
Sigurður R. Jakobsson TF3CW í fjarskiptaherbergi TF3IRA. Ljósmynd: TF3LMN.
Úrslitin í CQ WW WPX SSB keppninni 2011 hafa verið kunngerð. Samkvæmt upplýsingum frá
keppnisnefnd CQ tímaritsins varð Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, í 2. sæti yfir heiminn og
í 1. sæti í Evrópu.
Heildarstig voru 7.473.415. Hann keppti í einmenningsflokki á 20 metrum, hámarksafli. Sigurður
varð vel fyrir ofan árangur þeirra stöðva sem næstar komu, t.d. OH4A sem var með 6.886.168
heildarstig og S55T sem var með 6.763.484 heildarstig.
Stjórn Í.R.A. óskar Sigurði til hamingju með glæsilegan árangur.