Skeljanesi 23. febrúar. TF3FG og TF3BM tengja Harris RF-110A RF magnara félagsstöðvarinnar.

Í dag, 23. febrúar, fóru fram skipti á RF mögnurum við félagsstöðina TF3IRA. Harris RF-110A magnari félagsins sem hafði verið til skoðunar og yfirferðar hjá Bjarna Magnússyni, TF3BM að undanförnu, kom aftur í Skeljanes í dag. Á meðan magnarinn var til meðferðar hjá Bjarna, lánaði hann félaginu samskonar tæki. Bjarni segir, að magnarinn sé nú jafngóður og nýr og gefi auðveldlega út 1kW á 10-160 metrum.

Stjórn Í.R.A. þakkar Bjarna Magnússyni, TF3BM sérstaklega fyrir dýrmæta aðstoð og velvilja til félagsins. Aðrir, sem tóku þátt í aðgerðum dagsins voru Hans Konrad Kristjánsson, TF3FK og Jónas Bjarnason, TF3JB, og er þeirra framlag ennfremur þakkað.

Tengingum lokið og magnaranum rennt inn í kassann í fjarskiptaherbergi TF3IRA.

Lokafrágangur eftir að magnaranum hefur verið fest örugglega; Bjarni gengur frá.

Handmorslykill frá Kent Engineers, sömu gerðar og notaður er við félagsstöðina TF3IRA.

Af óviðráðanlegum ástæðum þarf að fresta viðburði þeim sem fara átti fram á 2. sunnudagsopnun
félagsaðstöðunnar í Skeljanesi á yfirstandandi vetrardagskrá þann 24. febrúar. Tilkynnt verður um
nýja dagsetningu fljótlega.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Þorvaldur Stefánsson, TF4M, fékk nýlega í hendur glæsilegan viðurkenningaskjöld frá CQ tímaritinu í Bandaríkjunum, Worked All Zones – Award of Excellence, fyrir að framvísa gögnum yfir staðfest sambönd við aðrar stöðvar radíóamatöra í sérhverju hinna 40 skilgreindu landssvæða í heiminum á 160 metra bandi (e. zones). Viðurkenningaskjöldur Þorvaldar er númer 148 í röðinni yfir heiminn frá upphafi, en CQ tímaritið hóf að veita sérstakar WAZ 160 metra viðurkenningar árið 1975.

Um leið og stjórn Í.R.A. sendir Þorvaldi innilegar hamingjuóskir með þennan frábæra árangur, er ástæða til að vekja athygli félagsmanna á að hér er að baki margra ára þrotlaus vinna, enda er um einhverja stærstu viðurkenningu að ræða sem radíóamatör hér á landi hefur hlotnast til þessa.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Háskólanum í Reykjavík 19. mars. Haukur Konráðsson TF3HK útskýrir sveifluvaka.

Námskeið Í.R.A. til amatörprófs 2013 var hálfnað þriðjudaginn 19. mars. Þá urðu kennaraskipti og tók Haukur Konráðsson, TF3HK við kennslu af Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX. Þetta var 12. kennslukvöldið (af 22) en 23. skiptið verður til upprifjunar þann 3. maí n.k. Námskeiðinu lýkur síðan með prófi til amatörleyfis á vegum Póst- og fjarskiptstofnunar degi síðar, laugardaginn 4. maí n.k.

Leiðbeinendur: Andrés Þórarinsson TF3AM; Ágúst Sigurðsson TF3AU; Haukur Konráðsson TF3HK; Henry Arnar Hálfdánarson TF3HRY; Hörður Mar Tómasson TF3HM, Kristinn Andersen TF3KX; Sæmundur E. Þorsteinsson TF3UA; Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX; og Þór Þórisson TF3GW.

Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX, formaður prófnefndar Í.R.A. vann skipulag námskeiðsins. Umsjónarmaður f.h. Í.R.A., er Jónas Bjarnason TF3JB. Námskeiðið er haldið í Háskólanum í Reykjavík og er fjöldi þátttakenda átján.

Úr félagsstarfinu. Stangarloftnet fyrir utan félagsaðstöðuna í Skeljanesi í október s.l. Ljósmynd: TF3JB.

