.
EchoLink hugbúnaðurinn kom fyrst fram árið 2002 og er skráður samkvæmt einkaleyfi, en radíóamatörum
er heimilt að nota hann frítt. Hönnuður hugbúnaðarins er radíóamatör, Jonathan Taylor, K1RFD. Talið er, að
fjöldi radíóamatöra sem nota EchoLink í heiminum sé í dag um 200 þúsund, þar af eru um 5 þúsund QRV
hverju sinni.

Þór Þórisson TF3GW í sambandi um EchoLink. Myndin var tekin eftir erindi sem hann flutti um EchoLink
samskipti í Skeljanesi þann 24. mars 2011. Með honum á myndinni eru þeir Sigurður Óskar Óskarsson
TF2WIN og Stefán Arndal TF3SA. Ljósmynd: Jón Svavarsson TF3LMN.
Þór Þórsson, TF3GW, hefur nú útbúið EchoLink gátt sína á 145.325 MHz með hefðbundinni tónlæsingu,
CTCSS. Tónninn sem er notaður er á 67 riðum. Stöðin er 25W og er stillt á "wideband" mótun. Breyting
þessi var gerð 7. maí 2012 kl. 18:00. Fram kom í símtali við Þór í dag, að með innsetningu tónlæsingar-
innar getur EchoLink gáttin unnið á daufari merkjum en áður.
Stutt EchoLink kynning/leiðbeiningar.
EchoLink er forrit sem getur tengt saman bæði tölvur og VHF/UHF FM talstöðvar yfir internetið. Tölvurnar
herma eftir talstöðvum og sé tölvan tengd talstöð geta notendur tengst henni þannig á VHF eða UHF.
Þannig fyrirkomulag getur verið í boði hjá einstökum leyfishöfum sem hafa aflað sér heimildar til að reka
EchoLink tengingu á tiltekinni tíðni (t.d. TF3GW) eða gegnum endurvarpa (t.d. algengt erlendis). Í annan
stað geta amatörar haft sambönd um EchoLink milli nettengdra tölva eins og um talstöðvar væri að ræða.
Mikilvægt er að hafa í huga, að í öllum tilvikum þarf leyfishafi að vita fyrirfram svokallað „node“ númer sem
er oftast 6 tölustafa runa. Númerið segir EchoLink hvert boðin eiga að berast. Loks er skilyrði að notendur
séu leyfishafar, hvort heldur notuð er tölva eða talstöð.
HVAÐ ÞARF AÐ GERA?
a) Samband á tiltekinni tíðni á VHF/UHF með FM stöð.
Hér á landi rekur TF3GW EchoLink-tengingu á tíðninni 145.325 MHz. Menn velja þá tíðni. Hljóðneminn er
lyklaður og í framhaldi er tiltekið „node“ númer slegið inn á DTMF lyklaborð stöðvarinnar. Búnaður TF3GW
sér síðan um tengingu og svarar sjálfvirkt hvort tenging hafi tekist eða ekki. Hafi tenging tekist, getur íslenskur
leyfishafi einfaldlega (í næstu sendingu) kallað upp þann radíóamatör sem hann leitar eftir sambandi við.
Í annan stað, er hægt að gefa almennt kall. Það kemur svo í ljós hvort tiltekið kallmerki svarar eða einhver
annar hafi verið gefið almennt kall.
b) Samband um tölvu.
Ef ætlunin er að nota EchoLink frá eigin tölvu, þarf að sækja EchoLink forritið á heimasíðuna www.echolink.org
Þar er kallmerki viðkomandi skráð og tölvupóstfang. Síðan má hlaða forritinu niður og gangsetja með sérstöku
skráningarnúmeri, svokölluðu „node“ númeri sem yfirleitt er 6 tölustafir. Sérstaklega þarf að sækja um „node“
númer hjá EchoLink.org og senda þeim afrit af leyfisbréfi því til sönnunar, að viðkomandi sé leyfishafi. Strax og
„node“ númerið berst, eru menn QRV á EchoLink.
TIL ATHUGUNAR.
Til skýringar skal þess getið, að ekki þarf að hafa formlegt leyfi frá EchoLink (þ.e. „node“ númer) ef menn hafa
einungis í hyggju að tengjast EchoLink í gegnum tengingu annars leyfishafa – sem hefur útbúið tengingu frá
tölvu sinni gegnum sendistöð og býður not af búnaði sínum – þar sem viðkomandi er ábyrgur fyrir tengingunni
gagnvart Póst- og fjarskiptastofnun og EchoLink. Ófrávíkjanleg krafa er þó ætíð að um sé að ræða leyfishafa
og að menn sýni af sér góða háttsemi.
Þess ber að gera að sambönd um EchoLink eru aðeins í boði á tali. Þjónusta EchoLink er án tilkostnaðar fyrir
radíóamatöra. Ekki til siðs að menn skiptist á QSL kortum eftir að hafa talað saman um EchoLink. Að lokum má
geta þess, að EchoLink stöðvar senda út auðkenni með reglulegu millibili til að fullnægja tilkynningaskyldu. Oftast
er notað auðkenni á morsi en líka þekkist að notaðar séu gerviraddir (þ.e. talgerflar). Aftan við kallmerki EchoLink
stöðvarinnar, er ýmist skeytt stafnum „L“ eða „R“. L stendur fyrir „link“ (líkt og hjá TF3GW) og R stendur fyrir
„repeater“ (endurvarpsstöð).
AÐ LOKUM.
Þór Þórisson, TF3GW, er reiðubúinn til að aðstoða þá félagsmenn sem lenda í vandræðum með að tengjast
EchoLink eða hafa spurningar sem ekki eru svör við hér að ofan. Tölvupóstfang hans er: tf3gw(hjá)simnet.is.

