News from 04 Mar 2012

  2012/03/04
TF1RPB í Bláfjöllum brátt QRV á ný...
Last changed: 04 Mar 2012 12:46 by TF2JB


Loftnet TF1RPB á burðarstaurnum sem brotnaði í október s.l.

Í undirbúningi er, strax og veður gefst, að setja upp á ný endurvarpsstöð félagsins í Bláfjöllum.
TF1RPB („Páll“) hefur nú verið úti í rúmlega 4 mánuði eftir að stagfesta á háum tréstaur sem
hélt uppi loftneti fyrir stöðina slitnaði í ofviðri seint í október s.l. Það olli því að staurinn féll til
jarðar og brotnaði. Í framhaldi var hann fjarlægður af umsjónaraðila á staðnum.

Félagið hefur í millitíðinni fengið inni fyrir endurvarpann á öðrum stað og fyrir loftnetið á öðrum
staur (ekki langt frá þeim fyrri). Erfitt veðurfar undanfarið hefur seinkað verkefninu.

Stöðin hafði verið QRV frá 17. ágúst 2010, þegar nýtt loftnet frá New-Tronics, af gerðinni Hustler
G6-144-B, var sett upp. Við sama tækifæri var endurvarpinn sjálfur endurnýjaður og sett upp stöð
af Zodiac RT-400 gerð, ásamt nýjum "cavity" síum.

Posted at 04 Mar @ 1:07 PM by TF2JB | 0 Comments