News from 27 Jan 2012

  2012/01/27
Viðtæki fyrir 80 metra bandið eftir TF3KJ.
Last changed: 27 Jan 2012 09:32 by TF2JB


Carl Jóhann Lilliendahl, TF3KJ, við einkabílinn á sólríkum sumardegi. Takið eftir númeraplötunni.

Samantekt TF3KJ um smíði á lágsláttarviðtæki fyrir 80 metra bandið sem vinnur á AM, CW og SSB hefur
verið sett á heimasíðuna. Kalli smíðaði tækið árið 1978 með það í huga að auðvelda nýliðaleyfishöfum að
koma sér upp góðu tæki til viðtöku á bandinu, en eins og höfundur segir sjálfur, er tækið mjög einfalt
í smíðum.

Allar teikningar og leiðbeiningar eru framúrskarandi vel unnar, auk þess sem hann hannaði prentrásarplötur
fyrir smíðina. Þá fylgja greinargóðar upplýsingar um kassann sem hann hannaði og smíðaði sjálfur utan um
viðtækið. Líkt og höfundur getur um, er viðtækið smíðað eftir upphaflegri teikningu frá Kristjáni Benediktssyni,
TF3KB.

Vefslóð:http://www.ira.is/download/attachments/4557309/80m+vi%C3%B0t%C3%A6ki+++-+j%C3%BAn%C3%AD+1978+-.pdf

Posted at 27 Jan @ 10:12 AM by TF2JB | 0 Comments