Hustler G6-144B loftnetið komið upp og tengt við TF3RPC. Ljósmynd: TF3WS.
Töluvert "ferðalag" hefur verið á TF3RPC endurvarpsstöðinni undanfarin misseri. Þann 7. janúar var stöðin flutt úr Espigerði að Austurbrún. Þar var stöðin síðan staðsett þar til í dag, 8. september 2010, þegar hún var hún flutt að Hagatorgi 1 í vesturborg Reykjavíkur. Nýja loftnetið sem sett var upp 10. júlí á Austurbrúninni var einnig flutt og sett upp á nýja staðnum. Vonir höfðu verið bundnar við að afar leiðigjarnar truflanir sem náðu að opna "squelch'inn" á Austurbrún, myndu hætta með niðurlagningu NMT kerfisins þann 1. september s.l. Svo varð ekki og var því ákveðið að flytja stöðina að Hagatorgi í dag, strax og færi gafst til þess.
Búnaður TF3RPC. Aflgjafinn var færður eftir að myndin var tekin. Ljósm.: TF3WS.
Allt bendir til að nýja QTH'ið geti orðið til frambúðar fyrir TF3RPC ("Einar") og eru félagsmenn hvattir til að prófa endurvarpann frá nýja QTH'inu.
Stjórn Í.R.A. færir Sigurði Harðarsyni, TF3WS, sérstakar þakkir fyrir frábæra aðstoð.

