
Næsti viðburður á yfirstandandi vetrardagskrá félagsins er sýning DVD-heimildarmyndar frá
DX-leiðangrinum T32C til Austur-Kiribati í Kyrrahafi fimmtudaginn 22. mars kl. 20:30.
Leiðangurinn var QRV dagana 27. september til 24. október s.l. og náðust alls 213.169 QSO
sem er mesti fjöldi sambanda sem náðst hefur í einum leiðangri hingað til. Guðmundur Sveins-
son, TF3SG, er sýningarstjóri kvöldsins og mun hann kynna myndina sem er í boði Brynjólfs
Jónssonar, TF5B, sem gaf félaginu mynddiskinn og eru honum færðar bestu þakkir.
Sýningin hefst stundvíslega kl. 20:30 í Skeljanesi. Kaffiveitingar verða í boði félagsins.