News from 04 Feb 2012

  2012/02/04
SteppIR Yagi loftnet TF3IRA komið í lag...
Last changed: 04 Feb 2012 18:56 by TF2JB


Baldvin Þórarinsson TF3-033 og Benedikt Sveinsson TF3CY tengja AlfaSpid rótor félagsins 4. febrúar.
Niðri, til hægri: Guðmundur Sveinsson TF3SG og Sigurður R. Jakobsson TF3CW.

Undanfarið hefur verið beðið tækifæris til að setja upp AlfaSpid rótor félagsins aftur í loftnetsturninn
í Skeljanesi. Tækifærið gafst síðan í dag, þann 4. febrúar og var ákveðið í morgun kl. 11 að hittast
kl. 12 á hádegi og ráðast í verkefnið. Það gekk að óskum og um kl. 13:30 var allt komið í gang og
SteppIR 3E loftnet TF3IRA farið að snúast.

Bestu þakkir til þeirra Benedikts Sveinssonar, TF3CY, stöðvarstjóra TF3IRA, sem gerði við rótorinn
og hafði umsjón með verkinu. Einnig þakkir til Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW; Baldvins Þórarins-
sonar, TF3-033; og Guðmundar Sveinssonar, TF3SG. Aðrir á staðnum: Reynir Björnsson, TF3RL
og Jónas Bjarnason, TF2JB.


Fyrirtaksveður var til framkvæmda í Skeljanesi 4. febrúar eins og myndin ber með sér; logn og 5°C lofthiti.


Benedikt TF3CY og Sigurður TF3CW "taka út" AlfaSpid rótorinn í fjarskiptaherbergi TF3IRA.


Glatt á hjalla í fjarskiptaherbergi félagsins enda búið að laga kaffi og rótorinn kominn upp. Frá vinstri:
Oddur "okkar" Helgason, Guðmundur Sveinsson TF3SG, Baldvin Þórarinsson TF3-033 og Sigurður R.
Jakobsson TF3CW.

(Ljósmyndir: TF2JB).

Posted at 04 Feb @ 4:10 PM by TF2JB | 0 Comments
Kortastofa auglýsir hækkun QSL þjónustu
Last changed: 04 Feb 2012 18:36 by TF3SG - Guðmundur Sveinsson

Kortastofa ÍRA tilkynnir hækkun á þjónustu. Frá og með deginum i dag kostar kr. 9,50 pr. kort, sem sent er í gegnum kortastofu ÍRA. Frá ármótum hefur ný gjaldskrá Íslandspósts verið í gildi. Rétt að geta þess að póstburðargjöld Íslandspósts hafa hækkað frá síðustu hækkun kortastofu ÍRA um 53,16% á bréfum til Evrópu og 50,88% utan Evrópu. Verð Íslandspósts á 250 gramma bréfi til Evrópu sem kostaði kr. 380 kostar eftir hækkun kr. 520 og verð á 250 gramma bréfi utan Evrópu sem kostaði kr. 570 kostar nú kr. 860.

73
Guðmundur, TF3SG

Posted at 04 Feb @ 7:03 PM by TF3SG - Guðmundur Sveinsson | 0 Comments