
TF3RPC er kominn í loftið á ný - reiðubúinn til þjónustu! Endurvarpinn hefur jafnframt fengið nýja tíðni sem er 25 kHz ofar í bandinu heldur en sú eldri. Nýja tíðnin er: 145.775 MHz (eldri tíðni var 145.750 MHz).
Nýja tíðnin var í hlustun allan desembermánuð fram í byrjun þessa mánaðar. Síðan hefur stöðin verið prufukeyrð í sendingu á nýju tíðninni að undaförnu. Niðurstöður lofa mjög góðu. Engu að síður verður að líta á næstu 3 mánuði sem reynslutímabil og eru menn hvattir til að nota endurvarpann svo og að muna eftir að endurforrita stöðvar sínar (og leitara) með nýju tíðninni: 145.775 MHz.
Endurvarpsstöðin er af gerðinni Kenwood TKR-750 og var hún til viðgerðar hjá Sigurði Harðarsyni, TF3WS. Stjórn Í.R.A. þakkar Sigurði vel unnið verk.
Laugardaginn 23. janúar næstkomandi er fyrirhugað að halda amatörpróf fyrir þá sem vilja öðlast réttindi sem amatörar eða auka réttindi sýn (úr N leyfi í G leyfi).
Raf- og radíótækniprófið verður haldið í Flensborgarskóla (gengið inn norðanmeginn, sjá hér ) kl. 10:00 um morguninn og prófið í lögum og reglugerð ásamt viðskiptaháttum kl. 12:00.
Þeir sem ekki sitja námskeiðið sem nú er í gangi til undirbúnings en hafa hug á að þreyta próf eru beðnir um að láta Hrafnkel TF3HR vita (he@klaki.net).