Entries by TF3JB

,

NÝTT CQ TF ER KOMIÐ

Ágætu félagsmenn! Mér er ánægja að tilkynna um útkomu 4. tbl. CQ TF 2021 sem nú kemur út á stafrænu formi hér á heimasíðunni. 73 – TF3SB, ritstjóri CQ TF. Vefslóð á nýja blaðið: http://www.ira.is/wp-content/uploads/2021/10/2021-4.pdf

,

SCANDINAVIAN ACTIVITY KEPPNIN 2021

Síðari hluti Scandinavian Activity keppninnar 2021 fór fram á SSB helgina 9.-10. október. Gögnum var skilað til keppnisstjórnar fyrir 4 TF kallmerki í þremur keppnisflokkum; 20 metrum háafli, á öllum böndum háafli og á öllum böndum lágafli. Heildarfjöldi innsendra keppnisdagbóka var 896. TF2MSN – Öll bönd, lágafl.TF8KY – Öll bönd, háafl.TF3AO – 20 metrar, háafl.TF3T […]

,

SKEMMTILEGT KVÖLD Í SKELJANESI

Skemmtilegt kvöld. Góð mæting. Góðar umræður og létt yfir mannskapnum í félagsaðstöðunni í Skeljanesi 14. október. Sérstakur gestur okkar þetta fimmtudagskvöld var Daggeir H. Pálsson TF7DHP frá Akureyri. Að auki mættu þeir félagar Egill Þórðarson, TF3CG og Guðni Skúlason loftskeytamaður sem hefur hug á að fá útgefið leyfisbréf og koma í loftið á morsi. Mikið […]

,

SKELJANES Í KVÖLD 14. OKTÓBER

Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 14. október kl. 20-22. Sérstakur gestur verður Daggeir Pálsson, TF7DHP félagsmaður okkar á Akureyri. Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Kaffiveitingar í fundarsal og nýjustu tímaritin liggja frammi. QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólf félagsins og flokka nýjustu kortasendingarnar. Nýtt radíódót […]

,

VIÐTÆKIÐ Í PERLUNNI QRV Á NÝ

Viðtæki Karls Georgs Karlssonar, TF3CZ í Perlunni varð virkt á ný í kvöld (13. október). Tækið var upphaflega sett upp 24. ágúst s.l., og tekið niður til viðgerðar þann 1. þ.m. Hlusta má á tækið yfir netið. Um er að ræða Airspy R2 SDR viðtæki fyrir 24-1800 MHz (á VHF og UHF). Loftnet er Diamond […]

,

LOTA 25 Í HÁMARKI ÁRIÐ 2025

Brátt verða liðin tvö ár frá því ný 11 ára sólblettasveifla hófst (lota 25) samanber meðfylgjandi línurit. Skilyrðin eru þegar byrjuð að batna og hámarki er spáð 2025. Kevin B. Loughin, KB9RLW setti saman stutt myndband þar sem hann ræðir skilyrðin og sýnir okkur m.a. viðtökuna á hærri böndunum í sínu QTH í Indiana í […]

,

SKELJANES 14. OKTÓBER

Opið hús verður í félagsaðstöðu ÍRA í Skeljanesi fimmtudaginn 14. október kl. 20-22. Fjarskiptaherbergi TF3IRA og QSL stofa á 2. hæð verða opin. Kaffiveitingar í fundarsal og nýjustu tímaritin liggja frammi. QSL stjóri verður búinn að tæma pósthólf félagsins og flokka nýjustu kortasendingarnar. Nýtt radíódót hefur borist í hús og verður í boði til félagsmana […]

,

NORÐURLJÓSASPÁR

Háskólinn í Alaska; University of Alaska Fairbanks, birtir norðurljósaspár sem eru gerðar til 27 daga í senn. Hægt er að velja á milli fimm korta, fyrir Norður-Ameríku, Evrópu, Norðurpólinn, Suðurpólinn og Alaska. Spáin fyrir Evrópu í dag (10. október) er þessi: „Forecast: Auroral activity will be moderate. Weather permitting, moderate displays will be visible overhead […]

,

GREIN UM AMATÖR RADÍÓ

GREIN UM AMATÖR RADÍÓ Nýlega kom út tímaritið Raflost sem er ársrit VÍR, félags verkfræði- og tölvuverkfræðinema við Háskóla Íslands 2021. Meðal efnis í blaðinu er greinin „Amatör Radíó“ eftir þá Kristinn Andersen, TF3KX og Sæmund E. Þorsteinsson, TF3UA. Þeir félagar gera áhugamálinu góð skil. Umfjöllunin skiptist eftirfarandi: Upphaf amatör radíós; merkja-tegundir; leyfi fyrir amatör […]

,

LOFTNETSVINNA Í SKELJANESI

Georg Kulp, TF3GZ vann í dag (6. október) að undirbúningi enduruppsetningar 160 metra loftnets TF3IRA, sem upphaflega var sett upp 26. júní s.l., en slitnaði svo niður í roki í ágústmánuði. Í gær tók hann niður gömlu festinguna og setti upp 5 metra hátt vatnsrör (á þakinu fyrir utan fjarskiptaherbergið á 2. hæð). Í dag […]