
Sigurður R. Jakobsson TF3CW í Skeljanesi.
Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, virkjaði félagsstöðina TF3W í ARRL International DX
keppninni á morsi, sem haldin var 18.-19. febrúar. Sigurður keppti í einmenningsflokki á
öllum böndum, fullu afli. Niðurstaða: 2.675 QSO og 243 margfaldarar eða nær 2
milljónir heildarstiga. Þessi niðurstaða er ótrúlega góð þegar tekið er tillit til bilana
í búnaði og truflana í segulsviðinu á sunnudeginum.
| Band (metrar) | QSO (fjöldi) | Margfaldarar (fjöldi) |
|---|---|---|
| 160
|
2
|
2
|
| 80
|
58
|
28
|
| 40
|
358
|
49
|
| 20
|
828
|
58
|
| 15
|
1134
|
59
|
| 10
|
294
|
47
|
(Alls 2.674 QSO og 1.949.346 heildarstig).
Miklar truflanir í segulsviðinu á sunnudag lokuðu nánast á fjarskipti á öllum böndum
(K-gildi 9). Af þeirri ástæðu var QSO hlutfall á milli daga 80% á laugardeginum og 20%
á sunnudeginum, þrátt fyrir 35 klst. viðveru í keppninni. (Til skýringar: K-gildi 5 og yfir
flokkast sem segulstormur).
Í annan stað reyndist Harris 110 RF magnari félagsins bilaður. Bilunin hafði þau áhrif,
að minnka þurfti afl stöðvarinnar í 30-50W á 40, 80 og 160 metrum. Á 10, 15 og 20
metrum reynist unnt að keyra hann í nokkurn tíma á 700W en síðan datt hann út ca.
á 5 mín. fresti niður í u.þ.b. 60W (í miðri sendingu).
Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði R. Jakobssyni, TF3CW, fyrir virkjun félagsstöðvarinnar svo
og öðrum félagsmönnum er lögðu hönd á plóg undanfarnar tvær vikur við að gera TF3W
QRV á öllum böndum, frá 10-160m.