News from 14 mar. 2010

  2010/03/14
Flóamarkaður Í.R.A. flyst á sunnudaginn 11. apríl n.k.
Last changed: 15 mar. 2010 20:47 by TF2JB


Myndin er tekin á flóamarkaði í Friedrichshafen í Þýzkalandi 2008. Ljósm. TF2JB.

Ákveðið hefur verið að fresta áður auglýstri dagsetningu flóamarkaðar Í.R.A. um 3 vikur, þ.e. til sunnudagsins 11. apríl n.k. Tímasetning er óbreytt: Kl. 10:00 árdegis. Félagið býður upp á rjúkandi kaffi og ný vínarbrauð frá Sandholt bakaríi.

Félagar geta mætt í Skeljanesið með gamlar (og/eða jafnvel nýjar stöðvar), viðtæki, senda, aukahluti fyrir stöðvar, aflgjafa, loftnet, loftnetaefni, þétta, spólur, einangrara, tengi og þess háttar...Nú gefst gott tækifæri til að selja (eða jafnvel gefa) það sem ekki er þörf fyrir lengur.

Það var mikið fjör í fyrra (2009) og margt um manninn. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta með sem mest af dóti.

Nánari upplýsingar má fá hjá Sveini Braga Sveinssyni, TF3SNN, sem er umsjónarmaður verkefnisins. (E-mail: tf3sn@simnet.is; GSM 848-3916).

Posted at 14 mar. @ 8:46 PM by TF2JB | 0 Comments