Eins og fram kom fyrr í þessum mánuði, er áhugi fyrir að félagsstöðin, TF3IRA, eignist nýjan magnara. Nokkrir félagar hafa tekið sig saman og ákveðið að hrinda af stað söfnun sem geti létt undir með félagssjóði og hjálpað til við að fjármagna kaupin. Markmiðið er að safna allt að 300 þúsund krónum og þá geti félagssjóður brúað bilið upp á það sem vantar.

Menn sjá fyrir sér að hugsanlega geti 30 félagar verið tilbúnir til að leggja verkefninu lið, til dæmis með 10 þúsund króna framlagi hver, en að sjálfsögðu má framlag hvers og eins vera minna eða meira en sú fjárhæð. Hugmyndin er þegar þar að kemur, að boðað verði til fundar þar sem tekin verði sameiginleg ákvörðun um kaup á tiltekinni tegund og gerð magnara.

Stefán Arndal, TF3SA, opnaði reikning þann 1. febrúar síðastliðinn í þágu söfnunarinnar í Íslandsbanka fyrir væntanleg framlög. Reikningurinn ber nafnið: „HF magnari fyrir Í.R.A.” og er reikningsnúmerið 0515-14-122257. Kennitalan er á hans nafni, 260831-2839 og hefur hann þegar lagt inn á þennan reikning 20 þúsund króna framlag.

Stefán er forsvarsmaður söfnunarinnar og vörslumaður fjárins og mun hann svara fyrirspurnum félagsmanna vegna söfnunarinnar. Fyrir liggur staðfesting stjórnar félagsins þess efnis, að félagssjóður muni styrkja kaupin. Undirritaður hvetur félagsmenn til að styðja þetta góða framtak.

F.h. stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Nýtt tölublað CQ TF, 1. tbl. 2013, hefur verið vistað á vefsíðu ritsins á heimasíðu félagsins. Þetta
eintak er í ágætri upplausn, eða 15MB. Að þessu sinni er blaðið 35 blaðsíður að stærð. Meðal efnis:

  • Ritstjóra- og aðstoðarmannsspjall (TF3UA)
  • Frá formanni (TF3JB)
  • Umsögn EMC-nefndar Í.R.A. til PFS (TF3G, TF3UA, TF3Y)
  • Ferð á radíósafn í Gautaborg (TF1EIN)
  • TF3UA heimsækir ARRL (TF3UA)
  • Bókahorn CQ TF (TF3JB)
  • DX-hornið (TF3DC)
  • TF3SB QRV á RTTY o.fl. (TF3JB)
  • Fundargerðir stjórnarfunda (TF3UA)
  • Vetrardagskrá Í.R.A., tímabilið janúar-maí 2013 (TF3AM)

Sæmundur E. Þorsteinsson, TF3UA, annaðist útgáfu blaðsins sem aðstoðarmaður ritstjóra, TF3KX.
Umbrot var í höndum Vilhjálms Ívars Sigurjónssonar, TF3VS. Þess má geta til fróðleiks, að í þessu
hefti blaðsins birtast ljósmyndir af nær 50 félagsmönnum.

Stjórn Í.R.A. þakkar þeim Sæmundi og Vilhjálmi Ívari vönduð og fagleg vinnubrögð.


Ef vandkvæði koma fram við að hlaða blaðinu niður af vefsíðunni, kann það að vera vegna þess að viðkomandi félagsmaður eigi eftir að fá aðgangskóða hjá TF3CY, rekstrarstjóra vefmiðla. Skuldlausir félagsmenn geta sent tölvupóst til Benedikts á benedikt (hjá) ccpgames.com og fengið hann sendan.

Vilhjálmur Þór Kjartansson TF3DX flutti erindi sitt „Sögur úr bílnum” í Skeljanesi þann 14. febrúar.

ilhjálmur Þór Kjartansson, TF3DX hefur sýnt svo um munar að það er ýmislegt hægt að gera á amatörböndunum á HF „/m” og má t.d. minna á þegar hann hafði fyrsta sambandið frá bílstöð frá TF til Japans (JA7FUJ) á CW á 160 metrum þann 17. nóvember 2009. Þetta var eitt af því fjölmarga sem fram kom í afar vel heppnuðu erindi hans í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes fimmtudaginn 14. febrúar.

