Af tilefni ferðar 4x4 klúbbsins þvert yfir hálendi Íslands hef ég sett upp vefhlustun á tíðninni 3,637MHz. Viðtækið er statt í Grímsnesinu og sendir móttekna hljóðið yfir 3G nettengingu út á Internetið.
Sjá nánar á síðunni Vefradíó
73 de TF3HRafnkell
Fyrstu SteppIR elementin til lagfæringar. Elementið lengst til vinstri
er mest skaddað af þessum. Ljósmynd: TF3SNN.
Það staðfestist hér með að farið verður í uppsetningu á SteppIR Yagi-loftneti félagsins laugardaginn, 20. mars, kl. 10 árdegis. Veðurspáin virðist vera nokkuð góð - við gætum átt von á skúrum - en á móti kemur verkið verður léttara en á horfðist vegna þess að við munum fá körfubíl á staðinn.
Sveinn Bragi Sveinsson, TF3SNN, hefur nú lokið við viðgerð loftnetsins og hann verður klár með nýjar festingar og það sem til þarf. Þeir félagsmenn sem áhuga hafa á að hjálpa til eru velkomnir. Heitt verður á könnunni og eins og áður hefur komið fram verða ný vínarbrauð frá Geirabakaríi í Borgarnesi á borðum.