News from 21 Jan 2012

  2012/01/21
TF3GL verður með fimmtudagserindið 26. janúar.
Last changed: 21 Jan 2012 21:53 by TF2JB


Guðmundur Löve, TF3GL.

Guðmundur Löve, TF3GL, flytur næsta fimmtudagserindi á vetrardagskrá Í.R.A. þann 26. janúar
n.k. kl. 20:30. Umræðuefnið er: VHF leikar 2012; möguleikar á VHF/UHF samböndum; og sögur
og staðreyndir um útbreiðslu merkja í þessum tíðnisviðum.

Í grein sem Guðmundur ritar í janúarhefti CQ TF 2012 segir hann meðal annars: TF VHF-leikarnir
eru hugarfóstur áhugamanna um langdræg VHF-fjarskipti, en draga dám af sambærilegum leikum
sem mikilla vinsælda njóta í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. VHF-leikarnir eru leikar - en ekki
keppni, þótt stigafjöldi geti vissulega verið mælikvarði á ástundun, búnað, útsjónarsemi og heppni!

Í greininni eru settar fram áhugaverðar tillögur að leikreglum og keppnistilhögun. Guðmundur segir
ennfremur, að tilgangur leikanna sé að örva áhuga og hæfni íslenskra radíóamatöra hvað varðar
notkun VHF- og UHF-tíðnisviðanna og eflingu slíkra fjarskipta innanlands. Jafnframt er hugmyndin
að leikarnir geti verið mönnum til nokkurrar ánægju við sameiningu útivistar, ferðalaga og amatör
radíós.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar verða í boði félagsins.

Posted at 21 Jan @ 9:53 PM by TF2JB | 0 Comments