Nemendur við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík sendu upp í dag, þann 9. maí, loftbelg í
framhaldi af 8. EVE Online Fanfest hátíð tölvuleikjaframleiðandans CCP sem haldin var í Reykjavík
22.-24. mars s.l. Upphaflega átti að setja belginn á loft þann 24. mars, en veður hamlaði og var fluginu
frestað. Þetta flug fór nú fram í dag (9. maí) og gekk ágætlega.
Flugið hófst á Grandagarði í Reykjavík (frá Grandabryggju) kl. 12:36 og varði flugið til kl. 13:26 er loft-
belgurinn lenti í norðvesturhorni Kleifarvatns (um 20 metra úti í vatninu). Hann hafði þá náð hæst 21,7 km
hæð (sem er nokkru lægra en búist var við). Einskonar "geimskip" var hengt neðan í belginn (með skír-
skotun til "Eve Online" leiksins), en að sögn Jóns Þórodds Jónssonar, TF3JA, slitnaði það úr belgnum
um líkt leyti og hann náði hámarkshæð (21,7 km).
APRS ferilvöktunarbúnaðurinn um borð stóð sig vel og voru merkin frá TF3CCP greinileg allan tímann.
Margir radíóamatörar tóku þátt í að vakta merkin, m.a. þeir Ari Þór Jóhannesson, TF3ARI og Guðmundur
Löve, TF3GL, sem óku á jeppum sínum suður að Kleifarvatni, auk Jóns Þórodds Jónssonar, TF3JA og
fleiri sem vöktuðu APRS-merkin á heimatölvum sínum.
Bestu þakkir til Ara Þórólfs Jóhannessonar, TF3ARI, fyrir ljósmyndirnar og til Jóns Þóroddar Jónssonar,
TF3JA, fyrir meðfylgjandi ferilkort.

Loftbelgurinn lentur í Kleifarvatni, ca. 20 metra frá landi. Ljósmynd: TF3ARI.

Belginn rak að landi skömmu síðar. Hér marar hann í hálfu kafi við ströndina. Ljósmynd: TF3ARI.

Nemendur við Háskólann í Reykjavík nálgast loftbelginn. Ljósmynd: TF3ARI.

Nemendur við Háskólann í Reykjavík ráða ráðum sínum eftir að belgnum hefur verið bjargað á þurft land.
Þyrlan frá tölvuleikjaframleiðandanum CCP var komnin á staðinn til að sækja belginn. Ljósmynd: TF3ARI.

Á kortinu má sjá mynd af ferli loftbelgsins. Mynd: TF3JA.

