News from 10 Mar 2012

  2012/03/10
TF3ML setur nýtt fjarlægðarmet á 50 MHz...
Last changed: 11 Mar 2012 08:02 by TF2JB


Ólafur Björn Ólafsson, TF3ML.

Ólafur B. Ólafsson, TF3ML og Kari Hämynen, OH7HXH, settu nýtt fjarlægðarmet innan IARU
Svæðis 1 þann 4. mars 2012 þegar þeir höfðu samband á SSB yfir norðurljósabeltið (e. aurora)
á 50 MHz. Fjarlægðin er alls 2.522 km.

Ólafur átti reyndar fyrra metið í þessum flokki, sem hefur staðið óbreytt frá árinu 2000, þegar hann
hafði samband við ES2QM. Fjarlægðin þá var alls 2.335 km.

Nánari upplýsingar má sjá á vefsíðu IARU Svæðis 1, IARU Region 1 VHF/UHF/SHF/EHF DX records.
Vefslóð: http://www.ham.se/vhf/dxrecord/dxrec.htm

Stjórn Í.R.A. óskar Ólafi B. Ólafssyni, TF3ML, til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Posted at 10 Mar @ 8:11 AM by TF2JB | 0 Comments