Vilhjálmur byrjaði þó erindi sitt mun framar í tíma, eða upp úr 1970 þegar hann byrjaði að vinna úr bílnum, aðallega á 80 metrum og síðan á 160 metrum strax þegar þeir voru leyfðir hér á landi. Hann sagðist hafa fengið „DX áhugann” mun síðar. Síðan fylgdu margar bráðskemmtilegar sögur um einstakar ferðir og tilraunir. Vilhjálmur notar eingöngu heimasmíðuð loftnet og 1

00W sendi. Hann notar spólur og mismunandi langa toppa) um 3,3 metra og 4,7 metra háa. Honum reiknast til að nýtnin á 1,8 MHz sé til dæmis um 2,5%. Alls voru um 30 félagar voru mættir í Skeljanes þetta hægláta vetrarkvöld í höfuðborgnni.

Stjórn Í.R.A. þakkar Vilhjálmi Þór Kjartanssyni, TF3DX, fyrir afar vel heppnað erindi.

Aðspurður, sagðist Vilhjálmur líklega vera kominn með nær 200 DXCC einingar (lönd) úr bílnum.

Af óviðráðanlegum ástæðum frestast áður auglýst opnun morgundagsins í félagsaðstöðunni í Skeljanesi, þ.e. 1. sunnudagsopnun á yfirstandandi vetrardagskrá þann 17. febrúar kl. 10:30-12:00.

Viðburðurinn verður settur á dagskrá á ný innan tíðar og verður nánar tilkynnt um nýja dagsetningu á þessum vettvangi og í öðrum vefmiðlum félagsins.

Beðist er velvirðingar á þessari breytingu.

Fyrir hönd stjórnar Í.R.A.,

Jónas Bjarnason, TF3JB,
formaður.

Guðjón Helgi Elíasson, TF3WO.

Fyrsta sunnudagsopnun á yfirstandandi vetrardagskrá verður haldin sunnudaginn 17. febrúar n.k. kr. 10:30 í félagsaðstöðu Í.R.A. við Skeljanes. Guðjón Helgi Egilsson, TF3WO, mætir í sófaumræður og kynnir Skycommand System II+ frá Kenwood. Húsið verður opnað kl. 10 árdegis og er miðað við að dagskrá verði tæmd á hádegi.

Kenwood kynnti SkyCommand kerfið árið 2005 í Bandaríkjunum. Það gerir notendum TS-2000/2000X/B2000 stöðva kleift, að stýra þeim frá bílstöðvum eða handstöðvum á 2 metrum eða 70 cm frá sama framleiðanda, t.d. gerðum TH-D7A/G, TM-D700A eða TM-D710A. Bandarískir leyfishafar fengu heimild stjórnvalda til að nota SkyCommand í lok árs 2006.

Stjórn Í.R.A. hvetur félagsmenn til að mæta tímanlega.

Frá tilraun TF3WO með SkyCommand kerfið í fyrra (2012). Handstöðin er TH-D7. Ljósmynd: TF3LMN.

 

Jónas Bjarnason TF3JB formaður Í.R.A. setur námskeið félagsins til amatörprófs. Ljósmynd: TF3KX.

Námskeið Í.R.A. til amatörprófs var formlega sett þriðjudaginn 12. febrúar í Háskólanum í Reykjavík. Jónas Bjarnason, TF3JB, formaður félagsins flutti stutt ávarp þar sem hann vék m.a. að mikilvægi amatör radíós sem vísindalegs áhugamáls, hvorutveggja fyrir þátttakendur og samfélagið í heild. Að því loknu hófst fyrsta kennslustundin sem var í höndum Kristins Andersen, TF3KX.

Námskeiðið stendur yfir til 3. maí n.k. og þann 4. maí verður haldið próf til amatörleyfis í skólanum á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar. Alls sitja 18 þátttakendur námskeiðið.

Kristinn Andersen TF3KX kenndi um DC-rásir, spennu, straum og viðnám í fyrstu kennslustundinni.