News from 02 Jan 2012

  2012/01/02
TF2LL verður með fimmtudagserindið 5. janúar...
Last changed: 06 Jan 2012 17:16 by TF2JB


Georg Magnússon TF2LL við nýuppsteypta undirstöðuna fyrir 28 metra háan loftnetaturn hans. Myndin var
tekin 12. júlí 2010 áður en steypumótin voru fjarlægð. Ljósmynd: Jónas Bjarnason TF2JB.


Þá er komið að fyrsta fimmtudagserindinu á síðari hluta vetrardagskrár félagsins á yfirstandandi starfsári.
Erindið verður haldið í félagsaðstöðunni í Skeljanesi fimmtudaginn 5. janúar n.k. og hefst stundvíslega
klukkan 20:30.

Fyrirlesari kvöldsins er Georg Magnússon, TF2LL og nefnist erindið Loftnetsframkvæmdir hjá TF2LL í Norðtungu
í Borgarfirði sumarið 2010. Georg mun fara yfir loftnetaval og turnframkvæmdina sjálfa í máli og myndum.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega. Kaffiveitingar eru í boði félagsins.

Posted at 02 Jan @ 2:48 AM by TF2JB | 0 Comments