Í mars eru margar keppnir sem vert er að gefa gaum að. ARRL International DX Contest á SSB fer fram 6 - 7 mars næstkomandi, Í lok marsmánaðar CQ WW WPX SSB sem fer fram 27 - 28 mars. Sjá einnig upplýsingar um keppnir á bls. 51 í nýjasta CQ TF; 1. tbl. 2010.
73
Guðmundur, TF3SG
Þorvaldur Stefánsson, TF4M hefur til sýnis á heimasíðu sinni viðurkenningu ARRL á því að Þorvaldur Stefánsson, TF4M hafi WAS 160m CW. Við þetta tækifæri færir stjórn ÍRA, Þorvaldi innilegar heillaóskir með þessa viðurkenningu og frábæran árangur á 160m CW.
73
Guðmundur Sveinsson, TF3SG