Kristinn Andersen TF3KX verður 8. mars.
Næsta erindi á vetrardagskrá félagsins verður haldið í félagsaðstöðunni fimmtudaginn
8. mars n.k. Þá kemur Kristinn Andersen, TF3KX í Skeljanesið og nefnist erindi hans:
QRP kvöld; heimasmíði og notkun QRP senda.
Kristinn mun bæði hafa til sýnis heimasmíðaða QRP senda og keypta, m.a. frá Elecraft.
Hann bendir á að það gæti verið skemmtilegt að félagsmenn sem eiga QRP tæki (heima-
smíðuð og önnur) taki þau með sér á fimmtudagskvöld.
Erindið hefst stundvíslega kl. 20:30 og hvetur stjórn Í.R.A. félagsmenn til að mæta tímanlega.
Kaffiveitingar verða í boði félagssjóðs.