News from 02 feb. 2010

  2010/02/02
Fimmtudagserindi TF3ARI um QSO yfir internetið
Last changed: 02 feb. 2010 20:20 by TF2JB


Frá vinstri: TF8SM, TF3IG, TF3PPN og TF3TON. Ljósm.: TF3LMN.

Ari Þór Jóhannesson, TF3ARI, flutti erindi í félagsaðstöðu Í.R.A. 28. janúar s.l. þar sem hann kynnti hvernig fjarstýra má HF stöð milli heimsálfa yfir netið. Hann sýndi m.a. hvernig stjórna má tíðnum og hafa QSO á SSB, PSK o.fl. Hann kynnti einnig hvaða forrit henta og hvernig fyrirkomulag af þessu tagi er sett upp. Góð mæting var og mikið um spurningar í lok erindisins. Ljósm.: TF3LMN.

Frá vinstri: TF3GC, TF3S, TF3LA og TF8PB. Ljósm.: TF3LMN.

Frá vinstri: TF1JI, TF3RF, TF3JA, TF3VS, TF3-033, TF3-035 og TF3EG. Ljósm.: TF3LMN.

Frá vinstri: TF3LMN, TF3GC, TF3S og TF3Y. Ljósm.: TF3JA.

Posted at 02 feb. @ 1:58 PM by TF2JB | 0 Comments
Þátttaka Í.R.A. í CQ WW 160m CW um helgina
Last changed: 12 feb. 2010 20:22 by TF5B - Brynjolfur Jonsson

Þátttaka Í.R.A. í CQ WW 160m CW tóks með ágætum og er það áköfum keppnismönnum Óskari, TF3DC, Yngva TF3Y, Bjarna Sverris TF3GB, Stefáni Arndal TF3SA, Jóni Þóroddi TF3JA, og Sveini TF3T, Guðmundi TF3SG, svo fyrir að þakka.  Jón Þóroddur, Sveinn og Yngvi voru óþrjótandi viskubrunnar þegar kom að tæknimálum og því að skýra út hvernig best sé að matsa Inverted L eða bara vertikal með sloping vír í topp.  TF3T lánaði unun og Yngvi kom með loftnetsgreini.  Ég þakka öllum sem að málinu komu fyrir frábæra stund og skemmtun.

73

Guðmundur, TF3SG

Posted at 02 feb. @ 10:13 PM by TF3SG - Guðmundur Sveinsson | 0 Comments