Í septemberhefti CQ tímaritsins eru birtar niðurstöður úr CQ WW DX CW keppninni sem fram fór dagana 24.-25. október 2009. Ágæt þátttaka var frá TF, en alls sendu átta stöðvar inn keppnisdagbækur. Þessar átta stöðvar deilast á 5 keppnisflokka:
Einmenningsflokkur, öll bönd, mest 100W útgangsafl: 3 stöðvar.
Einmenningsflokkur, öll bönd - aðstoð, hámarks útgangsafl: 2 stöðvar.
Einmenningsflokkur, 7 MHz, hámarks útgangsafl: 1 stöð.
Einmenningsflokkur, 1.8 mHz, hámarks útgangsafl: 1 stöð.
Fleirmenningsflokkur, öll bönd, hámarks útgangsafl: 1 stöð.
Bjarni Sverrisson, TF3GB, náði bestum árangri af einmenningsstöðvum á öllum böndum í L-flokki, eða 422,598 stigum - 1,061 QSO.
Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, náði mjög góðum árangri sem einmenningsstöð á 7 MHz, eða 287,880 stigum - 1,691 QSO.
Þeir TF3KX, TF3OO, TF3Y og TF4M, náðu frábærum árangri frá TF4X sem fleirmenningsstöð, eða 3,233,670 stigum - 4,410 QSO.
| Keppnisflokkur | Kallmerki | Árangur | QSO | CQ svæði | DXCC einingar | Skýringar |
| Öll bönd (SOP-L) | TF3GB* | 422,598 | 1,061 | 47 | 162 | Mest 100W útgangsafl |
| Öll bönd (SOP-L) | TF8SM | 125,490 | 444 | 40 | 138 | Mest 100W útgangsafl |
| Öll bönd (SOP-L) | TF8GX | 85,462 | 283 | 43 | 130 | Mest 100W útgangsafl |
| Öll bönd (SOP-H-a) | TF3IGN* | 20,758 | 219 | 18 | 79 | Hámarks útgangsafl, aðstoð |
| Öll bönd (SOP-H-a) | TF3AO | 504 | 20 | 9 | 5 | Hámarks útgangsafl, aðstoð |
| Öll bönd (MOP-H) | TF4X* | 3,233,670 | 4,410 | 106 | 345 | Hámarks útgangsafl, einn sendir, fleirmenningsþátttaka (TF4M, TF3Y, TF3OO, TF3KX) |
| 7 MHz (SOP-H) | TF3CW* | 287,880 | 1,619 | 27 | 93 | Hámarks útgangsafl |
| 1.8 MHz (SOP-H) | TF3DC* | 3,655 | 81 | 8 | 352 | Hámarks útgangsafl |
*Bestur árangur í viðkomandi keppnisflokki (innan TF) og handhafi viðurkenningarskjals.
Hamingjuóskir til þátttakenda með árangurinn.
Unnið við SteppIR 3E Yagi loftnet TF3IRA veturinn 2009/2010. Ljósmynd: TF2JB.
Vetraráætlun Í.R.A. fyrir tímabilið október-desember 2010 liggur nú fyrir sbr. meðfylgjandi töflu. Vetraráætlunin verður nánar til kynningar í næsta tölublaði CQ TF (4. tbl. 2010). Samkvæmt áætluninni eru alls sjö erindi í boði (jafn marga fimmtudaga), auk smíðanámskeiða, hraðnámskeiða og flóamarkaðs að hausti (sem er nýjung). Þá hefjast sunnudagsopnanir félagsaðstöðunnar 12. desember n.k. Alls er um að ræða 20 viðburði. Það er skoðun undirritaðs, að afar vel hafi til tekist með skipulagningu verkefnisins, sem var í höndum Erlings Guðnasonar, TF3EE, varaformanns.
O K T Ó B E R
| Mánaðard. | Vikudagur | Viðburður | Upplýsingar | Fyrirlesari/leiðbeinandi | Tímasetning | Skýringar |
| 4. október | mánudagur | Smíðakvöld | Smíðaverkefni-A (sjá 4. tbl. CQ TF) | Vilhjálmur, TF3VS | 19:00-22:30 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 7. október | fimmtudagur | Opið hús | Kaffi á könnunni | Almennar umræður | 20:00-22:00 | |
| 10. október | sunnudagur | Flóamarkaður | Félagsmenn kaupa/selja tæki/búnað | 11.00-16:00 | Flóamarkaður að hausti | |
| 11. október | mánudagur | Smíðakvöld | Smíðaverkefni-B (sjá 4. tbl. CQ TF) | Vilhjálmur, TF3VS | 19:00-22:30 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 12. október | þriðjudagur | Námskeið | "Win-Test" keppnisforritið, hraðnámskeið | Yngvi, TF3Y | 19:30-22:00 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 14. október | fimmtudagur | Útileikar 2010 | Afhending verðlaunaskjala útileikanna 2010 | Kristinn, TF3KX | 20:00-20:30 | |
| 14. október | fimmtudagur | Erindi | Uppbygging endurvarpsstöðva á VHF | Sigurður, TF3WS | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
| 21. október | fimmtudagur | Opið hús | Kaffi á könnunni | Almennar umræður | 20:00-22:00 | |
| 26. október | þriðjudagur | Námskeið | "Win-Test" keppnisforritið, hraðnámskeið | Yngvi, TF3Y | 19:30-22:00 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 28. október | fimmtudagur | Erindi | Hvernig hefur maður EME QSO á 50 MHz? | Benedikt, TF3CY | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
N Ó V E M B E R
| Mánaðard. | Vikudagur | Viðburður | Upplýsingar | Fyrirlesari/leiðbeinandi | Tímasetning | Skýringar |
| 4. nóvember | fimmtudagur | Erindi | Fjarskipti um gervitungl radíóamatöra | Ari, TF3ARI | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
| 11. nóvember | fimmtudagur | Opið hús | Kaffi á könnunni | Almennar umræður | 20:00-22:00 | |
| 17. nóvember | miðvikudagur | Námskeið | Sambönd um gervitungl, hraðnámskeið | Sveinn Bragi, TF3SNN | 19:30-22:00 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 18. nóvember | fimmtudagur | Opið húsð | Kaffi á könnunni | Almennar umræður | 20:00-22:00 | |
| 25. nóvember | fimmtudagur | Erindi | Sólblettir og útbreiðsla radíóbylgna | Vilhjálmur Þór, TF3DX | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
D E S E M B E R
| Mánaðard. | Vikudagur | Viðburður | Upplýsingar | Fyrirlesari/leiðbeinandi | Tímasetning | Skýringar |
| 2. desember | fimmtudagur | Erindi | APRS kerfið og reynsla af því á Íslandi | Jón Þóroddur, TF3JA | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
| 8. desember | miðvikudagur | Námskeið | Sambönd um gervitungl, hraðnámskeið | Sveinn Bragi, TF3SNN | 19:30-22:00 | Forskráning, takmarkaður fjöldi |
| 9. desember | fimmtudagur | Erindi | Viðurkenningarskjöl radíóamatöra | Jónas, TF2JB & Guðlaugur, TF8GX | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
| 12. desember | sunnudagur | Opið hús | Kaffi á könnunni | Umræðuþema: Loftnet fyrir 160 m. | 10:00-12:00 | 1. sunnudagsopnun |
| 16. desember | fimmtudagur | Erindi | QSL kort; hönnun, framleiðsla, notkun o.fl. | Bjarni, TF3GB | 20:30-22:00 | Kaffihlé kl. 21:15 |
| 19. desember | sunnudagur | Opið hús | Kaffi á könnunni | Umræðuþema: RTTY teg. útgeislunar | 10:00-12:00 | 2. sunnudagsopnun |
73 de TF2JB.