Nýtt hefti félagsblaðs ÍRA, CQ TF, er komið út. Hér er aprílheftið á ferðinni, nokkru síðar en ætlað var, en vonandi biðarinnar virði. Njótið lestrarins!
Næsta hefti verður júlíblaðið, en skilafrestur efnis í það er sunnudagurinn 24. júní. Sumarið er gengið í garð og alltaf er gaman að fá efni sem tengist ferðalögum um landið, loftnetauppsetningum og öðru sem sumarmánuðirnir bjóða upp á. Munið að taka með ykkur myndavélina og nota hana til að fá myndir af tækjum, loftnetum, og umfram allt ykkur sjálfum, bæði til minningar fyrir ykkur og til að deila með okkur í blaðinu og á vef félagsins.

Ákveðið hefur verið að félagsaðstaða Í.R.A. við Skeljanes verði lokuð fimmtudaginn 17. maí n.k.
sem er uppstigningadagur.
Næsti opnunardagur félagsaðstöðunnar verður fimmtudaginn 24. maí n.k. kl. 20-22:00.

Frá aðalfundi Í.R.A. 2011 sem var haldinn á Radisson Blu Hótel Sögu. Ljósmynd: TF3G.
Aðalfundur Í.R.A. 2012 verður haldinn laugardaginn 19. maí n.k. í Snæfelli (áður "Yale") fundarsal
Radisson Blu hótel Sögu, við Hagatorg í Reykjavík og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá er sam-
kvæmt félagslögum.
Nánar er vísað í fundarboð sem var sent til félagsmanna þann 28. apríl s.l. og auglýsingar í 2. tbl.
CQ TF sem sent var til félagsmanna og birt hér á heimasíðunni þann 14. maí s.l.
Ofangreindu til staðfestingar,
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
______________________________
Úr lögum Í.R.A.:
16. gr.
Aðalfund skal halda seinnihluta maímánaðar ár hvert. Aðalfundur er löglegur ef til hans er boðað með tölvupósti og auglýsingu á heimasíðu félagsins. Jafnframt skal senda þeim félagsmönnum skriflegt fundarboð sem ekki hafa skráð netfang hjá félaginu eða hafa sent stjórn félagsins skriflega ósk þess efnis. Fundarboð skal birta eða póstleggja eigi síðar en þrem vikum fyrir fundardag.
26. gr.
Félagslögum verður aðeins breytt á aðalfundi, enda hafi frumvarp að nýjum eða breyttum greinum borist stjórn félagsins fyrir 15. apríl og verið dreift með aðalfundarboði.
______________________________
Bent er á að samkvæmt 10. gr. hafa einungis skuldlausir félagar kosningarétt og kjörgengi. Skylt er að veita árgjöldum viðtöku við upphaf fundar sé þess óskað.
______________________________

