ZL1 og ZL4 á 80m samtals 17.819 km
Last changed: 07 jan. 2010 19:31 by TF3SG - Guðmundur Sveinsson
Sælir félagar, langar að segja ykkur frá því að í gærmorgun 3. janúar var ég með tvö sambönd við ZL1 og ZL4. Hreint ótrúlegt merki frá ZL1 sem var með merki upp á 57. Einnig sterk merki í Alaska, og svo Japan kl. 15.45 GMT Sambandið við ZL4DH er lengsta samband sem ég hef haft samtals 17.819 km. samkvæmt Google Earth en ZL4DH er í TeAnau í Fiordland.
73 bestu jóla og áramótakveðjur og takk fyrir árið sem var að líða,
Guðmundur, TF3SG