.
.
.
Nákvæmlega klukkan 1200Z, næsta laugardag, þann 18. september hefst Scandinavian Activity Contest (SAC) CW keppnin 2010. Ég treysti því að sem flestir ætli að taka þátt, og hafi kynnt sér reglurnar á: http://www.sactest.net/
Félagsstöðin verður að sjálfsögðu í gangi, notar kallmerkið TF3W og keppir í SOAB HP flokki (einmenningsflokkur, öll bönd, hámarksafl). Stöðina mannar að þessu sinni TF3CW.
Koma svo..........allir með !!!
73 de Sigurður, TF3CW.
Í október verður haldið tvö smíðakvöld þann 4 og 11 og
verða þau haldinn í félagsaðstöðu I.R.A. á mánudagskvöldum
undir stjórn Vilhjálm Í. Sigurjónssonar, TF3VS.
Smíðakvöld 1 (4. okt.)

Verkefni kvöldsins verður spennumælir sem TF3VS smíðaði og
skrifað var um í 2 tbl CQTF 2010.
Smíðakvöld 2 (11. okt.)

Verkefni smíðakvölds tvö verður interface milli tölvu og radio
til fjarskifta á t.d PSK31, RTTY og SSTV
Þeir sem hafa áhuga á þáttöku eru bent á að skrá sig.
Taka þarf fram hvort eða bæði kvöldin áhugi er fyrir.
Skráning hér
Áhugahópur um þátttöku frá TF í Scandinavian Activity Contest (SAC) mun hittast í félagsaðstöðunni í Skeljanesi í Reykjavík
fimmtudaginn 16. september kl. 21:00.
Morsehluti keppninnar verður haldinn helgina 18.-19. september n.k. og SSB hlutinn verður haldinn helgina 9.-10. október n.k.
SAC keppnirnar eru sólarhringskeppnir, þ.e. þær hefjast á hádegi á laugardegi og þeim lýkur á hádegi á sunnudegi (þ.e. 12:00 GMT).
Áhugasamir eru hvattir til að mæta.

Sigurður R. Jakobsson, TF3CW, starfrækti TF3W frá félagsstöð Í.R.A. 18.-19. september. Ljósmynd: TF3LMN.
Um tugur íslenskra stöðva tók þátt í morshluta Scandinavian Activity Contest (SAC) helgina 18.-19. september. Upplýsingar liggja þegar fyrir um glæsilegan árangur Sigurðar R. Jakobssonar, TF3CW, sem starfrækti kallmerkið TF3W frá félagsstöðinni í Skeljanesi.
Sigurður hafði alls 2.038 QSO og er áætlaður heildarárangur um 951.000 punktar. Viðvera í keppninni var um 22 klst., sem gerir tæplega 1,6 QSO/mínútu að meðaltali (alla keppnina). Frábær árangur.
Ljóst er, að a.m.k. er um að ræða nýtt Íslandsmet í einmenningsflokki á öllum böndum (fullu afli) í SAC keppninni, en þessi árangur er rúmlega tvöfalt betri en núgildandi met. Að sögn Sigurður, voru skilyrðin ágæt á 20 metrum og neðar.
Stjórn Í.R.A. sendir Sigurði hamingjuóskir með árangurinn.
Mánudagskvöldið 4.okt kl. 19:00 verður haldið smíðakvöld í
félagsaðstöðu I.R.A.undir stjórn Vilhjálm Í. Sigurjónssonar, TF3VS.
Verkefni kvöldsins verður spennumælir sem TF3VS smíðaði og
skrifað var um í 2 tbl CQTF 2010.
Skráning til þátttöku stendur ennþá yfir.
Þátttökugjald verður 1000 kr fyrir pörtum og íhlutum
p.s. þátttakendur þurfa að koma með lóðbolta og vírklippur
Skráning hér