
Vilhjálmur Sigurjónsson, TF3VS.
Samkvæmt upplýsingum frá Vilhjálmi Sigurjónssyni í dag, er komin út reynsluþýðing á íslensku á
dagbókarforritinu Logger32. Þýðingin var gerð af Vilhjálmi og er forritið algerlega ókeypis.
Forritið er fáanlegt á vefslóðinni logger32.net. Þeir sem hafa sett það upp nýlega geta látið nægja
að sækja uppfærslu. Hafi menn eldri útgáfur verður að sækja það frá grunni. Þýðingar eru svo í
deildinni „support files“ og nægir að sækja TF skjalið, afþjappa því í sömu möppu og forritið er og
þá kemur þýðingin inn af sjálfu sér.
Stjórn Í.R.A. vill koma á framfæri þakklæti til Vilhjálms fyrir hönd félagsmanna fyrir þessa miklu
vinnu. Líklega er um að ræða fyrsta dagbókarforritið af þessu tagi sem þýtt er á íslensku.

Sjá nánar á http://www.logger32.net/