Póst- og fjarskiptastofnun birti eftirfarandi frétt um ákvörðun nr. 112/12 í dag, 16. maí, á
heimasíðu sinni undir fyrirsögninni: Fjarskiptabúnaður radíóáhugamanns ekki talinn
valda skaðlegri geislun. Fréttin er birt í heild sinni hér á eftir.
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur birt ákvörðun sína nr. 12/2012 vegna kvörtunar um
heilsufarslega skaðleg áhrif rafsegulgeislunar frá fjarskiptasendibúnaði. Kvartað var til
stofnunarinnar vegna fjarskiptabúnaðs radíóáhugamanns í nágrenni kvartanda sem taldi
að rafsegulgeislun frá búnaðinum hefði spillandi áhrif á bæði andlegt og líkamlegt heilsufar
hans. Gerði kvartandi þá kröfu að slökkt yrði á búnaðinum og frekari notkun hans bönnuð
af hálfu PFS.
PFS hefur hlutverki að gegna ef upp koma tilvik um rafsegulmengun. Er stofnuninni þá heimilt
að takmarka útgeislað afl sendis. Þessari heimild verður þó ekki beitt nema að uppfylltu því
skilyrði að sýnt þyki að heilsu manna geti stafað hætta af geisluninni. Það er ekki á færi
Póst- og fjarskiptastofnunar að ákveða slík heilsuverndarmörk og meta hvort umhverfi og
aðstæður séu með þeim hætti að mönnum sé hætta búin hvað þetta varðar.
Við slíka ákvörðun verður að byggja á sérfræðilegu mati Geislavarna ríkisins sem í þessu
tilviki sýndi að rafsegulgeislun inni á heimili kvartanda og í nánasta umhverfi við það væri
fyrir innan viðmiðunarmörk Alþjóðaráðsins um varnir gegn ójónandi geislun, ICNIRP, sem
ákveðin eru með tilliti þeirra skaðlegu áhrifa sem of mikil geislun kann að hafa á heilsu
manna. Reyndust mælingar í flestum tilvikum vera langt fyrir innan umrædd mörk. Er það
mat ICNIRP að engar vísindalegar sannanir liggi fyrir um að rafsegulgeislun innan þessara
viðmiðunarmarka geti haft skaðleg áhrif á heilsu manna. Sjálfstæðar mælingar sem PFS
framkvæmdi voru í samræmi við niðurstöðu Geislavarna ríkisins.
PFS telur því ekki vera forsendur til þess að fallast á kröfu kvartanda um að notkun fjarskipta-
sendibúnaðar radíóáhugamannsins verði bönnuð. Þá eru heldur ekki forsendur til þess að
stofnunin dragi úr leyfilegum sendistyrk sendibúnaðarins eða mæli fyrir um breytta stefnuvirkni
loftnetsins.
Þessa frétt og samantekt að baki ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar í heild má sjá
á vefslóð PFS: http://pfs.is/displayer.asp?cat_id=112&module_id=220&element_id=3551

DX-leiðangurinn til Socotra eyju í Jemen stóð yfir frá 30. apríl til 15. maí. Alls náðust 162.029 sambönd.
Sambönd frá TF-stöðvum urðu alls 40 og áttu 17 TF-stöðvar þessi sambönd.
Flest sambönd hafði Yngvi Harðarson, TF3Y, eða átta; Guðlaugur Kristinn Jónsson, TF8GX, hafði sex;
og Jón Ágúst Erlingsson, TF3ZA, hafði fjögur. Aðrir höfðu færri sambönd.
Þorvaldur Stefánsson, TF4M, hafði eina sambandið frá Íslandi á 160 metrum og Guðmundur Sveinsson,
TF3SG, hafði eina sambandið á 80 metrum. Þá náði Brynjólfur Jónsson, TF5B, eina sambandinu sem
haft var á RTTY teg. útgeislunar. Loks voru þeir Vilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX og Narumi Kawai,
JA9APS/TF báðir með sambönd frá bílstöðvum. Hamingjuóskir til hlutaðeigandi fyrir frábæran árangur.
Sjá nánar sundurgreindar upplýsingar um samböndin í töflunni hér fyrir neðan.
| TF STÖÐ | 10m | 12m | 15m | 17m | 20m | 30m | 40m | 80m | 160m | QSO's | Total QSO's |
| TF3Y | PH | PH | PH | 3
|
|||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| TF3Y | CW | CW | CW | CW | CW | 5
|
8
|
||||
| TF8GX | PH | PH | PH | 3
|
|||||||
| TF8GX | CW | CW | CW | 3
|
6
|
||||||
| TF3ZA | PH | PH | PH | 3
|
|||||||
| TF3ZA | CW | CW | 2
|
5
|
|||||||
| TF4M | PH | 1
|
|||||||||
| TF4M | CW | CW | CW | 3
|
4
|
||||||
| TF2JB | PH | 1
|
|||||||||
| TF2JB | CW | CW | 2
|
3
|
|||||||
| TF3DX/m | CW | CW | 2
|
2
|
|||||||
| TF3G | PH | 1
|
|||||||||
| TF3G | CW | 1
|
2
|
||||||||
| TF1MW | CW | CW | 2
|
2
|
|||||||
| TF2CL | PH | 1
|
1
|
||||||||
| TF2LL | PH | 1
|
1
|
||||||||
| TF3DC | PH | 1
|
1
|
||||||||
| TF3GB | CW | 1
|
1
|
||||||||
| TF3IRA | PH | 1
|
1
|
||||||||
| TF3SG | CW | 1
|
1
|
||||||||
| TF4PS | PH | 1
|
1
|
||||||||
| TF5B | RTTY | 1
|
1
|
||||||||
| JA9APS/TF/m | CW | 1
|
1
|
||||||||
| 1PH | 5PH | 3PH | 8PH | 17 PHONE
|
|||||||
| 6CW | 5CW | 7CW | 1CW | 1CW | 1CW | 1CW | 22 CW
|
||||
| 1RTTY | 1 RTTY
|
Gísli G. Ófeigsson TF3G les upp ársreikning félagssjóðs 2011-2012 á aðalfundi 2012. Ljósm.: TF2JB.
Aðalfundur Í.R.A. 2012 var haldinn 19. maí 2012 í Snæfelli fundarsal Radisson Blu Hótel Sögu
við Hagatorg í Reykjavík. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfundarstörf; kosin ný stjórn, samþykktar
lagabreytingar ásamt samþykkt undir liðnum önnur mál. Embættismenn fundarins voru kjörnir þeir
Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS, fundarstjóri og Andrés Þórarinsson, TF3AM, fundarritari. Alls
sóttu 24 félagsmenn fundinn samkvæmt skráningu í viðverubók. Fundurinn var settur kl. 13:05 og
slitið kl. 16:05.
Eftirtaldir skipa nýja stjórn félagsins fyrir starfstímabilið 2012-2013: Jónas Bjarnason, TF2JB, formaður;
Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA; Kjartan H. Bjarnason, TF3BJ; Andrés Þórarinsson, TF3AM og
Benedikt Sveinsson, TF3CY. TF3AM og TF3UA voru kjörnir stjórnarmenn til tveggja ára, en TF3BJ
og TF3CY sitja nú sitt síðara ár. Varamenn voru kjörnir þeir Erling Guðnason, TF3EE og Sigurður
Óskar Óskarsson, TF3WIN. Stjórnin mun skipta með sér verkum fljótlega. Félagsgjald var samþykkt
6000 krónur fyrir starfsárið 2012-2013.
Skoðunarmenn reikninga voru kjörnir þeir Óskar Sverrisson, TF3DC og Haukur Konráðsson, TF3HK;
og til vara, Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson, TF3VS.
Skýrsla stjórnar og reikningur félagssjóðs mun fljótlega verða birtur hér á heimasíðunni ásamt fundar-
gerð og upplýsingum um lagabreytingar og aðrar samþykktir.

