
Benedikt Sveinsson TF3CY flutti erindi um RF magnara í Skeljanesi 26. apríl.
Benedikt Sveinsson, TF3CY, flutti fimmtudagserindið þann 26. apríl og fjallaði um RF magnara
radíóamatöra. Erindið var fræðandi og skemmtilega flutt. Hann fjallaði m.a. um helsta mun á lampa-
og transistormögnurum og skýrði frá eigin reynslu í magnarasmíðum og benti mönnum á nytsamar
vefslóðir í þeim efnum. Erindi Benedikts var það síðasta í röð erinda á vetrardagskrá félagsins og það
16. á starfsárinu.
Stjórn Í.R.A. þakkar Benedikt Sveinssyni, TF3CY, fyrir vel heppnað og áhugavert erindi og Jóni
Svavarsyni, TF3LMN, fyrir myndatökuna.

Power Point glærur með erindi Benedikts verða fljótlega til reiðu á heimasíðu Í.R.A.

Hluti félagmanna sem sótti erindi Bendikts í Skeljanesi 26. apríl. Ljósm.: TF3LMN.