Morshluti CQ World-Wide WPX keppninnar fer fram um næstu helgi, 26.-27. maí n.k. Keppnin
er tveggja sólahringa keppni og hefst kl. 00:00 laugardaginn 26. maí og lýkur kl. 23:59 sunnudaginn
27. maí. Keppnin fer fram á 1.8, 3.5, 7, 14, 21 og 28 MHz. Í boði eru fjórir keppnisflokkar:
| Keppnisflokkur | Undirflokkar |
|---|---|
| Einmenningsflokkur | (a) Allt að 1500W; (b) allt að 100W; (c) allt að 5W |
| Einmenningsflokkur, aðstoð | (a) Allt að 1500W; (b) allt að 100W |
| Einmenningsflokkur, "overlay" | (a) "Tribander/single element"; (b) "Rookie" |
| Fleirmenningsflokkur | (a) Einn sendir; (b) tveir sendar; (c) enginn hámarksfjöldi senda |
Keppnisreglur (á ensku): http://www.cqwpx.com/rules.htm
Tilkynningar um þátttöku: http://www.his.com/~wfeidt/Misc/wpxc2012.html
Lögum Í.R.A. var breytt á aðalfundi félagsins 19. maí 2012. Ljósm.: TF2JB.
Lög Í.R.A. hafa verið uppfærð samkvæmt samþykktum breytingum á aðalfundi félagsins
þann 19. maí s.l. Breytingar voru gerðar á 5. og 8. greinum, auk þess sem ný grein, 24.
gr., kom inn. Sú grein sem áður var merkt 24. gr. varð 25. gr., o.s.frv.
Vefslóð: http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=360547
Önnur fundargögn aðalfundar, s.s. ársskýrsla 2011/12, ársreikningur 2011/12 og fundar-
gerð aðalfundarins eru að verða tilbúin og verða sett inn á heimasíðuna næstu daga.
Hluti fundargagna sem lögð voru fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var að Hótel Sögu 19. maí 2011.
Eftirtalin gögn frá aðalfundi 2012 eru komin til viðbótar inn á heimasíðu félagsins:
- Skýrsla formanns um starfsemi félagsins 2011-2012.
- Ársreikningur félagssjóðs fyrir fjárhagsárið 2011-2012.
Hægt er að nálgast gögnin því að fara undir veftré og leit og smella á Félagið og velja Aðalfundur 2012 eða
smella á eftirfarandi vefslóð: http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=5570783
Þau gögn sem upp á vantar frá aðalfundi verða birt fljótlega.
Aðalfundur Í.R.A. 2012 var haldinn 19. maí á Radisson Blu Hótel Sögu í Reykjavík.
Öll gögn stjórnar félagsins frá aðalfundinum 2012 hafa nú verið sett inn á heimasíðuna. Þau eru:
- Skýrsla um starfsemi Í.R.A. 2011-2012.
http://ira.is/download/attachments/4557309/%C3%81rssk%C3%BDrsla+%C3%8D.R.A.+2011-2012+net%C3%BAtg%C3%A1fa.pdf - Reikningar félagssjóðs Í.R.A. 2011-2012.
[http://ira.is/download/attachments/4557309/%C3%81rsreikningur+f%C3%A9lagssj%C3%B3%C3%B0s+2011-2012.pdf] - Fundargerð aðalfundar Í.R.A. 2012.
http://ira.is/download/attachments/4557309/Fundarger%C3%B0+a%C3%B0alfundar+2012.pdf - Félagslög Í.R.A. samþykkt á aðalfundi 2012.
http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=360547
F.h. stjórnar Í.R.A.
Jónas Bjarnason, TF2JB,
formaður.
Mathías Hagvaag TF3-035 hefur yfirfarið QSL kort TF3IRA.
Mathías Hagvaag, TF3-035, hefur unnið að frágangi radíódagbóka og QSL korta félagsstöðvarinnar
undanfarin misseri. Langþráðu takmarki var náð þann 20. október (2011) en þann dag voru þrjú DXCC
viðurkenningaskjöl fyrir TF3IRA sótt í innrömmun og negld á vegg í fjarskiptaherbergi félagsins.
Nú hefur Mathías lokið við gerð umsóknar fyrir fyrsta WAZ (Worked All Zones) viðurkenningarskjalið
svo og gerð þriggja umsókna fyrir WAS (Worked All States) viðurkenningarskjalið (þ.e. "basic", á morsi
og á tali)". Í farvatninu eru umsóknir fyrir tvö WAZ skjöl til viðbótar, auk WPX viðurkenningaskjala.
Stjórn Í.R.A. þakkar Mathíasi fyrir að leiða þetta verkefni af dugnaði.


Fyrsti fundur nýrrar stjórnar Í.R.A. starfsárið 2012-2013 var haldinn miðvikudaginn 30. maí 2012
í félagsaðstöðunni við Skeljanes. Stjórnin skipti með sér verkum á fundinum og er skipan embætta
sem hér segir á nýju starfsári:
| Embætti | Nafn stjórnarmanns | Kallmerki | Leyfisbréf |
|---|---|---|---|
| Formaður | Jónas Bjarnason | TF2JB
|
80
|
| Varaformaður | Andrés Þórarinsson | TF3AM
|
88
|
| Ritari | Sæmundur E. Þorsteinsson | TF3UA
|
90
|
| Gjaldkeri | Kjartan H. Bjarnason | TF3BJ
|
100
|
| Meðstjórnandi | Benedikt Sveinsson | TF3CY
|
200
|
| Varastjórn | Erling Guðnason | TF3EE
|
187
|
| Varastjórn | Sigurður Ó. Óskarsson | TF2WIN
|
360
|
Á fundinum var þeim Gísla G. Ófeigssyni, TF3G, fráfarandi gjaldkera og Guðmundi Sveinssyni,
TF3SG, fráfarandi varastjórnarmanni, þökkuð góð störf í þágu félagsins.
Á fundinum var jafnframt staðfest skipan embættismanna sem skýrt verður frá innan tíðar, auk
fleiri mála.